Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):
Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svörin varðandi Norðurskautsráð. Það er gott að heyra að ekkert eitt ríkjanna í Norðurskautsráði hafi reynt að hafa áhrif á það hvernig niðurstöður eru birtar. Við getum þá væntanlega látið okkur hlakka til ráðherrafundarins 24. nóvember og niðurstaðna hans. Ég er þess fullviss að þau lönd sem eiga hlut að máli taka niðurstöður vísindarannsóknanna mjög alvarlega og munu taka mið af þeim við pólitískar ákvarðanir sínar um aðgerðir til að minnka losun gróðurhúsalofttegunda. Það er full þörf á því, eins og ég sagði í ræðu minni áðan, þó að menn fari eftir varlegustu spám, ég tala nú ekki um annað. Verkefnið er því svo sannarlega fyrir hendi.
Frú forseti. Mig langar rétt í blálokin að vitna í friðarverðlaunahafa Nóbels, Shirin Ebadi, lögmann frá Íran. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að hlusta á hana á laugardaginn var og hún talaði einmitt um rætur ofbeldis. Hún taldi rætur ofbeldis í Miðausturlöndum liggja í jarðvegi ófullburða lýðræðis, einræðisherranna og harðstjóranna, sem eru svo miklu víðar en var í Írak. Eigum við t.d. að tala um kóngana í Sádi-Arabíu? Þetta ófullburða lýðræði kemur m.a. fram í kúgun kvenna og þegar löndin sem búa við þær aðstæður búa svo yfir miklum náttúrulegum auðlindum sem skipta allan heiminn máli ásælast sterk og voldug ríki, e.t.v. ekki bein völd heldur áhrif á þessum slóðum.
Þessi blanda, sagði friðarverðlaunahafinn, stendur uppbyggingu lýðræðis í Miðausturlöndum, í Íran, Írak, Sádi-Arabíu og víðar, fyrir þrifum.