Athugasemd.
Guðjón A. Kristjánsson (Fl):
Hæstv. forseti. Það verður að segjast alveg eins og er að manni koma vinnubrögð ríkisstjórnarinnar svolítið á óvart. Hægt var að ráða af ræðu hv. þm. Dagnýjar Jónsdóttur að Framsóknarflokkurinn sé hlynntur stefnumótuninni. Samt virðist hvorki stefnumótunin né skólagjöldin hafa verið rædd í ríkisstjórnarflokkunum og ekki í þingflokkunum. Hvað þá að við í stjórnarandstöðunni höfum fengið nokkra vitneskju um að verið væri að breyta stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum málaflokki og gera Tækniháskólann, sem er ríkisháskóli, að einkaskóla og stefna á skólagjöld.
Virðulegi forseti. Mér kemur afar mikið á óvart hvernig unnið er í þessum málaflokki og hefði talið eðlilegt að fram færu einhverjar viðræður um slíka stefnumótun. Ég skil vel áhuga hæstv. menntamálaráðherra, Þorgerðar K. Gunnarsdóttur, að skoða ýmislegt sem varðar skólamálin, en mér finnst framsetningin eins og hún birtist okkur með fréttum í Morgunblaðinu afar merkileg og furða mig á því að svona skuli vera unnið.
Ég hefði talið eðlilegt að málið bæri að með allt öðrum hætti og menn hefðu meiri vitneskju um það sem verið væri að gera varðandi stefnu í menntamálum hér á landi en málsmeðferðin ber með sér.