Byggðaáætlun fyrir árin 2002--2005.
Arnbjörg Sveinsdóttir (S):
Hæstv. forseti. Ég vil í upphafi byrja á að þakka hæstv. iðnaðarráðherra fyrir þá ágætu skýrslu sem hér liggur fyrir þó að ég hafi kannski ýmislegt við hana að athuga. Þegar grannt er skoðað má þar eitt og annað betur fara, held ég.
Ég vil aðeins víkja að stöðu Byggðastofnunar af því að ráðherra gaf tilefni til þess í upphafi ræðu sinnar. Með útrás bankanna út á landsbyggðina, sem ég tel mjög gleðilega, hefur staða Byggðastofnunar auðvitað breyst mjög. Þannig eru góð fyrirtæki á landsbyggðinni í stórum stíl að greiða upp lán sín hjá Byggðastofnun sem hefur aftur á móti síðan áhrif á rekstrarstöðu Byggðastofnunar. Það er ástand sem þarf með einhverjum hætti að bregðast við. Ég held að við verðum jafnvel að endurskoða lánapólitík og lánastefnu Byggðastofnunar með algerlega nýjum hætti þegar sú staða er komin upp að stóru lánastofnanirnar eru einfaldlega farnar að slást um fyrirtæki á landsbyggðinni.
Það má horfa til ýmissa þátta í því og kannski ræða sérstaklega þá vaxtastefnu og vaxtapólitík sem gilt hefur innan Byggðastofnunar þar sem allir hafa búið við sömu kjör. Það má færa rök fyrir því þegar horft er til tilgangs Byggðastofnunar að það ættu að vera lægri vextir á þeim svæðum sem eiga undir högg að sækja hvað íbúaþróun og atvinnulíf snertir til þess að auka samkeppnishæfni þeirra svæða. Ég held að þetta sé atriði sem við megum gjarnan skoða. Það má einnig skoða og færa nokkur rök fyrir því að ákveðnar atvinnugreinar gætu hugsanlega borið aðra vexti sem væri þá óháð því hvar fyrirtæki væru staðsett og þá kannski frekar þær sem eiga undir högg að sækja á þeim svæðum þar sem menn vildu efla þær atvinnugreinar.
Þetta eru allt atriði sem er mjög nauðsynlegt að skoða með opnum huga því ég held að við höfum stundum þá áráttu að festa okkur í einhverjum farvegi og ákveðnum hjólförum sem við eigum erfitt með að rífa okkur upp úr.
Þetta var um stöðu Byggðastofnunar og eins og ég segi er mjög nauðsynlegt að skoða stöðu hennar, hvaða þörf við höfum fyrir Byggðastofnun. Þó svo að ég sé þeirrar skoðunar að það sé því miður enn þá full þörf á að reka lánastarfsemi á vegum Byggðastofnunar getur það samt sem áður verið breytt hlutverk í lánastarfseminni sem við horfum til.
Aðeins varðandi þá skýrslu sem hér liggur fyrir. Það er leitt að ráðherra skyldi þurfa að víkja sér úr salnum þegar ég fer yfir hana. Ég tel að þó svo að margt ágætt komi fram í skýrslunni sé alveg hörmuleg ritstjórn á henni. Fyrir þá sem ekki eru að skoða byggðamál frá degi til dags er afar erfitt að átta sig á uppbyggingu skýrslunnar. Ég tek undir það með hv. þm. Kristjáni L. Möller að fyrri skýrslan sem lögð var fram á síðasta þingi er mun betur upp sett en sú sem við erum nú með fyrir framan okkur. Til þess að skilja markmið og meginhugmyndir hvers verkefnis fyrir sig af þeim 22 verkefnum sem hér liggja fyrir er algjörlega nauðsynlegt að mínu mati þegar verið er að gera grein fyrir þeim að fram komi hver sé meginhugmyndin að baki verkefnunum og hvert sé markmiðið með þeim. Ég harma að það skyldi ekki vera gert með þeim hætti.
Skýrslan er þannig uppbyggð að talin eru upp fimm meginmarkmið í upphafi. Síðan eru stefnumarkandi áherslusvið eins og það heitir. Yfir þessum verkefnum er verkefnisstjórn sem skipuð er fulltrúum ráðuneyta. Í verkefnisstjórninni eru fulltrúar félagsmálaráðuneytis, fjármálaráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis, landbúnaðarráðuneytis, menntamálaráðuneytis, samgönguráðuneytis, sjávarútvegsráðuneytis og umhverfisráðuneytis. Fyrr í skýrslunni er tekið fram að það séu tiltekin ráðuneyti, væntanlega þau sem upp eru talin, eða Byggðastofnun sem beri ábyrgð á framkvæmd hverrar aðgerðar. Ég er eiginlega nokkuð hissa á því að í verkefnisstjórninni skuli ekki vera fulltrúi frá Byggðastofnun sem ber þó ábyrgð á ákveðnum verkefnum þarna. Að mínu mati hefði það verið mjög til bóta og ég tel heldur verra að svo sé ekki.
Hér liggur einnig fyrir heildarmat Byggðastofnunar á árangri þessara verkefna. Af því að kallað hefur verið eftir í umræðunni að ekki liggi fyrir mat á árangri þá segir í niðurlagi heildarmats Byggðastofnunar á árangrinum, með leyfi forseta:
„Það er mat stofnunarinnar að skýrslan lýsi framkvæmd áætlunarinnar með fullnægjandi hætti og að samkvæmt henni sé vinna við flesta liði í viðunandi farvegi. Hins vegar verður ekki hægt að meta árangur að fullu fyrr en að áætlunartímabilinu lýkur.“
Það er kannski ástæðan fyrir því að ekki er hægt að leggja betra mat á það sem fram kemur í skýrslunni að áætlunartímabilinu er ekki lokið.
Ef við lítum til þeirra verkefna sem talin eru upp og eru 22 að tölu, þá vildi ég aðeins hlaupa á nokkrum þeirra og nefni fyrst verkefni nr. 1, Endurskipulagningu atvinnuþróunar á landsbyggðinni – nýsköpunarmiðstöð á Akureyri. Þarna held ég að hafi verið mjög vel að verki staðið. Reyndar hefði mátt telja hér upp mun fleira í skýrslunni en þarna koma fram verkefni sem Impra hefur verið að vinna að og eru mjög mörg góð verkefni, stuðningsverkefni fyrir fyrirtæki í rekstri, stuðningsverkefni fyrir frumkvöðla og þjónusta við atvinnuþróunarfélög og síðan er minnst á nýja samninga Byggðastofnunar við atvinnuþróunarfélögin. Ég held að mjög upplýsandi hefði verið að fá aðeins yfirlit yfir hvað atvinnuþróunarfélögin hafa verið að vinna því þar fer fram afskaplega merkilegt starf að mínu mati sem mætti gjarnan vera haldið meira á lofti, en atvinnuþróunarfélögin eru í samstarfi við Byggðastofnun og hafa nýst mjög vel hvert á sínu svæði.
Annars staðar er minnst á eflingu sveitarstjórnarstigsins. Það er tillaga frá verkefnisstjórn um í rauninni þetta sama, að það þarf auðvitað að endurskipuleggja og stöðugt að huga að því hvernig vinna á að atvinnuþróunarstarfi og nýsköpunarstarfi á landsbyggðinni. Ég tel að þar sé víða verk að vinna og þurfi að huga meira að samruna og samvinnu einstakra sjóða og verkefna, stofnana og annarra sem vinna að þessum málaflokki.
Það kemur einmitt fram í verkefni nr. 2 sem heitir Aukin samvinna opinberra sjóða sem vinna að eflingu atvinnulífs. Og ég tek undir hvert orð þar sem segir: „Það er álit Byggðastofnunar að fenginni reynslu að samstarf þetta þurfi að vera með formlegum hætti á reglulegum samráðsvettvangi. Ekki er nægilegt að einungis forstjórar og stjórnarformenn viðkomandi sjóða hittist, heldur þarf að vera virkt samstarf á milli almennra starfsmanna einnig.“
Þarna er mjög nauðsynlegt að menn vinni betur. Þetta á við sjóði eins og Ferðamálasjóð, sem reyndar er kominn undir Byggðastofnun, Framleiðnisjóð landbúnaðarins, Orkusjóð, Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins og Byggðastofnun. Þessar stofnanir þurfa allar að vinna mun meira saman en nú er og auka upplýsingaflæði sín á milli til þess að auka skilvirkni þessa opinbera stuðningskerfis sem við svo sannarlega styðjum og stöndum að, en út úr því heildarkerfi mætti kannski koma meiri skilvirkni.
Ég sé að tíma mínum er senn að ljúka en ég vildi hlaupa hér á nokkrum verkefnum til viðbótar. Það er t.d. efling sveitarstjórnarstigsins. Ég hef aðeins heyrt það í umræðunni að menn hafa verið að gera lítið úr því verkefni en það er sannfæring mín að með því að efla sveitarstjórnarstigið vinnum við mjög vel að byggðamálum. Það verkefni sem nú er í gangi hefur m.a. lagt þær línur að leggja eigi meiri áherslu á nærþjónustuverkefni á sviði velferðarmála, að þau verði í auknum mæli hjá sveitarfélögunum. Einnig á atvinnuþróunarstarf, að sveitarfélögin komi meira að því og verði sterkari gerandi í því þróunarstarfi sem fram fer heima í héraði, að ég tali ekki um framkvæmd opinbers eftirlits sem gjarnan mætti koma nær þeim sem fyrir því verða.
Hér er einnig byggðaáætlun fyrir Eyjafjörð. Ég tel það mjög merkt verkefni en meginhugmyndin er að styrkja byggð við Eyjafjörð svo að fólki fjölgi þar á næstu árum, a.m.k. um 2%–3%. Þarna eru lagðar línur og mjög spennandi ef tekst að efla svæðið til mótvægis við höfuðborgarsvæðið á Miðnorðurlandi.
Hér er einnig verkefnið um að efla fiskeldi. Þar eru auðvitað endalaus sóknarfæri í íslensku atvinnulífi. Sjávarútvegsráðherra hefur stofnað sérstakan sjóð, AVS-sjóð, sem ætlað er að standa á bak við átak til að auka virði íslenskra sjávarafurða.
Hæstv. forseti. Ég sé að tíma mínum er að ljúka, en að lokum vil ég nefna listann í lok skýrslunnar um aðrar aðgerðir stjórnvalda. Það er ákaflega ánægjulegt að ráðuneyti hafi yfir höfuð áhuga á því að auka og vinna að verkefnum á landsbyggðinni, en þarna vantar greinilega ýmis verkefni sem ég held að hefðu mátt fljóta með og koma m.a. fram í ágætum bæklingi sem hæstv. iðnaðarráðherra hefur gefið út og fjallar um menntamál og fleiri góð mál sem verið er að vinna að á landsbyggðinni.