Staða geðsjúkra og þjónusta við þá.
Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):
Virðulegi forseti. Ég þakka þessa umræðu. Ég er alveg sannfærð um að þó að hún hafi verið stutt muni hún koma einhverju til skila. Hér hefur verið komið að mjög mikilvægum þáttum og þetta eru brýn verkefni sem þarfnast úrlausna.
Mig langar til að þakka ráðherra fyrir svörin en kalla eftir svari við því frá honum hvenær búast megi við því að sálfræðiþjónusta verði niðurgreidd eins og geðlæknisþjónusta.
Vissulega er það fjölbreyttur hópur sem við erum að ræða um sem þarf að sinna á margvíslegan hátt. Það er vandi sem þarf að leysa úr. Það vantar göngudeildarúrræði eins og komið hefur fram. Það vantar meðferðarúrræði með lyfjagjöfinni og það vantar eftirfylgni. Öllum ber saman um það. Við leysum ekki þann vanda með sjúkrarúmum.
Síðan vil ég nefna starfsendurhæfinguna, að koma fólki út í lífið og gera það að virkum þjóðfélagsþegnum. Lyfin duga ekki ein og sér. Það þarf að nýta aðrar leiðir. Gera þarf heilsugæslunni kleift að sinna þessum hópi betur. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO hefur lagt áherslu á að efla þjónustuna utan sjúkrahúsa og ég tek undir það. Ég vil einnig nefna að þegar við erum að virkja þennan hóp sjúklinga og koma honum aftur út í lífið er óþolandi hvernig opinberar stofnanir hafa komið fram við þá sem veikjast af geðrænum sjúkdómum.
Ég þekki nýlegt dæmi um ungan mann sem var umsvifalaust sagt upp störfum hjá opinberri stofnun þegar hann veiktist af geðrænum sjúkdómi. Þar var hvorki umburðarlyndi né skilningur. En veikist maður af öðrum sjúkdómi, krabbameini eða fær hjartaáfall, þá fær viðkomandi veikindaleyfi og er fagnað þegar hann kemur aftur til starfa eftir að hafa tekist að ná sér. Á þetta benti Morgunblaðið einmitt í leiðara á geðheilbrigðisdaginn.
Þessi framkoma endurspeglar fordóma stjórnvalda gagnvart þessum veikindum (Forseti hringir.) og skilningsleysi. Stjórnvöld verða að sýna gott fordæmi að þessu leyti.