Utanríkismál, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Pétur Bjarnason (Fl) (andsvar):
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessar upplýsingar, sem eru að mörgu leyti ágætar, að hér er að draga úr þenslu. Ég er ekki viss um að hv. þingmaður hafi heyrt alla ræðu mína en það sem ég ræddi einmitt um, — viðmiðunartíminn sem ég er að tala um er lengri, hann er frá 1996 og mesta þenslan var líklega fram að árinu 2002–2003 eða svo en það eru mjög gleðilegar fréttir, sem ég þakka fyrir, að það skuli hafa dregið úr þessu — en það sem ég var að tala um var þetta: Þarf ekki að meta í hvað þessi kostnaður fer? Þær ánægjulegu fréttir að hann skuli ekki fara vaxandi eru út af fyrir sig góðar og eins það sem kom fram í skýrslunni, og ég gat líka um og taldi hrósvert, að það væri stöðugt aukning á samstarfi bæði ferðaþjónustuaðila og ýmissa viðskiptaaðila og utanríkisþjónustunnar um markaðssetningu. Því ber að fagna.
Það sem ég var aðallega að leggja áherslu á var að þetta gerðist með margvíslegum hætti. Það væri ekki samræmi milli útrásar íslenskra fyrirtækja og aukningar í utanríkisþjónustunni.
Það er vafalaust rétt að þetta er ákvörðun sem tekin er á Alþingi en það þarf ekki að þýða það að allir alþingismenn séu því samþykkir og eftir því sem ég hef fylgst með afgreiðslu þingsins hefur ekki verið eindrægni um allar aðgerðir sem þarna hafa verið gerðar þó svo að það hafi verið samþykkt. Ég held að það sé alveg ljóst.
Hvað það snertir að efla friðargæslustarfsemi þá kemur það einmitt inn á nokkur atriði sem ég ræddi um áðan að það er hlutur sem þarf að meta. Hvers eðlis er friðargæslustarfið sem við sinnum núna, hvernig hefur það breyst á undanförnum árum og í hvaða farvegi viljum við sjá það starf þróast á næstunni?