Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Magnús Þór Hafsteinsson (Fl) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég var ekki að efast um að Rússar hefðu kannski einhvern lagalegan rétt til að vera hér með flotadeildina, en ég undrast að íslensk stjórnvöld skyldu þrátt fyrir það ekki mótmæla heimsókninni því að þarna var herdeild á ferð. Rússar sögðu að þeir væru að stunda æfingar. Við erum ekki í neinu varnarbandalagi við Rússa. Þeir voru ekki að æfa varnir Íslands. Þeir hljóta að hafa verið að æfa einhvers konar árásir, ég get ekki ímyndað mér annað. Varnarsvæði þeirra er ekki við Ísland, langt frá heimahöfnum þeirra á Kólaskaga, þannig að ég tel að þetta atvik hafi verið mjög alvarlegt. Hins vegar lýsi ég ánægju með að hæstv. utanríkisráðherra skuli þó upplýsa okkur um það núna að þyrlur varnarliðsins hafi verið staddar á Egilsstöðum um hríð og að þotur Bandaríkjamanna hafi fylgst með þessu. Það hefur ekki komið fram í fréttum, að því er ég best veit, og sýnir að það eru þrátt fyrir allt einhver töggur eftir í varnarliðinu þó að það hafi veikst allt of mikið á undanförnum árum.
Ég tel og vil koma því á framfæri að mér finnst að við ættum að ræða við Rússa um þetta atvik og lýsa opinberlega yfir óánægju okkar með að flotinn skuli hafa verið hér við æfingar. Hann hefur nákvæmlega ekkert að gera hér. Við erum í friðsamri sambúð við Rússa. Ég lít á þá sem vinaþjóð okkar þó við séum ekki í neinu varnarbandalagi við þá og það er algerlega ólíðandi að vinaþjóð okkar komi allt upp að 30 km frá ströndum landsins til að stunda heræfingar. Það finnst mér fullkomlega óskiljanlegt og ráðgáta að Rússum skuli yfirleitt hafa dottið þetta í hug.