131. löggjafarþing — 32. fundur,  17. nóv. 2004.

Útvarp á öðrum málum en íslensku.

166. mál
[14:42]

Jón Gunnarsson (Sf):

Frú forseti. Það eru fleiri en fullorðna fólkið sem horfir á beinar útsendingar á fótbolta í sjónvarpinu. Það gera krakkar líka. Þetta sagði dóttir mín við mig á laugardaginn þar sem hún horfði á fótboltaleik og náði ekki að fylgjast með því sem þar fór fram á enskri tungu. Ég kem því hér upp þótt ég sé miðaldra karlmaður og tala máli barna í þessu máli.