131. löggjafarþing — 14. fundur,  21. okt. 2004.

Umgengni um nytjastofna sjávar o.fl.

215. mál
[19:44]

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Hér er til umræðu þarft mál um sektarákvæði er varðar ýmis lög um stjórn fiskveiða og eftirlit með þeim, um umgengni um nytjastofna sjávar og veiðar innan og utan lögsögu, svo einhver dæmi séu tekin af lögum um sjávarútveg.

Hæstv. forseti. Ég taldi lengi að hægt væri að einfalda lögin um stjórn fiskveiða og gera breytingar. Ég tel reyndar enn að að því muni draga. Eins og kerfið hefur þróast á undanförnum árum þá held ég að það muni aldrei ganga upp til framtíðar. Ég tel að það geti aldrei gengið að menn tíni hverja fisktegundina á fætur annarri inn í kvótakerfið. Þegar grundvallarlögin um stjórn fiskveiða, sem nú eru í gildi, lög nr. 38/1990, voru sett þá settu menn inn í kerfið ýmsar breytingar varðandi framsal kvóta, leigu o.s.frv. og breyttu ýmsum ákvæðum sem áður höfðu verið í lögum um stjórn fiskveiða.

Fiskveiðum hefur verið stjórnað með ýmsum hætti síðan árið 1976, ef ég man rétt. Fyrstu lögin sem sett voru um fiskveiðar og nýtingu lögsögunnar voru um nýtingu landgrunnsins á sínum tíma, landgrunnslögin. En þetta er bara örstutt upprifjun á sögunni, virðulegi forseti.

Á undanförnum árum hefur tegundum í kvótakerfinu sífellt verið fjölgað. Það er sífellt verið að draga fleiri og fleiri fisktegundir inn í lagaverkið eða réttara sagt reglugerðaverkið. Það er jú hæstvirtur ráðherra sjávarútvegsmála sem ákveður hvort kvótasetja eigi þessa fisktegundina eða hina. Við gerum það ekki hér á Alþingi, að ákveða að sandkoli, skrápflúra eða skötuselur verði sett í kvóta. Það gerir hæstv. sjávarútvegsráðherra.

Það vekur margar spurningar þegar við sjáum hvernig öll þessi lög hafa þróast og allt reglugerðafárið sem þar kemur ofan á, m.a. hvort hægt er að hafa málin í þeim farvegi til framtíðar. Er yfirleitt ásættanlegt að sjávarútvegsráðherra geti gert tiltölulega einföld lög, sem sett voru árið 1984 um að taka upp kvótakerfi á fimm fisktegundum, svo flókin að þau séu nánast orðin óframkvæmanleg? Það hefur einmitt gerst smátt og smátt í gegnum lagasetninguna en þó einkanlega með því að tína sífellt fleiri fisktegundir inn í kvótakerfið og gera fisktegundir kvótaskyldar í veiðum þar sem þær eru nánast stakur meðafli. Þetta hefur hins vegar gerst.

Við búum við það að lífkerfið á hafsvæðinu við landið er að breytast ört. Miklar breytingar hafa orðið á síðustu þremur, fjórum árum með hlýnandi sjó. Fisktegundirnar hafa ekki hugmynd um að hæstv. sjávarútvegsráðherra hafi sett þær í kvóta og synda ekki bara við suðurströndina, eins og þær gerðu þegar þær voru settar í kvóta.

Eins og menn kannski muna voru veiðar á skötusel, þeirri virðulegu tegund, upprunalega settar í kvóta frá fjórum útgerðarstöðum, Þorlákshöfn, Vestmannaeyjum, Hornafirði og Grindavík. En þessi fisktegund hefur með hlýnandi sjó tekið sér það fyrir sporð, ekki fyrir hendur, að synda norður með Vesturlandinu og norður fyrir land. Ég hygg að hún sé um þessar mundir, með hlýnandi sjó, farin að nálgast heimabyggð hv. þm. Örlygs Hnefils Jónssonar, sem eftir því sem ég best veit býr ansi nærri Húsavík. Ætli skötuselurinn sé ekki kominn þangað og farinn að veiðast þar í grásleppunet. Mér kæmi ekki á óvart þótt ýmsum sem þar hafa stundað grásleppuveiðar áratugum saman verði nokkuð hverft við í fyrsta skipti sem þeir sjá skötusel í neti.

En nú er þetta bundið í kvóta og Norðlendingar mega una við það, ef þeir ætla að koma með þann fisk að landi og landa honum til verðs, að leigja kvótarétt fyrir þessum kílóum af skötusel af einhverjum sem fékk úthlutað þeim rétti hér suður á landi, (Gripið fram í: Ef þeir fá hann.) þ.e. ef þeir fá hann.

Það er hins vegar svo, af því að skötuselur er ágætismatur, að menn komast ágætlega yfir það að éta með konu sinni, börnum, fjölskyldu og vinum, nokkur kíló af skötusel og gera það. Þannig er skötuselurinn, sem kominn er norður fyrir Vestfirði, inn á Húnaflóa og norður fyrir land, ekki allur skráður í kvóta. Menn vita ekkert um hvað veiðist af skötusel hér við land.

Ég tek þetta dæmi til að sýna fram á fáránleikann sem fylgir lögunum um stjórn fiskveiða, að hæstv. sjávarútvegsráðherra skuli hafa þetta vald og noti það eins og hann hefur notað það á undanförnum árum.

Það er hægt að nefna margar fleiri fisktegundir sem dregnar hafa verið inn í reglugerðafarganið. Þá bætist auðvitað alltaf ein reglugerðin við, eitt ákvæði við reglugerðina og eitt ákvæði varðandi sektirnar. Þegar upp er staðið sitja menn uppi með það að fjöldamargar fisktegundir í kvótakerfinu veiðast sem meðafli, tegundir sem þeir sækjast alls ekkert eftir. Menn veiða nokkra fiska og ef vel ætti að vera þyrftu þeir að útvega sér kvóta fyrir viðkomandi tegund til að standast lagaákvæðin. Hin aðferðin er að losa sig við fiskinn fyrir borð. Það gera menn í ýtrustu neyð.

Inn í lögin um stjórn fiskveiða var hins vegar sett örlítið ákvæði um að menn mættu landa svokölluðum Hafró-afla. Það var eilítið til bóta. Það verður að segjast eins og er. Hafró-aflinn, sem ekki þarf að færa til aflamarks, held ég að hafi á síðasta ári fært okkur um 170 millj. kr. í tekjur, ef ég man rétt. Hann hefur fært okkur nokkur hundruð milljóna á þeim árum sem heimilt hefur verið að koma með brot af fiski að landi sem ekki telst til aflamarks, með því að tilkynna hann fyrir fram og selja hann á fiskmarkaði aðgreindan eftir tegundum.

Þetta er þó ekki öll sagan. Meðafli kemur um borð við alls konar veiðar. Það hefur t.d. gerst við kolmunnaveiðar og síldveiðar í flotvörpu, að menn hafa fengið meðafla og ekki endilega átt kvóta fyrir meðafla. Þar hafa sektarákvæðin hins vegar verið allt önnur, eins og menn geta séð í skriflegu svari sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn hv. þm. Magnúsar Þórs Hafsteinssonar á síðasta þingi varðandi það hvernig farið hefði verið með meðafla hjá nokkrum skipum sem fengu aðrar fisktegundir með kolmunna- eða síldarafla. Menn hafa því aldeilis ekki setið við sama borð að því er framkvæmd laganna varðar. Ég minni enn og aftur á hið klassíska dæmi af trillukarlinum sem fékk 12 kíló af karfa fyrir nokkrum árum. Hann var sviptur veiðileyfi í hálfan mánuð og borgaði stórsekt fyrir, yfir 400 þús. kr. ef ég man rétt.

Virðulegi forseti. Við Íslendingar höfum lengi verið ansi gúanósinnaðir og metið mikils þær veiðar. Þær hafa vissulega fært okkur störf og aukið auð þjóðfélagsins. Í botnfisknum, sem mest af eftirlitinu snýr að og Fiskistofa hefur mestar áhyggjur af og Hafrannsóknastofnun alveg sérstaklega að því er varðar þorskinn, eru hins vegar verðmætin. Botnfiskaflinn er um 25% af magninu en uppsjávarfiskur hins vegar, loðna, kolmunni og síld, um 72–73% aflans sé horft til magnsins. Þegar við skoðum hins vegar verðmætin fyrir þessar tegundir þá gefur botnfiskurinn, sem er ekki nema 25% af lönduðum afla, okkur um 75–80% af verðmætinu. En uppsjávarfiskurinn gefur okkur 12% af verðmætunum þegar þau eru metin. Þetta má auðvitað sjá í upplýsingum frá Hagstofunni um útflutningsverðmæti, aflaverðmæti og heildarafla. Samt er það svo að ef botnfiskveiðiaflinn kemur með í uppsjávarveiðarfærin þá fær hann ekki endilega í sömu meðferð.

Allt þetta reglugerðafargan hefur gert það að verkum að menn fá á sig dóma fyrir ótrúleg atvik. Það er engu logið til um hvernig það hefur gengið fyrir sig á undanförnum árum. Þess vegna er það mjög þarft mál, sem hér er flutt, um það að breyta lágmarkssektarákvæðunum. Þau eru oft á tíðum ekki í nokkru samræmi við tilefnið. Ég geri ekki lítið úr því að beita sektarákvæðum í alvarlegum brotum, þegar menn hafa vísvitandi, jafnvel árum saman eins og sést hafa dæmi um og verið viðurkennt, stundað brottkast á fiski í nánast hverri veiðiferð eins og mig minnir að hafi verið upplýst í máli vestur á Snæfellsnesi ekki alls fyrir löngu. Dómurinn í því máli varð hins vegar mildari en vegna 53 fiska um borð í bát norður í Tálknafirði. Þar var hver fiskur miklu dýrari miðað við dóminn frá Snæfellsnesi og allt annað verðlag á fiskinum á Snæfellsnesi. (Gripið fram í.)

Það er mikið ósamræmi í þessum málum og full þörf á að taka þau til umfjöllunar. Ég þakka hv. þm. Örlygi Hnefli Jónssyni fyrir frumkvæðið að því að flytja þetta mál, sem þingmenn úr öllum flokkum styðja. Ég vona sannarlega að málið fái góða meðferð í sjávarútvegsnefnd og síðan hér í þingsal. Ég vil láta það verða lokaorð mín að ég tel tíma kominn á það, miðað við að ríkisstjórnarflokkarnir virðast nú ætla að lafa á líminu hjá Framsókn út kjörtímabilið, að við þingmenn í stjórnarandstöðunni skoðum í alvöru hvort ekki eigi að taka það vald af sjávarútvegsráðherra að geta endalaust fjölgað fisktegundum í kvóta og gert framkvæmd fiskveiðistjórnarinnar miklu erfiðari og vitlausari en þyrfti að vera.