Lögfræðiaðstoð við þolendur heimilisofbeldis.
Fyrirspyrjandi (Jónína Bjartmarz) (F):
Herra forseti. Á ríkisstjórnarfundi í ágúst 2002, nánar tiltekið 30. ágúst, var samkvæmt frétt í Morgunblaðinu daginn eftir ákveðið að tillögu dómsmálaráðherra að leggja 1 milljón kr. af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar í tilraunaverkefni innan slysa- og bráðasviðs á Landspítala – háskólasjúkrahúsi um að koma á fót sérhæfðri móttöku, aðstoð og stuðningi við þolendur heimilisofbeldis þeim að kostnaðarlausu.
Að sögn þáverandi dómsmálaráðherra var fyrirmyndin neyðarmóttaka vegna nauðgunar sem býður upp á sérhæfða læknis- og hjúkrunarþjónustu, sálfræði- og félagsráðgjöf og aðstoð löglærðs starfsmanns. Fréttinni fylgdi að verkefnið yrði undirbúið á haustmánuðum, þ.e. 2002, og að starfsemin ætti að geta hafist í byrjun árs 2003.
Í maí 2003 var síðan samkvæmt fréttatilkynningu undirritaður samningur hæstv. þáverandi dómsmálaráðherra og slysa- og bráðasviðs um eingöngu sérhæfða lögfræðiaðstoð og 2 millj. kr. framlag dómsmálaráðuneytisins á tveimur árum til að greiða fyrir þá tegund aðstoðar við þolendur heimilisofbeldis, þ.e. sérhæfða lögfræðiaðstoð.
Í fréttatilkynningunni var vísað til niðurstöðu nefndar þriggja ráðuneyta sem skipuð var 18. ágúst 1997 og var falið að gera tillögur að lagabreytingum, forvarnaaðgerðum og hjálparúrræðum fyrir þolendur þessa ofbeldis, en sú nefnd hafði lagt þetta til, þ.e. sérhæfða móttöku þar sem þolendur gætu leitað nauðsynlegrar aðstoðar og stuðnings sér að kostnaðarlausu. Í þeirri fréttatilkynningu sagði jafnframt að fjöldi koma á slysa- og bráðasvið vegna þessara ofbeldisbrota næmu um 140 á hverju ári.
Síðan þetta var hefur lítið til þessarar aðstoðar spurst fyrr en nú nýlega þegar starfsmaður neyðarmóttöku vegna nauðgunar upplýsti í dagblaðsviðtali að aðeins tvær konur sem hafi leitað til slysa- og bráðadeildar hafi notið þessarar aðstoðar. Það segir um ástæðuna að það hafi fyrst og fremst verið vegna þess að ekki hafi verið ákveðið með hvaða hætti þjónustan skuli veitt, vegna anna á deildinni og m.a. þurfi að þjálfa starfsfólk sérstaklega til að þekkja einkenni heimilisofbeldis og til að geta boðið aðstoð, og allt kosti þetta undirbúning og fjármuni sem ekki hafi verið til staðar.
Herra forseti. Fyrirspurn mín til hæstv. dómsmálaráðherra lýtur að því hvernig staðið hafi verið að því að koma á fót þessari aðstoð, hversu margir þolendur hafi notið hennar og síðast en ekki síst hvort uppi séu áform um að efla sérhæfða móttöku og lögfræðiaðstoð við þolendur heimilisofbeldis.