Sameining Tækniháskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.
menntamálaráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):
Frú forseti. Það er erfitt að koma hingað upp eftir að hafa hlustað á þröngsýni og í rauninni afturhald í menntamálum þegar kemur að umræðu um menntastefnu. Það er alveg á hreinu að tæknimenntunin verður undirstaða þess sem kemur til með að vera í þessum nýja sameinaða háskóla og einn helsti drifkrafturinn sem verður þar innan veggja.
Ég vil sérstaklega undirstrika að það er svolítið sérstakt að vera að tala hér um sameiningarmál og það er kærkomið tækifæri fyrir okkur sem erum hér inni að tala um sameiningarmál háskóla en við hefðum aldrei rætt um sameiningu háskóla ef stefna til að mynda hv. þingmanns hefði verið uppi eða annarra stjórnarandstöðuflokka því þá hefðu ekki verið neinir sjálfstæðir háskólar til eða fjölbreytni í háskólamálum landsins í dag, því það átti ekki að veita öðrum félögum eða hópum eða einstaklingum tækifæri til að stofna frábæra háskóla (Gripið fram í.) eins og Háskólann á Bifröst, Háskólann í Reykjavík og fleiri skóla. Það vita allir að það hefur beinlínis verið talað niður til þeirra einkaskóla sem hafa verið starfræktir hér á landi og sjálfstæðu skólanna. Það er því eðlilegt að næsta skref í háskólamálum landsins verði að við reynum að huga að samvinnu, aukinni samvinnu og aukinni samræmingu og sameiningu eins og við erum að gera með þessum nýja, stóra og góða háskóla sem vonandi verður af. (Gripið fram í.)
Mér finnst það mjög sérstakt að verið sé að hnýta í það að menn sýni forsjálni með því að stofna háskólaráð. Eins og ég gat einmitt um áðan er þetta allt auðvitað háð samþykki, og ég vona að menn hafi verið að hlusta, allt er þetta háð samþykki Alþingis, samþykki þess hvaða fjármagn við komum til með að setja í þetta og hvaða meðhöndlun frumvarpið hlýtur hjá menntamálanefnd þingsins þegar þar að kemur og síðan þegar það kemur til afgreiðslu í þessum sal. Mér finnst menn einmitt sýna forsjálni í því að vera búnir að stofna háskólaráð í samvinnu við nemendur. (Forseti hringir.) Þeir hafa komið sérstaklega að undirbúningshópi varðandi sameininguna og þar af leiðandi fagna ég því sérstaklega að menn séu tilbúnir (Forseti hringir.) þegar þar að kemur til að fara af stað af krafti með þennan sameinaða háskóla.