Náttúruvernd.
umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S):
Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 44/1999. Frumvarpið er í meginatriðum samið af starfshópi sem umhverfisráðherra skipaði í júní 2003 til að gera tillögur til ráðuneytisins um það með hvaða hætti væri hægt að binda leyfum töku efna úr námum.
Samkvæmt gildandi lögum skal afla framkvæmdaleyfis sveitarstjórnar fyrir allri efnistöku á landi og úr hafsbotni innan netlaga. Þetta gildir um allar námur þar sem efnistaka hófst eftir gildistöku náttúruverndarlaga, nr. 44/1999, þ.e. eftir 1. júlí 1999. Lög um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000, ná einnig til slíkrar efnistöku ef hún nær tilteknu umfangi eða er á náttúruverndarsvæðum. Um öll ný efnistökusvæði gilda því ákveðnar reglur sem tryggja að sveitarstjórnir og önnur stjórnvöld á borð við Umhverfisstofnun geta haft áhrif á hvernig efnistaka fer fram.
Hins vegar hefur ekki verið talið að framangreint ákvæði nái til eldri efnistökusvæða, þ.e. þar sem efnistaka var hafin fyrir 1. júlí 1999. Þar sem mikill meiri hluti náma í landinu fellur undir þann flokk hefur af þessum sökum ekki tekist að koma á eðlilegu eftirliti með stórum hluta þeirra efnisnáma sem í landinu eru. Til að taka af allan vafa er í frumvarpi þessu lagt til að skýrt verði kveðið á um að um eldri námur gildi sömu reglur og um nýjar. Gert er ráð fyrir að þetta verði gert í tveimur áföngum.
Tilgangurinn með frumvarpinu er ekki að koma í veg fyrir efnistökuna heldur fyrst og fremst að tryggja virkt eftirlit af hálfu náttúruverndaryfirvalda og vönduð vinnubrögð svo efnistakan fari fram í sátt við umhverfið. Síðast en ekki síst mun frágangur náma verða með sambærilegum hætti þegar efnistöku lýkur, hvort sem um er að ræða gamlar eða nýjar námur.
Í frumvarpinu er í fyrsta áfanga lagt til að eftir 1. júlí 2007 þurfi framkvæmdaleyfi sveitarstjórna fyrir efnistöku í eldri námum þegar eitt af eftirfarandi skilyrðum á við:
Í fyrsta lagi þegar áætluð er stækkun efnistökusvæðis um 25 þús. fermetra eða meira. Í öðru lagi þegar áætlað er að taka 50 þús. rúmmetra af efni eða meira á viðkomandi efnistökusvæði. Í þriðja lagi þegar áætluð er samanlögð stækkun tveggja eða fleiri efnistökusvæða vegna sömu framkvæmdar og á sama svæði upp á 25 þús. fermetra eða meira. Og í síðasta lagi þegar efnistaka fer fram á verndarsvæði.
Gert er ráð fyrir að lög um mat á umhverfisáhrifum taki einnig til þessara náma eins og um nýja framkvæmd væri að ræða. Það þýðir að í flestum tilfellum ber að tilkynna efnistökuna til Skipulagsstofnunar sem tekur ákvörðun um hvort hún skuli fara í mat á umhverfisáhrifum. Allra stærstu námurnar í þessum flokki verða hins vegar sjálfkrafa matsskyldar, þ.e. þar sem fyrirhuguð er stækkun efnistökusvæðis um 50 þús. fermetra eða meira eða þar sem fyrirhugað er að teknir verði yfir 150 þús. rúmmetrar af efni.
Í öðrum áfanga frumvarpsins er gert ráð fyrir að eftir 1. júlí 2010 þurfi allar starfandi námur framkvæmdaleyfi viðkomandi sveitarstjórnar. Eftir þann tíma eiga sömu reglur að gilda um allar námur í landinu og efnistaka að vera samræmd með hliðsjón af umhverfissjónarmiðum.
Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umr. vísað til háttvirtrar umhverfisnefndar.