Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):
Virðulegur forseti. Hæstv. utanríkisráðherra sagði í upphafi ræðu sinnar áðan að það sé meginskylda fullvalda ríkis að tryggja öryggi og varnir lands og þjóðar. Það liggi til grundvallar af Íslands hálfu í væntanlegum viðræðum við Bandaríkin um varnarmálin. Ja, guð láti gott á vita, segi ég nú bara. Hvers vegna segi ég það? Jú, ég hef síðustu vikur fyllst miklum efasemdum um að núverandi ríkisstjórn sé yfir höfuð fær um að tryggja varnir okkar, mér þykir stjórnin vera ansi aum þegar kemur að þeim mikilvæga þætti. Mér þykir miður að þurfa að segja þetta en tilburðir og málaskýringar ríkisstjórnarinnar varðandi framtíð varnarliðsins hafa ekki verið sannfærandi, því miður. Það er ekki annað að sjá en að varnarliðið sé smám saman að færa sig af landi brott. Það hefur komið fram í umræðum á hinu háa Alþingi að hermönnum á vellinum fækkar stöðugt. Íslenskum starfsmönnum á Keflavíkurflugvelli, starfsmönnum varnarliðsins, fækkar stöðugt, Orion-vélarnar eru farnar, kafbátaleitarvélarnar, þotunum hefur fækkað mjög og ef ég man rétt eru aðeins fjórar þotur eftir og þær svífa hér um himingeiminn óvopnaðar að manni skilst. Það heyrir til tíðinda að sjá bandaríska þyrlu á flugi yfir Íslandi í dag. Þetta er allt og sumt hvað varðar varnarviðbúnað Íslands.
Mér finnst sú ríkisstjórn ansi aum sem ekki er fær um að gæta öryggis þegna sinna þegar þeim er ógnað. Ég tel að ógn hafi steðjað að okkur fyrir nokkrum vikum þegar við urðum þess vafasama heiðurs aðnjótandi að fá í heimsókn hinn svokallaða norðurflota rússneska hersins. Þetta er einn öflugasti floti heimsins sem hefur bækistöðvar sínar á Kólaskaga í Barentshafi norðaustur af Íslandi. Þessi floti lá hér við Norðausturland dögum saman, hátt í hálfan mánuð. Það var alveg með ólíkindum að verða vitni að slælegum viðbrögðum ríkisstjórnarinnar því að hér var um að ræða flotadeild sem bjó yfir gríðarlegum gereyðingarmætti í formi vopna. Ríkisstjórnin viðhafði engin mótmæli, a.m.k. var ekki hægt að sjá það. Hún viðhafði enga tilburði til að bægja flotanum á brott.
Við ræddum þessi mál að sjálfsögðu á hinu háa Alþingi. Margir þingmenn höfðu verulegar áhyggjur af þessum flota, enda er það ekki daglegt brauð að við Íslendingar fáum slíka heimsókn þétt upp að ströndinni.
Hæstv. dómsmálaráðherra lýsti því yfir í þessum ræðustól að Rússum væri í raun og veru heimilt að gera þetta, þeim væri heimilt að liggja hér dögum saman allt að 12 sjómílum frá ströndum landsins. Það má vel vera rétt að það standist samkvæmt alþjóðalögum, það skiptir ekki máli, en það er gersamlega óþolandi að slík flotadeild erlends ríkis, sem við erum ekki í neinu varnarbandalagi við, liggi í kannski 30 km fjarlægð frá ströndinni. Það er alveg með ólíkindum að ráðherra í ríkisstjórn Íslands skuli nánast þegjandi og hljóðalaust skrifa upp á það að erlendu ríki sé heimilt að gera slíkt, því það þýðir ef þetta á að standa að næst þegar Rússar koma hingað í heimsókn geta þeir lagst við akkeri úti á miðjum Faxaflóa. Þeir geta legið í sjónmáli við höfuðborgina með þennan flota.
Ég get ekki ímyndað mér annað en að Rússar hafi verið mjög ánægðir með viðbrögð íslenskra stjórnvalda því að við höfum í raun og veru veitt þeim í heyranda hljóti heimild til að hafa herskipalægi hér við land, aðstöðu hér við land, aðstöðu sem þá dreymdi um öll árin sem kalda stríðið geisaði. Þetta eru nú allar varnir landsins í dag.
Að sjálfsögðu áttu íslensk stjórnvöld að mótmæla þessu af öllum krafti, hæstv. utanríkisráðherra eða hæstv. forsætisráðherra og helst báðir. Það hefði átt að kalla sendiherra Rússa til fundar og afhenda honum opinber formleg mótmæli og biðja Rússa um að hypja sig á brott með flotann. Rússar sögðu að þessi floti væri hér við heræfingar. Hvað eru menn að gera þegar þeir stunda heræfingar? Jú, þeir eru að æfa sig í að gera árásir á óvininn. Og hvernig stendur á því að Rússar, þá sjaldan þeir senda þennan flota sinn á haf út — þeir gera það mjög sjaldan vegna þess að ástand rússneska flotans er mjög bágborið og Rússar hafa átt við mikla fjárhagsörðugleika að stríða — hvernig í ósköpunum stendur á því að þeir senda dýrustu og stærstu herskip sín til Íslands og láta þau vera hér við æfingar í tvær vikur? Væri ekki nær fyrir þá að láta þennan flota vera við æfingar í Barentshafi eða við strendur Norðvestur-Rússlands á þeirra eigin heimaslóðum til þess að æfa varnir síns eigin lands? Hvað voru þeir að gera hér?
Ég get ekki ímyndað mér annað en að Rússar hafi verið að æfa árás á Ísland. Það er erfitt að hugsa sér annað. Þarna var fullkomnasta orrustubeitiskip heimsins, Pétur mikli, þarna voru tundurspillar, þarna voru flugmóðurskip með orrustuþotur um borð. Þetta atvik varð þess valdandi að ég fór alvarlega að efast um að stjórnvöldum sé í raun og veru alvara þegar þau lýsa því yfir að þau líti á það sem meginskyldu sína að tryggja öryggi og varnir lands og þjóðar, þ.e. hið algera aðgerðaleysi sem maður varð vitni að þegar þessi floti kom hingað.
Ég ætla ekki að eyða mörgum orðum að því sem hefði getað gerst, það eru í sjálfu sér fræðilegar vangaveltur, en við vitum að sjálfsögðu að Rússar hafa margoft lent í alvarlegum slysum við heræfingar. Hið síðasta var þegar kjarnorkukafbáturinn Kúrsk fórst í Barentshafi árið 2000 og það var einmitt þessi flotadeild sem var þá við æfingar, nákvæmlega sömu skip. Við vitum ekkert um hvort rússneskur kjarnorkukafbátur hefur fylgt þessum flota eftir. Ég ætla rétt að vona að bandamenn okkar, Bandaríkjamenn, hafi fylgst með þessum flota þó að þeir hafi gert það úr undirdjúpunum. Það má a.m.k. segja um það að floti Bandaríkjamanna virðist vera miklu betur búinn en floti Rússa, sem betur fer, ekki síst hvað varðar öryggismál. Ég ætla svo sem ekki að fetta fingur út í það þó að þeir fari um hafsvæði okkar með sín herskip, við erum í varnarsamstarfi við Bandaríkjamenn og ég styð það eindregið og fetti ekki fingur út í það, en Rússa vil ég ekki sjá hér.
Hæstv. utanríkisráðherra vék að sjálfsögðu að stríðinu í Írak og það kom að auðvitað ekki á óvart, það hefði frekar þótt tíðindum sæta ef hæstv. utanríkisráðherra hefði sleppt því að tala um það stríð. Ég kemst að sjálfsögðu ekki hjá því, virðulegi forseti, að eyða nokkrum hluta af ræðutíma mínum til að minnast á hernaðarástandið í því landi. Flokkur minn, Frjálslyndi flokkurinn, hefur frá upphafi verið algjörlega andvígur þessu stríði, við höfum margoft fordæmt aðild okkar Íslendinga að þessari styrjöld sem hefur kostað tugi þúsunda manna lífið og það sér ekki fyrir endann á því ömurlega blóðbaði, því miður. Ég vil fá að minna á að við erum aðilar að þingsályktunartillögu sem stjórnarandstöðuflokkarnir hafa lagt fram á Alþingi um að Ísland dragi til baka stuðning sinn við þetta stríð sem við teljum ólöglegt og brjóta í bága við alþjóðalög og hafi gert allt frá upphafi.
Það er alveg rétt sem einn hv. þingmaður benti á áðan að í löndunum í kringum okkur fer núna fram mjög mikil og hörð umræða um réttmæti þessarar styrjaldar. Sú umræða er ekki ný af nálinni, hún hefur staðið yfir í marga, marga mánuði. Ég tók með mér að gamni mínu af skrifstofu minni blað sem ég fékk sent frá Danmörku í fyrra, það er danska Ekstra Bladet. Þetta er aukablað sem gefið var út fyrir ári síðan sem fjallar um styrjöldina í Írak á mjög gagnrýninn hátt og yfirskriftin er „Lygin um stríðið, stríðið um lygina.“ Mér finnst öll umræðan í kringum Íraksstríðið einmitt hafa einkennst mjög mikið af þessu frá upphafi, lygum og blekkingum. Ég ætla rétt að vona að þeir tveir menn sem tóku þá ákvörðun að gera okkur að aðilum að þessu stríði, að okkur forspurðum og að hinu háa Alþingi forspurðu, fái að svara fyrir það og helst fyrir þingnefnd, því að þetta stríð er gersamlega óásættanlegt á allan hátt.
Ég hjó eftir því að hæstv. utanríkisráðherra minntist í lok ræðu sinnar á að við Íslendingar værum að undirbúa málssókn á hendur Norðmönnum varðandi Svalbarðasvæðið. Það er mjög ánægjulegt að hæstv. utanríkisráðherra skuli einmitt hafa notað hluta ræðutíma síns til að ræða um hafréttarmál því föðurland vort hálft er hafið og landamæri okkar eru mörk 200 mílna lögsögu umhverfis Ísland. Mig langar til að spyrja hæstv. utanríkisráðherra nánar að því hvernig undirbúningnum að málssókn fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag gegn Noregi líði. Hér er talað um að gengið hafi verið frá ráðningu erlends sérfræðings til að rita ítarlega greinargerð fyrir stjórnvöld í þessu skyni.
Ég fylgdist grannt með því þegar við Íslendingar hófum deilur okkar við Norðmenn um þetta svæði fyrir 10 árum. Þá voru einmitt líka fengnir erlendir sérfræðingar til að rita greinargerð ef ég man rétt. Þá var Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. Mér leikur forvitni á að vita hvaða erlendi sérfræðingur þetta er. Þeir eru ekki svo margir í heiminum í dag sem hafa sérþekkingu á Svalbarðamálinu, enda er málið mjög sérstakt.
Eins og ég nefndi áðan byrjuðum við að deila við Norðmenn um þetta svæði fyrir 10 árum og mér finnst sorglegt að við skulum ekki hafa fylgt því eftir. Málið var sett í eins konar biðstöðu þegar samningar náðust við Norðmenn og Rússa um veiðar í Barentshafi á sínum tíma og síðan er eins og ekkert hafi verið unnið í þessu. Mér finnst það með hreinum ólíkindum því að Norðmenn hafa alla tíð sýnt okkur mjög mikla óbilgirni í málinu og vilja tileinka sér fullan yfirráðarétt, að manni virðist, yfir þessum gríðarstóra eyjaklasa í Íshafinu norður af okkur. Það eru ekki nema 700 sjómílur frá Íslandi til Svalbarða. Þeir eru að vinna sér ákveðinn hefðarrétt og á meðan klukkan tifar og árin líða festist rétturinn í sessi. Ég tel því mjög mikilvægt að við Íslendingar förum að herja á þá af fullri alvöru. Það er gersamlega ólíðandi að Norðmenn skuli einhliða hafa áskilið sér rétt til að stjórna fiskveiðum á þessu gríðarlega hafsvæði sem er 830 þúsund ferkílómetrar, stærri en öll íslenska efnahagslögsagan, og að við höfum ekki neinn rétt þarna.
Í vikunni var kynnt merkileg skýrsla á ráðstefnu í Reykjavík sem enn stendur yfir um loftslagsbreytingar í norðurhöfum. Þar kemur m.a. fram að ef rétt reynist að hitastig er að hækka á norðurslóðum muni einmitt svæði eins og Svalbarði geta haft verulega þýðingu hvað varðar auðlindanýtingu. Það muni verða auðveldara að nálgast verðmæti sem þarna eru. Við vitum að þarna er mikið af kolum, það er mjög sennilega olía og gas á hafsbotninum umhverfis Svalbarða. Þetta er mjög gamalt land, það er svo gamalt að þar hafa fundist spor eftir risaeðlur. Ég tel því mjög líklegt að þarna hafi einhvern tíma verið skógur og það er sjálfkrafa ávísun á að þarna sé að finna mikilvægar náttúruauðlindir. Þetta ætti að veita okkur enn á ný aukinn innblástur í því að krefja réttar okkar á svæðinu og stefna Norðmönnum þannig að við fáum loksins niðurstöðu í þetta mikilvæga mál, því sá yfirgangur sem Norðmenn hafa sýnt á Norður-Atlantshafi er gersamlega óþolandi og slæmt að hafa orðið vitni að því hve illa íslensk stjórnvöld hafa staðið sig í þessum málum á undanförnum árum. Ég vona svo sannarlega að bragarbót verði unnin á því.