Þriðja kynslóð farsíma.
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég get svarað því að vinnu þessa ágæta stýrihóps við undirbúning að tillögu að fjarskiptaáætlun er ekki lokið. Það hefur komið í ljós að þetta er geysilega mikið verkefni og þróunin er ör. Það eru stöðugt að koma upp ný og ný atriði sem þarf að taka tillit til. Ég ákvað að gefa þeim frekari frest til að skila vinnu sinni. Það sem m.a. hefur haft áhrif á framvindu þeirrar vinnu eru þær miklu hræringar sem eru á fjarskiptamarkaði og útvarps- og sjónvarpsmarkaði, en ég hafði vonast til að meira samstarf næðist á milli útvarps- og fjarskiptafyrirtækjanna en raunin hefur orðið á. Það hefur litað þessa vinnu að einhverju leyti. Það stefnir í að við ljúkum þessu fyrir áramótin, ég á ekki von á öðru.