Staðgreiðsla opinberra gjalda og virðisaukaskattur.
Guðjón A. Kristjánsson (Fl):
Hæstv. forseti. Ég er einn af meðflutningsmönnum þessa frumvarps og tel að hér sé verið að hreyfa miklu réttlætismáli sem ég vonast til að verði nú tekið til endanlegrar afgreiðslu á Alþingi og gert að lögum.
Menn geta lent í rekstrarörðugleikum af ýmsum toga og eru margar ástæður fyrir því. Sumir sem hafa rekið fyrirtæki eða verið með eigin rekstur hafa á engan hátt reynt að fela neitt í starfsemi sinni og allt hefur verið réttilega talið fram og öllum ljóst hverjar skyldur þeirra eru og hvað þeir eiga að greiða jafnvel þó að ekki væri mögulegt að inna allar greiðslur af hendi á réttum tíma. Þá er hart að refsingin skuli vera með þeim hætti sem hv. síðasti ræðumaður gerði mjög skilmerkilega grein fyrir. Ég óska honum til hamingju með fyrstu ræðu sína í þinginu og ég held að hann hafi undirstrikað það mjög vel í máli sínu hversu óréttlát afgreiðsla og meðferð á mönnum sem lenda í rekstrarörðugleikum getur verið þegar vanskil verða á vörslufé vegna greiðsluerfiðleika. Þetta eru talin saknæm brot og þar að auki eru þeir beittir bæði álögum og refsingum sem reiknuðum álögum ríkisins fylgir.
Ég tel að þetta sé mjög þarft mál eins og ég sagði í upphafi máls míns og ætla ekki að lengja umræðuna um þetta. Það eru margir flutningsmenn að þessu frv. og ég treysti því að það fái skjóta og góða meðferð og lögum verði breytt í þá veru sem málið leggst.