131. löggjafarþing — 12. fundur,  20. okt. 2004.

Sameining Tækniháskólans og Háskólans í Reykjavík.

[13:38]

Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Í Tækniháskóla Íslands eru kenndar margar þær námsgreinar sem hvergi eru kenndar annars staðar. Þar hefur verið byggt upp mikilvægt tækninám sem nemendur eru bundnir við að sækja í þann skóla. Vandi skólans á undanförnum árum hefur hins vegar verið markvisst fjársvelti af hálfu stjórnvalda, af hálfu menntamálaráðuneytisins. Kannski er það ástæðan fyrir þeim orðum hæstv. menntamálaráðherra að við höfum um margt verið eftirbátar annarra þjóða í tæknimenntun. En það var hægt að leiðrétta og oft verið á það bent. Skólinn hefur verið með tugi ef ekki hundrað millj. kr. halla á undanförnum árum sem var ekki bættur fyrr en á síðasta ári þegar honum var breytt í háskóla.

Hitt er svo sérmál ef nú á að fara að sameina skólana með þeim hætti að taka upp skólagjöld í því námi sem hvergi er annars staðar í boði. Skólagjöldin í Háskólanum í Reykjavík eru 200 þús. kr. á ári. Manni verður spurn: Eru ríkisstjórnarflokkarnir sammála um þessa aðgerð? Verið er að fara inn á gersamlega nýja braut og fróðlegt að heyra stefnu Framsóknarflokksins í málinu.

Við þekkjum einkavæðingarstefnu Sjálfstæðisflokksins og að allt eigi að greiðast með notendagjöldum og skólagjöldum. Hún kemur okkur ekki á óvart. En stefna Framsóknarflokksins, hver er hún? Er það tilviljun að í dag kemur fram þingsályktunartillaga frá tveimur þingmönnum Framsóknarflokksins, formanni þingflokks og varaformanni menntamálanefndar, um að skipa eigi sérstaka nefnd til að skoða háskólastigið? Bíddu nú við. Hvað er að gerast? Ég vil fá svör, frú forseti. Er Framsóknarflokkurinn sammála þeirri vegferð sem verið er að fara í um rekstur á Tækniháskóla Íslands með skólagjöldum, rekstur á sérnámi með skólagjöldum?