131. löggjafarþing — 32. fundur,  17. nóv. 2004.

Aðsókn að Háskóla Íslands.

219. mál
[15:22]

Björgvin G. Sigurðsson (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fína fyrirspurn. Stjórnvöld hafa á undanförnum árum lagt stein í götu Háskóla Íslands og viðbrögðin við því hjá skólanum eru eðlilega að mæta því með aðgerðum eins og fjöldatakmörkunum og frávísunum. Frægt er hvernig skólinn vísaði frá, eins og við ræddum hér fyrr í dag, öllum umsóknum nemenda með stúdentspróf af starfsnámsbrautum, og er það mjög miður. Þetta fjársvelti og sinnuleysi sem skólinn hefur orðið fyrir mörg undanfarin ár af hálfu stjórnvalda er ákaflega leitt í því umhverfi sem við búum í núna.

Einnig birtist þetta ástand í þeirri hækkun sem varð á skráningargjöldum nemenda í Háskóla Íslands. Þau hækkuðu um 40% og geta nú varla kallast annað en hrein og klár skólagjöld. Fyrst svo er ættu hæstv. ráðherra og menntamálayfirvöld að kalla hlutina sínum réttu nöfnum. Um er að ræða skólagjaldainnheimtu Háskóla Íslands til að mæta fjárhagsvanda sínum sem er tilkominn vegna fjársveltis stjórnvalda. Þessu skulu menn halda til haga.