131. löggjafarþing — 17. fundur,  3. nóv. 2004.

Sláturhús í Búðardal.

141. mál
[14:14]

Jón Gunnarsson (Sf):

Frú forseti. Sláturhús í héruðum sem byggja nánast allt sitt á sauðfjárbúskap skipta afskaplega miklu máli. Í kjördæmaviku sem nefnd var hér fyrr í dag átti ég þess kost að heimsækja lítið sláturhús á Klaustri og nú geri ég mér betur grein fyrir því hversu miklu svona vinnustaður skiptir á svæði þar sem laun bænda sem stunda sauðfjárbúskap eru afskaplega lág.

Annað sem maður hefur kannski áhyggjur af í þessu sambandi er hinn mikli flutningur á sláturfé yfir verndarlínur ef mikil samþjöppun verður á sláturhúsum í landinu. Ég hefði áhuga á að heyra hjá hæstv. landbúnaðarráðherra hvort hann deili ekki með mér áhyggjum af þeim áhrifum sem þessir miklu flutningar geta haft á sauðfjárveikivarnir í þeirri erfiðu baráttu sem yfirvöld standa þar í. Mikilli varnarbaráttu sem þau virðast eiga í um þessar mundir.