Kjör og vinnuskilyrði blaðburðarfólks.
félagsmálaráðherra (Árni Magnússon) (F):
Hæstv. forseti. Hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir hefur lagt fyrir mig fyrirspurn í sambandi við kjör og vinnuskilyrði blaðburðarfólks. Því er til að svara að það hefur verið löng og viðtekin venja hér á landi að samtök aðila vinnumarkaðarins semji um kaup og kjör launafólks sem og önnur vinnuskilyrði í frjálsum kjarasamningsviðræðum. Íslensk stjórnvöld hafa því litið svo á að kjarasamningsviðræður væru í höndum aðila vinnumarkaðarins án opinberra afskipta. Verður ekki annað séð en að hið sama skuli gilda um kaup og kjör blaðburðarfólks.
Einhverra hluta vegna virðist, hæstv. forseti, sem lengi vel hafi engir kjarasamningar verið í gildi á milli aðila vinnumarkaðarins sem ætlað var að taka til starfa blaðburðarfólks og þótti mér það miður eins og fram hefur komið opinberlega. Hins vegar hefur verið gerð bragarbót á þessu en Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Landssamband íslenskra verslunarmanna annars vegar og Samtök atvinnulífsins vegna Árvakurs hf. hins vegar hafa gert með sér sérkjarasamning sem gildir fyrir starfsmenn fyrirtækisins er starfa við blaðburð. Fagna ég þessu framtaki aðila. En um leið vil ég að það liggi fyrir, hæstv. forseti, að ég tel það ekki til fyrirmyndar að þau fyrirtæki sem hafa látið hjá líða að gera slíka samninga skuli láta svo vera. Á þetta ekki síst við þegar um ungmenni er að ræða.
Ég hef engar valdheimildir í krafti embættis míns sem félagsmálaráðherra að skylda samtök aðila vinnumarkaðarins til gerðar á almennum kjarasamningi sem næði til alls blaðburðarfólks. Ég vil þó engu að síður nota þetta tækifæri til að hvetja aðila vinnumarkaðarins sem og önnur þau fyrirtæki sem í hlut eiga til þess að gera með sér kjarasamning sem ætlað væri að kveða á um kaup og kjör blaðburðarfólks hvort sem um væri að ræða almennan kjarasamning eða sérkjarasamninga.
Með hliðsjón af þeirri meginreglu að kjarasamningsviðræður hafi talist vera á verksviði aðila vinnumarkaðarins hefur jafnframt verið litið svo á að eftirlit með því að samningar séu haldnir séu einnig á ábyrgð aðilanna sjálfra. Þetta verður að teljast eðlilegt í ljósi þess að um frjálsa samninga er að ræða milli aðila. Þar af leiðandi hefur hvorki tíðkast að opinberir aðilar hafi viðhaft sérstakt eftirlit með því að vinnuveitendur haldi gerða kjarasamninga né hvort efni þeirra brjóta hugsanlega í bága við innlenda löggjöf. Í stað opinbers eftirlitskerfis um kaup og kjör gerir vinnumarkaðskerfi okkar ráð fyrir að launamaður leiti til stéttarfélags síns telji hann brotið á sér í starfi. Það er síðan hlutverk stéttarfélagsins að beina kröfum fyrir hönd félagsmannsins til vinnuveitandans um úrbætur á aðstæðum launamannsins. Verði vinnuveitandinn ekki við kröfum stéttarfélagsins eða telur þær ekki eiga við rök að styðjast geta aðilar höfðað mál fyrir Félagsdómi eða almennum dómstóli eftir atvikum. Í ljósi þessara samskiptareglna og þess sem að framan er rakið liggja umbeðnar upplýsingar því ekki fyrir hjá stjórnvöldum.
Hæstv. forseti. Hins vegar er annað mál að Vinnueftirliti ríkisins hefur verið falið eftirlitshlutverk með að atvinnurekendur er lög nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum taki til, stuðli að góðum aðbúnaði. Vinnuveitendur blaðburðarfólks falla undir framangreind lög og Vinnueftirliltið hefur beitt sér í eftirliti með aðbúnaði blaðburðarfólks einkum þeirra sem eru undir 18 ára að aldri. Um störf þeirra gildir jafnframt reglugerð nr. 426/1999 um vinnu barna og unglinga og samkvæmt þeim reglum er börnum yngri en 13 ára óheimilt að starfa við blaðburð. Á árinu 2001 var öllum fyrirtækjum sem sáu um dreifingu dagblaða á þeim tíma sent bréf þar sem sérstök athygli var vakin á að óheimilt væri að ráða yngri starfsmenn en 13 ára til að starfa við blaðburð. Í kjölfar ummæla minna í nóvember fyrir tæpu ári um vinnuskilyrði blaðburðarfólks sem hv. þm. vísaði til stóð Vinnueftirlitið að eftirlitsheimsókn í fyrirtæki sem annast dagblaðaútgáfu og dreifingu. Þar var farið yfir skyldur og ábyrgð atvinnurekandans og farið yfir aðstæður í viðkomandi fyrirtæki. Jafnframt voru gefin fyrirmæli um að engir starfsmenn við blaðburð væru undir lágmarksaldri.
Nokkru síðar var atvinnurekendum er annast útgáfu og dreifingu dagblaða hér á landi sent bréf þar sem vakin var athygli á skyldu þeirra til að gera áhættumat vegna starfa blaðburðarfólks með tilliti til heilsu þeirra og öryggis. Fyrirtæki hafa brugðist misjafnlega við fyrirmælum Vinnueftirlitsins, sum gert skriflegt áhættumat vegna starfa blaðburðarfólks sem er vel. Vinnueftirlitið hefur jafnframt margítrekað fyrirmæli sín við þau fyrirtæki sem ekki hafa uppfyllt þá skyldu sína að gera slíkt áhættumat. Vinnueftirlitið mun halda áfram að beina fyrirmælum sínum að þeim fyrirtækjum sem í hlut eiga og grípa til viðeigandi ráðstafana teljist þess þörf.
Hæstv. forseti. Ég mun að sjálfsögðu beita mér áfram í því að Vinnueftirlitið annist reglulegt eftirlit með aðbúnaði blaðburðarfólks á vinnustöðum.
Að lokum vil ég nota tækifærið til að ítreka vinsamleg tilmæli mín til aðila vinnumarkaðarins um að þeir sjái til þess að kjarasamningar komi til með að verða gerðir um störf blaðburðarfólks. Þeim væri sómi að því, hæstv. forseti.