131. löggjafarþing — 14. fundur,  21. okt. 2004.

Umgengni um nytjastofna sjávar o.fl.

215. mál
[19:57]

Flm. (Örlygur Hnefill Jónsson) (Sf):

Herra forseti. Ég þakka háttvirtum þingmönnum sem hér hafa tekið til máls fyrir góð orð í garð frumvarpsins og ábendingar og þann stuðning við málið sem komið hefur fram í ræðum þeirra. Ég þakka einnig háttvirtum þingmönnum sem eru meðflutningsmenn mínir á þessu máli. Ég þakka þá góðu samstöðu sem mér finnst hafa orðið um þetta mál, jafnt í stjórn sem stjórnarandstöðu. Ég vænti þess að það fái beggja skauta byr í gegnum nefndina, sjávarútvegsnefnd, og þingið.

Að lokum ítreka ég að ég legg til að frumvarpinu verði vísað til sjávarútvegsnefndar.