131. löggjafarþing — 32. fundur,  17. nóv. 2004.

Atvinnurekstur í smáum fyrirtækjum.

95. mál
[12:51]

Hilmar Gunnlaugsson (S):

Hæstv. forseti. Ég fagna þessari umræðu um aðstæður smárra og meðalstórra fyrirtækja. Ég vil nota tækifærið og benda á að þó að verið sé að gera marga góða hluti getur ríkið gengið fram og leiðrétt ansi mikið óréttlæti sem á sér stað núna hjá þessum aðilum sérstaklega. Er ég þá að vísa til álags á staðgreiðsluskatt og virðisaukaskatt þar sem ríkið tekur 365% vexti af vanskilum í 10 daga fyrir utan dráttarvexti og fyrir utan allar refsingar sem gilda um þetta. Það eru lítil og meðalstór fyrirtæki sem lenda í þessum vanskilum og þurfa því að greiða þetta álag.

Ég vil benda á að ég hef lagt fram fyrirspurn til skriflegs svars til fjármálaráðherra um fjárhæð þessa álags og vona að svar komi við henni fljótlega en með þessu móti væri hægt að bæta hag þessara aðila verulega.