131. löggjafarþing — 32. fundur,  17. nóv. 2004.

Lögfræðiaðstoð við þolendur heimilisofbeldis.

255. mál
[18:52]

dómsmálaráðherra (Björn Bjarnason) (S):

Herra forseti. Ég þarf í raun og veru ekki að bæta neinu við það sem ég sagði áður, bara minna á að það er samkomulag um ráðstöfun á því fé sem þarna er um að ræða. Það hefur enginn breytt því samkomulagi en ef ætlunin er að nota fjármunina til annars en að bregðast við á grundvelli samkomulagsins þá er það náttúrlega alveg nýtt álitamál og spurning hvort breyta á samkomulaginu. Ég tel hins vegar að hægt sé að undirbúa þetta og setja þá verklagsreglu sem ég nefndi án þess að hróflað sé við því samkomulagi eða þessir fjármunir endilega nýttir til þess. Þetta er spurning um ákveðnar vinnureglur sem menn setja sér og vonandi tekst að setja þær. Þetta hefur verið rætt á vettvangi dómsmálaráðuneytisins eftir að ég ræddi við forstöðumenn þessa ágæta sviðs, slysa- og bráðasviðs Landspítalans, og mönnum er ljóst að þarna er viðfangsefni sem þarf að leysa. Ég tel að unnið sé að því og að það séu líka fjármunir fyrir hendi til að gera hluti á þessu sviði. Mér finnst að ljúka eigi þessu tilraunaverkefni og sjá síðan hvað tekur við.