Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
utanríkisráðherra (Davíð Oddsson) (S):
Það er svo sem ekki nýtt að okkur greini á, mig og hv. þingmann sem talaði hér síðast. Ekkert er við því að segja í sjálfu sér.
Út af því sem hv. þm. sagði um Sharon, forsætisráðherra Ísraels, vil ég aðeins nefna að auðvitað á hann sína fortíð sem við þekkjum. Eru þar stór atvik uppi sem menn kannast við. Það er þó ekki endilega þar með sagt að hann geti ekki átt sín spor í átt til friðar — þrátt fyrir þá sögu alla. Við skulum muna eftir því að einn harðsnúnasti forustumaður Ísraels, Begin forsætisráðherra, sem hafði verið mjög harðsnúinn fyrir málstað Ísraels á árum fyrr — við þekkjum hvað þar var á ferðinni og ég ætla ekki að rifja það upp núna — náði einmitt samningum við Sadat, forseta Egyptalands. Allir þekktu hörku Richards Nixons gagnvart kommúnisma og þeirri afstöðu en það var einmitt hann sem opnaði hins vegar breyttar leiðir og hugsun gagnvart Kína. Margt er til í þeim efnum.
Ég var svolítið undrandi á því hvað menn brugðust illa við hugmyndum Sharons varandi Gaza-svæðið og sérstaklega þegar Bush Bandaríkjaforseti tók undir þær hugmyndir. Þessum hugmyndum var tekið mjög illa af þeim sem báru hag Palestínumanna fyrir brjósti, gerðu það af innileik og sannfæringu, tóku þessum hugmyndum illa og töldu að eiginlega fælist í þeim einhvers konar árás á hagsmuni Palestínumanna. Ég held að þetta hafi verið frekar góð tíðindi fyrir Palestínumenn í öllum þeirra raunum, ég er þeirrar skoðunar. Ég vek athygli á því að hvað sem mönnum finnst um Bush Bandaríkjaforseta er hann fyrsti Bandaríkjaforsetinn sem hefur lýst því yfir að hann telji að Palestína eigi á endanum að verða sjálfstætt ríki. Því hefur enginn annar Bandaríkjaforseti lýst yfir, hvorki fyrr né síðar. Þetta er staðreynd.
Þegar menn tala um haukana, menn á borð við Begin, Sharon, Nixon o.s.frv. — og það er út af fyrir sig rétt allt sem sagt er um fortíð þeirra í þeim efnum, að þeir hafi verið mjög afgerandi menn með afgerandi skoðanir — er það samt sem áður þannig að stundum eru það akkúrat þeir menn sem síðan verða brautryðjendur á öðrum sviðum.
Varðandi Afganistan. Hv. þm. orðar það eitthvað á þá leið að ég hefði látið eins og þar væri allt í himnalagi. Ég held að þar sé ekki nákvæmlega farið með það sem ég hef sagt þó að ég telji að miðað við þau ósköp sem þar voru áður, meðan talibanar réðu þar ferðinni, sé Afganistan orðin himnaríkissæluparadís. En af hverju eru þarna friðargæsluliðar og menn undir vopnum, ekki bara frá okkur auðvitað, heldur frá miklu öflugri þjóðum? Það er vegna þess að friðurinn er brothættur. Það eru menn sem vilja snúa til baka, ganga leiðina til baka.
Ég hlustaði með athygli á friðargæsluliðana okkar sem lentu í hremmingunum austur þar. Mér þótti athyglisvert að heyra einn þeirra lýsa því að 90% þjóðarinnar styddu þær aðgerðir sem þarna færu fram, 10% væru að reyna að eyðileggja þær. Hann nefndi sérstaklega hvað það væri rík og mögnuð tilfinning að sjá ungar stúlkur á leið í skóla í fyrsta skipti í þessu ríki. Hann nefndi það sérstaklega til sögunnar, þessi maður sem nýlega hafði orðið fyrir árásum í Afganistan þótt hann bæri friðargæslumerki okkar. Mér fannst eftirtektarvert og gott að heyra sjónarmið manna sem hafa verið á staðnum, að 90% þjóðarinnar styddu þá lýðræðisþróun, þá baráttu sem þarna væri á ferðinni, 10% væru að reyna að eyðileggja hana, koma þessu öllu í gamla vonda farið sem var þarna meðan Mulla Omar og þeir kumpánar stýrðu ferðinni. Auðvitað er ekki enn allt komið þar með friði og spekt vegna þess að verið er að vinna gegn því að lýðræðið komist á. Þó kusu 90% þjóðarinnar í kosningum öfugt við það sem spáð hafði verið. Það þætti gott í Evrópu. Það þætti gott í Bandaríkjunum að 90% þjóðarinnar kysu.
Mig langar að skjóta inn í að ég man eftir fréttum úr Melaskólanum þar sem kom fram í útvarpinu að menn hefðu orðið að bíða í korter við kjörklefana út af skipulagsleysi og voru orðnir hinir æstustu. Það virðist ekki vera í svona góðu lagi alls staðar eins og hjá okkur. Ég skýt því bara inn í hér, veit reyndar ekki hvort þetta á hér heima en þetta var svo athyglisvert.
Ég er þeirrar skoðunar að þótt við séum aldrei neinir aðalleikarar á heimssviðinu og eigum ekki að þykjast vera það og verðum hálfbjánaleg ef við þykjumst vera það eigum við ekki að láta það aftra því að við leggjum okkar lóð á vogarskálar, vogarskálar friðar vegna þess að friðurinn hlýtur að vera forsenda þess sem á eftir kemur, frelsisins, lýðræðisins og þar með batnandi hags þeirra sem viðkomandi land byggja. Ég er í hjarta mínu algjörlega sannfærður um að það sem við erum að gera í Írak og Afganistan, svo lítið sem það er sem við gerum, erum við að leggja litla lóðið á réttu vogarskálina. Hinum megin er uppgjöf og vonleysi. Við sköpum þó a.m.k. von um betri framtíð. Við erum að leitast við það og vonin í þessum hrjáðu ríkjum er heilmikils virði. Mjög lengi í þessu landi okkar áttum við ekkert nema von og kannski hélt hún í okkur líftórunni löngum. Við skulum ekki gera lítið úr því.
Nú ætla ég að ljúka ræðu minni svo að hv. þingmaður komist í andsvör. Hann er að hliðra til fyrir mér þannig að ég ætla að sjá til þess að ég geti svarað.