131. löggjafarþing — 30. fundur, 15. nóv. 2004.
Rannsókn á þróun valds og lýðræðis.
21. mál
[18:06]
Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka ummæli hv. þingmanns og vek um leið athygli þingheims á því að nú hafa fulltrúar allra stjórnmálaflokka sem sæti eiga á Alþingi talað fyrir tillögunni og mælt með samþykki hennar. Ég fagna því.