Sameining Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.
menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):
Frú forseti. Hv. fyrirspyrjandi Kolbrún Halldórsdóttir hefur beint til mín nokkrum spurningum og ég mun svara athugasemdum hennar í lok þessa svars míns eða í seinna svari mínu en ég mun halda mig við það sem formið segir okkur, þ.e. að reyna að svara þeim spurningum sem voru lagðar fyrir mig á sínum tíma af hv. fyrirspyrjanda.
Fyrsta spurningin var: Hvað líður áformum um sameiningu Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík?
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var 19. október undirrituð viljayfirlýsing um stofnun einkahlutafélags sem taki yfir starfsemi Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands. Aðilar að þessari viljayfirlýsingu eru menntamálaráðherra, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Verslunarráð Íslands fyrir hönd sjálfseignarstofnunar, Verslunarráðs Íslands um viðskiptamenntun. Við undirritun samkomulagsins kom fram mikil ánægja allra með þennan áfanga og er þess vænst að sameiningin muni efla enn frekar menntun í landinu og þar með auka verulega samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Af hálfu ríkisstjórnarinnar er yfirlýsing þessi að sjálfsögðu háð því að Alþingi fallist á þær lagabreytingar sem nauðsynlegar eru til að af sameiningu háskólanna verði. Verður frumvarp sem inniheldur þær breytingar lagt fram á á Alþingi mjög fljótlega. Varðandi fjárskuldbindingar gagnvart hinum nýja skóla eru þær vitanlega sömuleiðis háðar samþykki hv. Alþingis.
Stefnt er að því að á næstu vikum verði gengið frá samþykktum fyrir einkahlutafélagið sem reki háskólann og hann fái formlegt starfsleyfi síðan frá ráðuneytinu. Það er stefnt að undirritun samnings sem taki til kennslu og rannsókna eigi síðar en í júní 2005 og mun hann ná til fimm ára. Við sameiningu verður til næststærsti háskóli landsins með öfluga tengingu við íslenskt atvinnulíf sem ætlað er að marka skólanum sérstöðu á komandi árum. Einnig verður sérstök áhersla lögð á að auka áhuga ungs fólks á raunvísindum og tæknigreinum og tryggja að gæði menntunar á þeim sviðum standist alþjóðlegan samanburð. Hvort tveggja er að mínu mati forsenda þess að hér verði áfram framþróun og að við eflum enn frekar þessa mikilvægu samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Önnur spurningin hljóðaði svo: Hverjar væru meginforsendur fyrir slíkri sameiningu ef af yrði?
Meginforsendurnar eru nokkrar varðandi þessa sameiningu. Í fyrsta lagi var af minni hálfu lögð áhersla á að nýr skóli mundi mæta aukinni eftirspurn eftir tækninámi. Tækninámið er lykilatriði í þessari sameiningu ásamt verkfræðináminu sem hefur vaxið mjög hratt á síðustu árum, þ.e. tækninámið. Mjög mörgum sem sótt hafa um vist í Tækniháskólanum á síðustu árum hefur t.d. verið vísað frá. Í öðru lagi er aukin áhersla á framboð á tækni- og verkfræðimenntun og það er í samræmi við ályktanir vísinda- og tækniráðs en hlutfallslega færri hafa stundað slíkt nám hér á landi en í þeim ríkjum sem almennt eru höfð til viðmiðunar í slíkum samanburði. Við höfum oft rætt um það í þessum ágæta sal hvernig hægt er að efla og auka tæknimenntað fólk. Í þriðja lagi var sú sjálfsagða krafa lögð fram að skólarnir tveir og þau samtök sem standa að þeim mundu ná saman um markmið og stefnu hins nýja skóla í samvinnu við menntamálaráðuneytið. Í fjórða lagi var lögð fram sú krafa af minni hálfu að hlúð yrði sérstaklega að frumgreinadeild Tækniháskóla Íslands og að sú starfsemi fengi áfram að blómstra.
Í þriðja lagi var spurt: Hvaða áhrif hefði möguleg sameining skólanna á tækifæri iðnaðarmanna til framhaldsnáms og hver yrðu afdrif raungreinadeildarprófs Tækniháskólans?
Eins og ég gat um áðan er sérstök áhersla lögð á það af minni hálfu að hinn nýi háskóli bjóði upp á nám sem er sambærilegt námi í frumgreinadeild Tækniháskóla Íslands. Þetta er afar mikilvæg leið fyrir fólk úr atvinnulífinu, fyrir iðnmenntaða menn og konur sem hafa hug á því að tengjast og fara inn í skólafarveginn aftur. Það hefur gefist afar vel.
Fjórða spurning var: Hafa kostir þess að sameina Tækniháskóla Íslands og verkfræðideild Háskóla Íslands verið skoðaðir til samanburðar?
Í svari við þessari spurningu verðum við að hafa í huga aðdragandann að fyrirhugaðri sameiningu Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Þessir tveir skólar höfðu álíka sýn á framtíðina. Báðir skólarnir lögðu mjög mikla áherslu á tengsl við atvinnulífið, tækni- og alþjóðaumhverfið. Það var svo komið að báðir skólarnir voru með framtíðarsýn sem stefndi að aukinni uppbyggingu tækni- og verkfræðigreina. Ég átti í upphafi þessa árs fundi með rektorum beggja skólanna sem leiddi í ljós að þeir höfðu sambærilegar skoðanir í mögulegri þróun skólanna. Ég taldi því einboðið að skoða þann möguleika hvort þessir skólar gætu hugsanlega farið út í aukna samvinnu og hugsanlega sameiningu. Síðan varð raunin sú að mikil áhersla var lögð af hálfu bæði forsvarsmanna Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands að þarna væri tækifæri sem menn ættu ekki að láta ganga sér úr greipum, tækifæri til að auka og fjölga tækni- og verkfræðimenntuðu fólki hér á landi og auka um leið samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.