131. löggjafarþing — 27. fundur,  12. nóv. 2004.

Kjaramál kennara og skólastjórnenda í grunnskólum.

318. mál
[12:01]

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Í tilefni af umræðum um kjaramálin og tekjuskiptingu sveitarfélaga og það að grunnskólinn er nú fjármagnaður af sveitarfélögum eingöngu þá bendi ég á að út er komin skýrsla um styttingu náms til stúdentsprófs. Hún gerir ráð fyrir tilfærslu verkefna til grunnskólanna, aukinnar endurmenntunar og aukinnar námsráðgjafar.

Ég vil spyrja hæstv. menntamálaráðherra: Hver á að borga þetta?