131. löggjafarþing — 12. fundur,  20. okt. 2004.

Sameining Tækniháskólans og Háskólans í Reykjavík.

[13:44]

Böðvar Jónsson (S):

Hæstv. forseti. Ég fagna mjög þeirri ákvörðun sem kynnt var í gær um sameiningu Tækniháskólans og Háskóla Íslands. Ég er sannfærður um að stærri skóli gefur stærri tækifæri og meiri möguleika bæði fyrir skólann og fyrir nemendur. Það er mjög mikilvægt fyrir nemendur sem útskrifast úr íslenskum háskólum og taka í auknum mæli þátt í alþjóðlegum vinnumarkaði, að skólarnir sem þeir útskrifast úr séu stórir og virtir á alþjóðavettvangi. Ef einingarnar eru of litlar er ekki víst að prófin sem menn fá hafi þá vigt sem nauðsynleg er á alþjóðlegum vinnumarkaði. Þetta er mjög mikilvægt og þess vegna fagna ég mjög þeirri ákvörðun sem kynnt var í gær.