Fjáraukalög 2004.
Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Jón Bjarnason) (Vg) (andsvar):
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þm. Magnúsi Stefánssyni að það er afleitt að þurfa að tala með þessum hætti. Sú ákvörðun um að setja Íslendinga undir vopn í Kabúl undir yfirskini svokallaðra friðargæslustarfa án samþykkis Alþingis og sú ákvörðun að taka þátt í og vera sérstakur stuðningsaðili innrásarinnar í Írak án þess að það hafi nokkuð verið rætt hvorki í utanríkismálanefnd né á Alþingi er hörmulegt. Ég get ekki annað en sagt svipað og yfirmaður NATO í Kabúl eða eitthvað í þessa veruna: „Fyrir okkur eru þetta hermenn en þið Íslendingar ráðið hvað þið kallið það.“
Ég verð að ítreka að Íslendingar eiga miklu frekar að taka þátt í friðargæslustörfum og friðarstarfi sem friðflytjendur, þátttakendur í öðrum verkefnum, heilbrigðismálum, við að byggja upp heilbrigðiskerfi og styrkja atvinnulíf en ekki að bera vopn og vera hluti af erlendum her í fjarlægu landi í stríðsátökum.