Þriðja kynslóð farsíma.
samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (S) (andsvar):
Hæstv. forseti. Óskir byggðarlaganna eru misjafnar. Ég tel ekkert óeðlilegt við það að önnur fyrirtæki en Síminn komi að því að þjóna einstökum byggðum. Hér er Hrísey nefnd sérstaklega. Ég tel það ekkert óeðlilegt. Við vitum að uppi í Borgarfirði er Borgarbyggð að semja við lítið fjarskiptafyrirtæki um þá sömu þjónustu og gerð er að umtalsefni hér fyrir Hrísey. Ég tel að það sé bara ... (Gripið fram í.) Ég sé ekkert óeðlilegt við það. Við erum á markaði í þessu. Ég minni á það.
Síminn hefur skyldum að gegna á grundvelli fjarskiptalaganna hvað varðar gagnaflutninga upp til þessarar ISDN-tengingaþjónustu. Hann hefur bætt um betur og útvíkkað þá þjónustu. Ég verð að segja alveg eins og er að ég veit ekki hvaða gögn hv. þingmaður er að tosa út og inn af internetinu ef ISDN Plús dugar honum ekki. Ég hef þessar tengingar heima hjá mér. Ég hef haft þær heima hjá mér í Stykkishólmi og ISDN-tengingin dugar mér algerlega sem þingmanni og ráðherra. Ég hef alveg nægan tíma til þess að bíða eftir þessari hröðu og fínu þjónustu. En ef menn gera meiri kröfur þá er náttúrlega eðlilegt að þeir kaupi dýrari tengingar og dýrari búnað til tenginga. Það er á margt að líta í þessu.
Ég vona svo sannarlega að þessar litlu byggðir fái sem besta þjónustu. En við sitjum uppi með það að sjálfsögðu að símafyrirtækin eru í samkeppni. (Forseti hringir.) Og það er ekki eingöngu hægt að gera kröfu til eins fyrirtækis.