Símenntun.
Drífa Hjartardóttir (S):
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að vekja máls á mikilvægi símenntunar í landinu og þakka hæstv. ráðherra fyrir greinargóð svör. Eins og fram kom hjá ráðherra er gríðarleg aukning, bæði í símenntun og fjarnámi hér á landi og er það vel.
Það kom fram í fjárlaganefnd í gær þegar rektor Kennaraháskólans kom til okkar að 60% nemenda skólans eru í fjarnámi. Þetta er gríðarlegur fjöldi nema um allt land sem þannig auka við menntun sína og umræður um mikilvægi þessara nýju símenntunarstöðva á landinu verða seint of miklar, þ.e. hve miklu máli þessar útstöðvar sem eru um allt frá símenntunarstöðvunum skipta í fjarnáminu. Ef við förum hringinn í kringum landið og tínum þær til og merkjum með flöggum, þá er hringurinn nánast óslitinn kringum landið.