131. löggjafarþing — 21. fundur,  8. nóv. 2004.

Nýting stofnfrumna úr fósturvísum til rannsókna og lækninga.

53. mál
[17:18]

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar, um nýtingu stofnfrumna úr fósturvísum til rannsókna og lækninga, sem ég flyt ásamt hv. þingmönnum Össuri Skarphéðinssyni, Margréti Frímannsdóttur, Ástu R. Jóhannesdóttur og Ágústi Ólafi Ágústssyni.

Efni tillögunnar er að Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að skipa nefnd sem geri úttekt á kostum þess og göllum út frá læknisfræðilegu, siðfræðilegu og trúarlegu sjónarmiði að heimila nýtingu stofnfrumna úr fósturvísum manna til rannsókna og lækninga á alvarlegum sjúkdómum.

Hér á landi er ekki heimilt samkvæmt lögum að vinna með stofnfrumur úr fósturvísum manna. Lög um tæknifrjóvganir frá 1996 banna hvers konar rannsóknir, tilraunir og aðgerðir á fósturvísum manna, ef þær eru ekki liður í glasafrjóvgunarmeðferð eða greiningum arfgengra sjúkdóma í fósturvísunum sjálfum. Á það hefur þó verið bent að þessi lög voru sett hér á landi tveimur árum áður en rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum manna hófust að ráði árið 1998.

Víða um heim fer nú fram umræða um notkun stofnfrumna úr fósturvísum manna í læknisfræðilegum tilgangi og fer umræðan fram á vettvangi siðfræði, vísinda, trúar og stjórnmála. Um er að ræða unga vísindagrein, en rannsóknir hófust á níunda áratugnum. Þegar hefur náðst mikill árangur í rannsóknum á eiginleikum stofnfrumna í því markmiði að nýta þær í náinni framtíð til lækninga á alvarlegum sjúkdómum. Þó að miklar vonir séu bundnar við notkun þessara frumna ber þess að geta að enn finnst engin lækning þar sem stofnfrumum úr fósturvísum er beitt.

Íslenskir vísindamenn hafa hins vegar unnið að rannsóknum á vefjasértækum stofnfrumum og í Blóðbankanum hefur verið unnið með blóðmyndandi stofnfrumur frá árinu 1995.

Það er ástæða til þess að geta þess að fyrir um ári var birt ítarleg grein um stofnfrumurannsóknir í Morgunblaðinu. Þar kom fram að í Blóðbankanum hafi verið unnið með blóðmyndandi stofnfrumur frá 1995 en þá einangruðu Kristján Orri Guðmundsson, dr. Leifur Þorsteinsson, líffræðingur í Blóðbankanum, og dr. Sveinn Guðmundsson, forstöðulæknir Blóðbankans, þær úr fylgju- og naflastrengsblóði í samstarfi við prófessor Ásgeir Haraldsson á Barnaspítala Hringsins.

Ég og einn annar flutningsmaður frumvarpsins, hv. þm. Össur Skarphéðinsson, gerðum okkur ferð í Blóðbankann fyrir skömmu þar sem við kynntum okkur þessi mál. Það er alveg ljóst að þar fer fram mjög merkileg rannsókn vísindamanna á stofnfrumum sem vert er að gefa gaum. Við sáum í heimsókninni í Blóðbankann að vísindamenn sem að þessu mikilvæga verki vinna búa við mjög þröngar og erfiðar aðstæður og ljóst að við þurfum að búa miklu betur að vísindamönnum okkar til þess að takast á við þetta brýna framtíðarverkefni á sviði læknavísinda.

Þá er nýlega hafin hér á landi stofnfrumumeðferð sjúklinga á Landspítala – háskólasjúkrahúsi, en Íslendingar hafa þurft að sækja slíka meðferð til útlanda. Slíkri meðferð er beint gegn ýmsum illkynja blóðsjúkdómum. Komið hefur fram í fjölmiðlum að eigin stofnfrumur hafi verið græddar í sex einstaklinga hér á landi á þessu ári eftir lyfjameðferð við illkynja blóðsjúkdómum, en batavonir sjúklinga hafa aukist mjög við þá meðferð.

Í nýlegu viðtali við Þórarin Guðjónsson, doktor í frumulíffræði, kemur fram að stofnfrumurannsóknir miði að því að nýta stofnfrumur til lækninga á ýmsum vefjarýrnunarsjúkdómum þar sem frumur hafa skemmst. Sérstaklega hafi sjónum verið beint að svokölluðum stofnfrumum úr fósturvísum manna, þ.e. fósturvísum sem verða til við glasafrjóvganir og er ekki ætlað að verða að fóstrum og því eytt. Rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum eru umdeildar, ekki síst út frá siðfræðilegum sjónarmiðum. Til marks um það má benda á að stofnfrumurannsóknir voru mikið hitamál í nýafstöðnum kosningum í Bandaríkjunum en Bush forseti bannaði opinberan fjárstuðning ríkisins við rannsóknir á stofnfrumum úr fósturvísum, en Kerry, frambjóðandi demókrata til forsetakjörs, sagði að hann mundi aflétta þessu banni ef hann næði kjöri. Þetta er til marks um það að hér er auðvitað mjög umdeilt mál á ferðinni.

Rannsóknir vísindamanna beinast fyrst og fremst að því að nýta með upplýstu samþykki, sem er mjög mikilvægt, kynfrumugjafa umframfósturvísa sem verða til við glasafrjóvganir og ella yrði eytt. Enn sem komið er hefur ekki fengist nein niðurstaða um það hvort hægt sé að nota stofnfrumur til lækninga, en vísindamenn beina sjónum sínum að því að hægt sé að lækna sjúkdóma eins og alzheimer, sykursýki, mænuskaða og parkinsonveiki.

Það vakti athygli mína í Daily Mail, sem ég sá í gær og kom út í októbermánuði, grein um hvað stofnfrumur fá áorkað í lækningamætti. Þó í því tilviki hafi verið farin leið og gengið lengra en við leggjum til í frumvarpinu um nýtingu stofnfrumna, en við leggjum einungis til að heimilt sé að nýta umframfósturvísa sem verða til við glasafrjóvganir sem ella yrði eytt er hér mjög merkilegt dæmi um hvað stofnfrumur fá áorkað í lækningamætti. Í greininni kom fram að blind 64 ára gömul kona í Bandaríkjunum fékk sjónina aftur eftir að læknar græddu í hana frumur úr fóstri sem hafði verið eytt. Læknarnir sem framkvæmdu aðgerðina segja að þessi góði árangur veki vonir um að hægt verði að hjálpa fjölda fólks með þessum hætti í framtíðinni, en aðgerðin var framkvæmd af læknateymi við háskóla í Kentucky. Þeir fjarlægðu sjónhimnufrumur úr fóstri sem hafði verið eytt og græddu þær í vinstra auga konunnar. Fyrir aðgerðina var umrædd kona blind á vinstra auga og hafði mjög litla sjón á hægra auga. Talið var að hún yrði algjörlega blind innan fárra ára en með þessari lækningameðferð hefur hún nú næga sjón með vinstra auganu til að geta lesið bækur og tölvupóst.

Ég nefni þetta sem dæmi um hvað hér eru á ferðinni merkileg vísindi í læknavísindunum og hvað hægt er að gera með stofnfrumur í lækningaskyni.

Ástæða er til að ítreka að ekki liggur enn fyrir hvort hægt verði að nota stofnfrumurnar til lækninga. Sumir vara líka við of mikilli bjartsýni í þessum efnum. Í Læknablaðinu á sl. ári er grein um eiginleika stofnfrumna; frumusérhæfing og ný meðferðarúrræði eftir Þórarin Guðjónsson og Eirík Steingrímsson. Þar kemur eftirfarandi fram í samantekt þeirra um efnið, með leyfi forseta:

„Ekki leikur nokkur vafi á að rannsóknir á stofnfrumum hafa veitt mikilvægar upplýsingar um þroskun og sérhæfingu frumna. Auk þess er ljóst að miklar vonir eru bundnar við notkun stofnfrumna til lækninga. Vara skal þó við of mikilli bjartsýni enda oft erfitt að yfirfæra niðurstöður sem fást í frumurækt eða dýramódelum yfir á manninn.“

Síðar í samantektinni segir: „Sem stendur er ómögulegt að svara spurningunni um það hvort frekar eigi að nota stofnfrumur úr fósturvísum eða fullorðinsstofnfrumur til lækninga enda eru frekari rannsóknir nauðsynlegar áður en þeirri spurningu verður svarað. Enn fremur er enn ekki ljóst hvort hentugra verði að græða stofnfrumurnar sjálfar í sjúklinga eða leyfa þeim að sérhæfast að hluta eða öllu leyti í rækt fyrir ígræðslu.“

Í nýlegri grein í Læknablaðinu kemur fram að í mörgum löndum hafi verið losað um hömlur á rannsóknum á stofnfrumum úr fósturvísum. Svíar og Bretar eru mjög virkir í slíkum rannsóknum, en þær eru t.d. bannaðar í Noregi, og í Danmörku er nú mjög til umræðu að leyfa þær. Þórarinn Guðjónsson, doktor í frumulíffræði, segir í greininni að til sé að verða ný vísindagrein innan lífvísindanna sem nefna megi vefjaverkfræði. Standi rannsóknirnar undir væntingum séu í raun fá takmörk fyrir því til hvers megi nota stofnfrumur. Þar á hann bæði við viðgerðir á vefjum og uppbyggingu heilla líffæra en þar við bætist að stofnfrumur gætu nýst afar vel til þess að prófa á þeim virkni og sérhæfni lyfja. Með því móti sé hægt að stytta tímann sem nú fer í lyfjaprófanir á mönnum og draga verulega úr kostnaði við lyfjaþróun. Fram kom einnig hjá Þórarni að stofnfrumurannsóknir úr fósturvísum manna séu leyfðar í mörgum löndum, að sjálfsögðu með mjög ströngum skilyrðum sem varða siðfræðileg álitamál.

Ég tel fulla ástæðu til að taka það fram að umræðan um stofnfrumurannsóknir hefur blandast saman við umræðuna um einræktun sem hófst að ráði árið 1997 þegar vísindamönnum í Skotlandi tókst að þróa aðferð til að einrækta ána Dolly. Kjarni líkamsfrumu var fluttur yfir í kjarnalaust egg og á þann hátt var hægt að búa til einstakling sem innihélt sama erfðaefnið og var í líkamsfrumunni. Þegar talað er um einræktun er afar brýnt, virðulegi forseti, að gera greinarmun á einræktun í æxlunarlegum tilgangi og einræktun í læknisfræðilegum tilgangi. Í seinna tilfellinu er fósturvísirinn sem verður til við kjarnaflutning einungis ræktaður áfram þar til hann kemst á kímblöðrustig en þá er hægt að einangra stofnfrumur til rannsókna og/eða lækninga.

Rannsóknahópur í Newcastle á Englandi hefur nýlega fengið grænt ljós til einræktunar í læknisfræðilegum tilgangi. Áætlunin gengur út á að flytja kjarna úr líkamsfrumu sykursýkissjúklings yfir í kjarnalaust egg og einangra síðan stofnfrumur úr kímblöðrunni sem myndast. Á þann hátt er vonast til að sérhæfa megi frumurnar til þess að framleiða insúlín og græða þær aftur í sjúklinginn. Með þessu móti er hægt að komast fram hjá þeim stóra vanda sem læknavísindin eiga oft við að etja, sem sé að líkaminn hafni frumum sem komið er fyrir í honum. Þess ber að geta að flest nágrannalönd hafa sett lög sem banna einræktun manna í æxlunarlegum tilgangi en eru með til umfjöllunar möguleikann á einræktun í læknisfræðilegum tilgangi.

Í greinargerð með þingsályktunartillögunni er vísað í könnun sem var gerð hér á landi meðal íslenskra lækna, lögfræðinga og presta þar sem spurt var um viðhorf til notkunar stofnfrumna úr fósturvísum til lækninga. Það er skemmst frá því að segja, virðulegi forseti, að það er ítarlega farið yfir könnunina í greinargerð með málinu og niðurstaðan er sú, sem er nokkuð athyglisverð, að einungis 8% þátttakenda lýstu sig algerlega mótfallna slíkum lækningum og mikill meiri hluti áleit þær réttlætanlegar.

Ég fagna því að hæstv. ráðherra er viðstaddur umræðuna. Það er afar mikilvægt nú við 1. umr. að fá fram afstöðu hans til þessa mikilvæga máls. Við leggjum á það mikla áherslu að hægt sé að ná góðri samstöðu um þetta mál hér á hv. Alþingi. Það skiptir verulegu máli að við byrjum á að feta okkur inn á þessa braut. Hér er farið hægt í þetta mál. Við þurfum líka meira fjármagn til stofnfrumurannsókna heldur en vísindamenn hafa til umráða nú.

Ég spyr ráðherrann: Er hæstv. ráðherra reiðubúinn að beita sér fyrir því að hægt sé að efla hér á landi stofnfrumurannsóknir til lækninga og að veitt verði til þess fjármagn?

Síðan spyr ég hæstv. ráðherra hvort hann telji rétt að kannaðir verði kostir þess og gallar út frá læknisfræðilegu og siðferðilegu sjónarmiði að heimilað verði að nota stofnfrumur úr fósturvísum til lækninga alvarlegra sjúkdóma eins og hér er lagt til.

Ég vil minna á það hér í lokin að það hefur verið mjög kallað eftir því að þessi umræða yrði tekin upp á Alþingi sem ég hef hér og aðrir þingmenn Samfylkingarinnar beitt okkur fyrir. Það hefur verið kallað eftir því víða í vísindaheiminum að hér á landi yrði farið að ræða þessi mál eins og annars staðar er gert. Það kemur t.d. fram í fræðigrein í Læknablaðinu árið 2003, með leyfi forseta, að nauðsynlegt sé að Ísland taki afstöðu til notkunar stofnfrumna úr fósturvísum í læknisfræðilegum tilgangi líkt og nágrannalöndin og aðrar þjóðir hafa gert á síðustu árum. Viðfangsefnin séu flókin og krefjist nokkurrar grunnþekkingar líkt og önnur siðferðileg álitamál lífssiðfræðinnar. Þörf sé bæði á almennri og þverfaglegri umræðu um mál af þessu tagi áður en samfélagið velur hvernig á að nýta þau tækifæri sem ný þekking og tækni skapa.

Virðulegi forseti. Ég sé að tíma mínum er lokið, en ég ítreka að ég held að mikilvægt sé að þessi umræða fari fram á meðal fagfólks, stjórnmálamanna og almennings eins og kallað hefur verið eftir af vísindaheiminum. Það er megintilgangur þessarar tillögu og ástæða þess að við fórum af stað með hana hér inn í þingið, en markmiðið með flutningi hennar er að Alþingi móti stefnu um hvort heimila eigi með lögum að nota stofnfrumur úr fósturvísum manna til rannsókna og lækninga alvarlegra sjúkdóma.

Ég legg til málinu verði vísað til síðari umr. og hv. heilbrigðisnefndar að lokinni þessari umræðu.