Útvarp á öðrum málum en íslensku.
Magnús Þór Hafsteinsson (Fl):
Virðulegur forseti. Ég er frekar frjálslyndur þegar kemur að þessum málum, og útvarpi á öðrum málum en íslensku. Ég tel að Íslendingar hafi bara gott af því að heyra og sjá fjölmiðla á erlendum tungumálum. Það mun líklega auka víðsýni okkar og tungumálakunnáttu. Ég bendi á að umhverfi fjölmiðla er breytast gríðarlega hratt nú um stundir, sérstaklega með tilkomu netsins.
Notkun fólks á erlendum fjölmiðlum á erlendum tungumálum hygg ég að sé alltaf að aukast vegna þess að aðgengið hefur batnað. Maður er farinn að lesa fréttir á vef BBC eða CNN og á skandinavískum miðlum á hverjum degi. Þetta gerði maður ekki fyrir örfáum missirum. En nú er maður farinn að gera þetta daglega. Ég tel að þetta sé hreinlega hið besta mál. Ef einhverjir vilja útvarpa eða sjónvarpa á ensku eða skandinavískum tungumálum eða öðrum tungum hér á landi þá er það í góðu lagi.