Fjáraukalög 2004.
Frsm. meiri hluta fjárln. (Magnús Stefánsson) (F) (andsvar):
Virðulegur forseti. Mér finnst hv. þm. ekki færa rök fyrir þeim fullyrðingum sem komu fram í ræðunni. Er hann sem sagt að halda því fram að það starf sem íslenskir friðargæslumenn taka þátt við friðargæslu og uppbyggingarstarf í Afganistan og því verkefni að Ísland hefur yfirstjórn yfir flugvellinum í Kabúl, séu vopnaðar hernaðaraðgerðir? Ég verð aftur að spyrja hv. þm. og inna hann eftir dæmi um það að við stöndum í vopnuðum hernaðaraðgerðum. Mér finnst þetta ekki skýring og ekki sæmandi að tala með þessum hætti.