Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Magnús Þór Hafsteinsson (Fl) (andsvar):
Virðulegi forseti. Mér finnst þetta alveg fráleitur málflutningur. Það er alveg með hreinum ólíkindum að hlusta á þetta. Ég minni á að í vikunni eða í síðustu viku voru sett herlög í Írak og akkúrat núna á þessari stundu stendur yfir gríðarlega hörð á árás á borgina Falluja. Menn falla þarna þúsundum saman að öllum líkindum. Stríðinu er hvergi lokið. Það eru stöðugar sprengjuárásir í Bagdad. Við fáum að heyra um það í hverjum einasta fréttatíma að svo og svo margir hafi látist í sjálfsmorðssprengjuárásum, bílsprengjuárásum og öðru þess háttar.
Því er alveg fjarri lagi að það eina sem standi eftir núna sé uppbygging í Írak. Stríðinu er hvergi lokið. Við sjáum ekki fyrir neinn enda á þessari ömurlegu styrjöld, því miður. Þetta er staðreyndin í málinu.