131. löggjafarþing — 16. fundur,  2. nóv. 2004.

Umsvif varnarliðsins.

[13:54]

Böðvar Jónsson (S):

Hæstv. forseti. Ég vil eftirláta öðrum þingmönnum að flokka menn í fyrrverandi eða núverandi herstöðvarandstæðinga. Ég fagna því í hvert skipti sem menn hætta að vera herstöðvarandstæðingar og koma hinum megin við.

Það er ánægjulegt að heyra hjá hæstv. utanríkisráðherra að fundur sé fyrirhugaður 16. nóvember og það verður fróðlegt að heyra hvað kemur út úr honum. Mér finnst ástæða til þess að flytja honum bestu óskir um gott gengi fyrir hönd lands og þjóðar í þeim viðræðum.