131. löggjafarþing — 14. fundur,  21. okt. 2004.

Byggðaáætlun fyrir árin 2002--2005.

216. mál
[14:28]

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst gott að ég gat aðeins komið blóðinu á hreyfingu í hæstv. ráðherra. Ég dreg ekki í land með eitt einasta atriði af því sem ég sagði. Við getum farið út í það að reyna að bera saman það fólk sem við hittum á förnum vegi en ég hef t.d. heimsótt margar sveitarstjórnir á undanförnum vikum. Ég verð að segja alveg eins og er að þegar maður kemur úr slíkum leiðangri og hefur kannski hitt fjögur til sex meðalstór þéttbýlissveitarfélög á landsbyggðinni liggur ekkert sérstaklega vel á manni. Ég verð að segja alveg eins og er að það gerir það ekki. Þá er ég búinn að ræða við fólk sem er í örvæntingu sinni og öngum að láta reikna út hvort það geti bjargað sér til nokkurra missira með því að selja barnaskólann, íþróttahúsið eða hitaveituna. Þá liggur ekkert sérstaklega vel á mér. Það er bara þannig.

Það þýðir ekkert að tala um hlutina í einhverjum rósrauðum skýjum úr tengslum við veruleikann. Það eru miklir erfiðleikar víða í sveitarfélögunum og hjá ýmsum undirstöðugreinum á landsbyggðinni. Hvað með sjávarútveginn, rækjuiðnaðinn o.s.frv.? Er hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra, byggðamálaráðherra, búandi á einhverri annarri plánetu en við hin? Hvernig er þetta? Hefur ráðherrann aldrei heimsótt Siglufjörð á undanförnum vikum?

Úr því að hæstv. ráðherra ber á móti því sem ég var að segja um t.d. fjármagn til nýsköpunar í atvinnumálunum ætla ég að lesa gögn frá sérfræðingum sem starfa undir hæstv. ráðherra í Nýsköpunarsjóði. Þar stendur, með leyfi forseta:

„Ekki á sér stað mikil samkeppni í fjármögnun nýsköpunarverkefna þar sem svo til engin eru á markaðnum (fjárfestingargat).“

Þeir kalla það fjárfestingargat, sérfræðingarnir sem vinna með þetta dag frá degi, vegna þess að þeir stofnanafjárfestar og sjóðir sem áður voru virkir eru horfnir á braut. Fé þeirra streymir núna fyrst og fremst til útlanda. Það er svo gaman að fjárfesta í Búlgaríu eða Bretlandi eða hvar það er en ekki á Íslandi. Nýsköpunarsjóður er tómur. Hann er bundinn. Hann er fastur. Það er hætt að setja meira fé inn í framtakssjóðina. Þetta er veruleikinn, frú forseti, hann er bara svona.