Tryggur lágmarkslífeyrir.
Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):
Frú forseti. Ég nefndi vandann sem felst í því að lífeyrir frá lífeyrissjóðunum hækkar eins og verðlag en ekki eins og laun. Ég nefndi að það er ekki hægt að laga það, vegna þess að þá þyrfti að hækka verðtryggingu á útlánum og tel að mönnum finnist nóg um eins og staðan er í dag. Þann hluta vandans, helminginn af öllum tekjum lífeyrisþega, lögum við því ekki með stjórnvaldsákvörðunum.
Hv. þm. talar um 3–4 milljarða eins og ekkert sé. Hver skyldi borga það? Hver skyldi borga það annar en almenningur sem menn sumir hverjir eru ekki með jafnháar tekjur og gert er ráð fyrir að þeir fái sem lífeyrisþegar. Tillagan gerir því vissulega í því að laga stöðu þeirra sem hafa greitt í lífeyrissjóð í 30–40 ár svo þeir eru betur settir. Hins vegar lagar hún stöðuna það mikið að þeir fara upp fyrir það sem þeir höfðu í laun. Þá er kominn sá vandi að þeir sem borga almannatryggingakerfið, þann lífeyri, verða með lakari stöðu en þeir sem þiggja bæturnar og höfðu sambærileg laun áður. Þetta er illleysanlegur vandi.
Ég fullyrði að ríkisstjórnin hefur tekið á þessu. Hún hefur hækkað bætur almannatrygginga mjög myndarlega undanfarin ár og þarf ekkert að skammast sín fyrir það. Vandinn er hins vegar lífeyrir frá lífeyrissjóðunum.