Fjáraukalög 2004.
Jón Gunnarsson (Sf):
Frú forseti. Við ræðum í 2. umr. frumvarp til fjáraukalaga sem útbýtt var á Alþingi þann 5. október eða fyrir sléttum 30 virkum dögum síðan. Í umræðunni sem fram fór 10. október kom fram að mikil þensla er í íslensku efnahagslífi og tekjur ríkissjóðs nánast í sögulegu hámarki. Milli 1. og 2. umr. kom meiri hluti fjárlaganefndar með talsvert miklar breytingar og breytingartillögur sem ég mun fara frekar yfir á eftir. Í upphafi var fjáraukalagafrumvarpið lagt fram með afgangi, þ.e. að tekjur höfðu aukist meira en útgjöld þó hvort tveggja hafi aukist talsvert mikið frá þeim fjárlögum sem við samþykktum fyrir árið 2004.
Upphaflega frumvarpið var lagt fram með tekjum upp á 8,2 milljarða og gjöldum upp á 6,3 þannig að afgangurinn átti samkvæmt því að verða rétt tæpir 2 milljarðar eða 1.902 milljónir. Hlutirnir gerast þó hratt á fleiri stöðum en í efnahagslífinu og nú, réttum 30 virkum dögum frá framlögn, hefur tekjuáætlunin breyst um 1.056 millj. kr. eða 35 milljónir á hverjum virkum degi frá því að frumvarpið var lagt fram.
Enn meiri munur er á gjaldahliðinni en gjaldahliðin hefur aukist upp á 2.968 milljónir eða rétt tæpar 100 milljónir á dag frá því að frumvarpið sá dagsins ljós. Meiri hluta fjárlaganefndar hefur því með breytingartillögum sínum að mestu tekist að eyða þeim afgangi sem á fjáraukalagafrumvarpinu var og verða samkvæmt þessu fjárlög ársins 2004 að mestu leyti í jafnvægi milli tekna og gjalda.
Maður hefði haldið að í lok september eða í byrjun október væri hægt að segja með nokkurri vissu um þróun tekna og gjalda hjá ríkinu, a.m.k. með mun meiri vissu en hér kemur fram. Frumvarpið til fjáraukalaga sem við ræddum í 1. umr. þann 10. október var í nokkrum meginatriðum allt annað frumvarp en við ræðum hér með þeim miklu breytingum sem á því hafa orðið. Aðeins til að hnykkja á þessu atriði enn frekar þá vil ég segja að tekjuhlið frumvarpsins hefur breyst um tæp 13% og gjaldahliðin um hvorki meira né minna en tæp 47% á milli þessara tveggja umræðna á aðeins 30 virkum dögum. Er ekki rétt, frú forseti, að við förum að velta því fyrir okkur í fullri alvöru hvernig finna megi leiðir til að áætlanir fjármálaráðuneytisins geti orðið markvissari en raunin hefur verið ansi lengi. Það hlýtur að vera hægt að sjá fyrir með meiri vissu og meiri nákvæmni bæði útgjöld og tekjur en nú.
Í ræðu minni við 1. umr. gerði ég stöðugleikann að umræðuefni og hversu hjáróma allt tal um stöðugleika er í raun miðað við þær miklu breytingar sem kynntar eru í fjáraukalagafrumvarpi á áætlunum hinna ýmsu þjóðhagsstærða milli þess sem fjárlög ársins 2004 gera ráð fyrir og þess fjáraukalagafrumvarps sem við fjöllum um hér. Skoðum þann stöðugleika aðeins betur.
Aukningin í einkaneyslunni er helmingi meiri en fjárlögin gerðu ráð fyrir og sú aukning skýrir að langmestu leyti tekjuauka ríkissjóðs af veltusköttunum. Það má segja að yfirdrættir og hagstæð lánakjör til einstaklinga séu að skila vel í kassann fyrir ríkissjóð. Skuldsetning heimilanna er nú meiri en ætla verður að þau þoli til lengdar og maður hefði haldið að það væri óvarlegt að gera ráð fyrir því við eyðslu á tekjum ríkisins að aukning á einkaneyslu verði viðvarandi og að sú mikla aukning geti verið bensín á eyðsluvél ríkisins eins og hún hefur verið á þessu ári. Aukning fjárfestinga hefur verið helmingi meiri en ráð var fyrir gert, fjárfestingar hafa ekki aðeins aukist um 8,5% eins og frumvarpið gerir ráð fyrir heldur um 17,25% og malað gull í virðisaukaskattshluta ríkiskassans.
Mikil aukning er á innflutningi vöru og þjónustu og er 122% meiri en forsendur gerðu ráð fyrir. Það er bullandi stöðugleiki eða hvað?
Taflan á bls. 51 í fjáraukalagafrumvarpinu sýnir okkur svo ekki verður um villst að skekkjan í spá fjármálaráðuneytisins um magnbreytingar helstu þjóðhagsstæðra er í flestum liðum upp á helming eða meira. Ég hef enga trú á því að vinnubrögð við mælingar og áætlanir séu svo slæleg heldur hlýtur ferðin á efnahagslífinu að vera svona miklu meiri en ráð var fyrir gert og enginn stöðugleiki á ferðinni, a.m.k. ekki í þeirri hefðbundnu merkingu sem orðið stöðugleiki hefur í hugum flestra. Í hugum stjórnarliða virðist það orð aftur á móti notað sem klisja til að réttlæta oft og tíðum mjög skrýtnar ráðstafanir og ákvarðanir, klisja sem í raun er ekkert að marka ef hún er lögð undir mælistikur þjóðhagsstærða og þeirra miklu breytinga sem þar eru.
Tvennt er það sem er þó athyglisvert í ljósi þeirrar staðreyndar að gósentíð ríkir á tekjuhlið fjárlaga nú um stundir en það er annars vegar sú staðreynd að auknar tímabundnar tekjur skila sér ekki í auknum afgangi hjá ríkissjóði í höndum núverandi hæstv. fjármálaráðherra og hitt að ráðstöfunartekjur á mann og kaupmáttur ráðstöfunartekna eykst ekki í sama mæli og forsendur gerðu ráð fyrir. Hagur ríkisins vænkast þannig talsvert umfram spár en hagur einstaklinga ekki í sama mæli.
Helstu breytingar á tekjum gefa til kynna þá miklu þenslu sem nú á sér stað og ber þar hæst að fjármagnstekjuskattur á einstaklinga var verulega vanáætlaður í fjárlögum ársins og skilar yfir 2.000 millj. kr. meiri tekjum en ráð var fyrir gert. Fjármagnstekjuskatturinn er í eðli sínu að mestu skattur á einstaklinga og ekki alls fyrir löngu fékk ég skriflegt svar frá hæstv. fjármálaráðherra við fyrirspurn minni um fjármagnstekjuskatt. Þar komu ýmsar mjög fróðlegar staðreyndir fram um hvers konar skattur þetta er. Þar kom í ljós að á árinu 2003 höfðu tæplega 77 þúsund einstaklingar greitt fjármagnstekjuskatt. Lögaðilar voru aftur á móti 75. Það sýnir því svart á hvítu að fjármagnstekjuskatturinn er skattur á einstaklinga en ekki skattur á lögaðila.
Þegar ég lagði fram þessa fyrirspurn hafði ég áhuga á því að sjá hverjir það eru og hve margir þeir eru sem borga fjármagnstekjuskatt og ekki síður hve margir borga fjármagstekjuskatt undir 100 þús. kr. og hve margir borga fjármagnstekjuskatt yfir 1 millj. kr. Í svarinu kemur fram að á árinu 2003 hefði fjöldi einstaklinga sem greiddu fjármagnstekjuskatt undir 100 þús. kr. verið 70 þúsund. Meðalgreiðsla þeirra var 12.500 kr. þannig að mestur fjöldi þessara einstaklinga hefur verið að greiða fjármagnstekjuskatt af fjármagnstekjum um og í kringum 100 þús. Það eru aftur á móti þeir 7 þúsund einstaklingar sem út af standa sem greiða hærri skatt og það vakti athygli mína að 500 framteljendur greiða fjármagnstekjuskatt sem er yfir 1,5 millj. kr. Meðalgreiðsla þessa hóps var rúmar 7,5 millj. sem segir okkur að fjármagnstekjur hafi verið yfir 75 millj. kr. hjá yfir 500 einstaklingum á árinu 2003 og heildarfjármagnstekjuskattur þessara einstaklinga er á fjórða milljarð króna. Þetta sýnir okkur að ef við viljum gera einhverjar breytingar á skattkerfinu og skoða breytingar á fjármagnstekjuskatti mundu slíkar breytingar ekki hitta fyrir láglaunafólkið í landinu.
Stimpilgjöldin hækka ákaflega mikið og er það í takt við aukna skuldsetningu flestra í þjóðfélaginu. Margir hafa gripið til þess ráðs að skuldbreyta lánum sínum en við það greiða þeir skatt til ríkissjóðs í formi stimpilgjalda. Hækkun þeirra í frumvarpinu eins og það lá fyrir var áætluð 850 millj. kr. en nú í breytingartillögum hafa bæst við 300 millj. kr. þannig að gert er ráð fyrir að stimpilgjöldin verði á tólfta hundrað millj. króna. Virðisaukaskatturinn vex einnig mikið eða um 3,5 milljarða umfram áætlun fjárlaga ársins 2004.
Í gjöldunum er af mörgu að taka. Rétt er þó að halda til haga í upphafi þeirrar yfirferðar að mikið af þeim útgjöldum sem mælt er fyrir í frumvarpi til fjáraukalaga eiga þar alls ekkert heima. Bæði er um útgjöld að ræða sem vel voru fyrirséð á þeim tíma sem gengið var frá fjárlögum ársins og einnig önnur sem ættu að bíða fjárlaga næsta árs. Nauðsynlegt er að gæslumenn ríkissjóðs, sem gefa sig út fyrir ábyrga fjármálastjórn og vandaða áætlunargerð, gangi af hófsemi um fjáraukalög og noti þau ekki til að bæta við útgjöldum sem þar eiga ekki heima. Stofnanir sem eru kerfisbundið sveltar á fjárlögum og fá síðan leiðréttingu mála sinna í fjáraukalögum eins og venjan virðist oft vera geta aldrei skipulagt rekstur sinn á hagkvæmasta hátt og verulegur kostnaður er í því fólginn að vera í fjársvelti. Nægir þar að nefna dráttarvexti sem þessar stofnanir greiða lánardrottnum sínum og er þar um miklar fjárhæðir að ræða sem unnt ætti að vera að komast hjá ef rétt væri skammtað í upphafi.
Við 1. umr. fórum við þingmenn Samfylkingarinnar í gegnum þá gjaldaliði sem fram komu í fjáraukalagafrumvarpinu og einnig hefur verið leitað svara í fjárlaganefnd við fjölmörgum spurningum sem vöknuðu við fyrsta yfirlestur á frumvarpinu sjálfu. Það kemur fram í frumvarpi til fjáraukalaga að ekki þurfi að vera beint samhengi milli þeirra fjárheimilda sem sótt er um í því og áætlaðra útgjalda á árinu. Þar kemur einkum tvennt til, eins og þar segir, annars vegar eru í frumvarpinu veittar fjárheimildir til umframútgjalda frá fyrri árum, sem þegar hafa verið gjaldfærð í reikningum ríkissjóðs, hins vegar verða ekki öll umframútgjöld bætt á árinu og reynslan sýnir að fjárheimildir verða ekki að fullu nýttar á árinu. Þannig flytjast fjárheimildir og umframgjöld á milli ára og bætast við eða dragast frá útgjaldaheimild næsta árs.
Með þessum parsus í frumvarpinu finnst mér höfundar þess vera að segja: Ekki er fullkomlega að marka frumvarpið, við erum að bæta fyrir eldri syndir og vitum ekki alveg hvað við notum af því sem eftir verður. Hér er alla vega sleginn varnagli um að borð geti verið fyrir báru í sumum liðum en annars staðar vanti kannski á.
Ef við rennum aðeins yfir gjaldahlið frumvarpsins eins og það var lagt fram og skoðum einnig þær breytingartillögur sem fram hafa verið lagðar, kemur í ljós ef við skoðum fyrst Alþingi að þar hafa verið ákaflega mikil lausatök hjá Framkvæmdasýslu ríkisins vegna framkvæmda við Alþingishúsið. Fyrsta áætlun gerði ráð fyrir 75 millj. kr. kostnaði við þær endurbætur, fjáraukalög, eins og þau voru lögð fram, bættu við 44 millj. þannig að heildarkostnaður átti að verða 119 millj. Núna er verið að tala um 135 millj. eða næstum helmingi hærri tölu en fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir. Hið háa Alþingi hlýtur að verða að vanda áætlanagerð betur varðandi þær framkvæmdir sem það ræðst í, ég tala nú ekki um í ljósi sögunnar eins og hún hefur verið.
Ef við lítum síðan á forsætisráðuneytið veltir maður fyrir sér: Hvað er Vesturfarasetrið á Hofsósi að gera hjá forsætisráðuneytinu? Var ekki vitað að samninginn um setrið þyrfti að endurnýja við gerð fjárlaga? Það er þó alveg ljóst að það er gott að vera vistaður við brjóst hæstv. forsætisráðherra en heildarframlag samkvæmt þessum samningi nemur 54 millj. á árunum 2004–2008.
Í fjáraukalagafrumvarpinu hafði verið farið fram á af hálfu forsætisráðuneytisins 10,5 millj. vegna fjölmiðlanefndar. Nú er verið að breyta því og færa til baka til föðurhúsanna þann kostnað sem af nefndinni hlaust og verður hann gjaldfærður á menntamálaráðuneytið eins og við bentum á við 1. umr.
Hvað menntamálaráðuneytið varðar þá er rétt að fagna viðbótarframlagi til framhaldsskóla, fyrst í fjáraukalagafrumvarpinu upp á 250 millj. og síðan í nýjum breytingartillögum meiri hlutans upp á 200 millj. kr. Samtals er því verið að auka fjárheimildir til framhaldsskólastigsins um 450 millj. og hefði stjórnarmeirihlutinn betur hlustað á þingmenn Samfylkingarinnar við gerð fjárlaga og létt þannig af framhaldsskólum og mörgum nemendum þeirri ótrúlegu óvissu sem var á skólagöngu fjölda nemenda í upphafi skólaárs. Einnig hefðu skólarnir væntanlega getað skipulagt greiðsluflæði sitt betur og komist í mörgum tilvikum hjá að greiða háa vexti svo sem dráttarvexti. 450 millj. kr. er þó lægri upphæð en reiknilíkan vegna nemendafjölda sýnir að greiða ætti og lækkar því meðalgreiðsla á hvern nemanda.
Þjóðleikhúsið fær 57 millj. kr. til að mæta kröfum eftirlitsstofnana um brunavarnir og rafmagnsöryggi. Hér er um lið að ræða sem er kominn til vegna þess að ekki hefur verið lagt til fé til viðhalds þessa menningarhúss í Reykjavík og er nauðsynlegt að bregðast við. Ef eðlilega hefði verið að hlutunum staðið væri þessi upphæð ekki inni í fjárauka heldur hluti af árlegu viðhaldsfé hússins sem væri þá betur sniðið að raunverulegri þörf um viðhald en nú er.
Undir menntamálaráðuneytinu fær Þjóðminjasafnið annars vegar 20 millj. til að setja upp sýningu vegna opnunar og hins vegar 100 millj. til að klára framkvæmdir. Hér er dæmi um vitlausar áætlanir enn og aftur og við hljótum að velta fyrir okkur hvort eitthvað af þessu hefði ekki átt að vera fyrirséð.
Undir utanríkisráðuneyti vekur athygli mikil aukning á sértekjum á Keflavíkurflugvelli en það er í samræmi við aukna umferð og ástæða til að fagna auknum umsvifum þar.
Ekki tel ég ástæðu á sama hátt til að fagna 42 millj. kr. viðbótarfjárveitingu vegna flutnings á sendiráði Íslands í Brussel í nýtt húsnæði. Þar er ekki verið að spara, kostnaður vegna innréttinga og flutnings er áætlaður 34 millj. og það kosti 8 millj. að kaupa húsgögn inn í húsið. Er það óvæntur kostnaður? Ég held varla.
Víkjum að landbúnaðaráðuneytinu. Þar er að mestu um að ræða auknar greiðslur til bænda vegna samninga sem áður höfðu verið gerðir. Greiðslur sem greiða átti samkvæmt samningum voru felldar niður í fjárlagafrumvarpi en nú er verið að bjarga því fyrir horn með því að leita fjárheimilda að nýju.
Í sjávarútvegsráðuneytinu er óskað eftir 35 millj. kr. viðbótarfjárheimild til að bæta mælingar á loðnustofninum. Ég tel fulla ástæðu til þess að fagna því að ráðuneytið óskar eftir auknum heimildum til þess að mæla loðnustofninn betur en tókst að gera. Ég tel að þessi fjárveiting sé dæmi um fjárveitingu sem á heima í fjáraukalögum. Aftur á móti er það mikil spurning í mínum huga hvort tap á hrefnuveiðum árið 2003 og einnig tap á hrefnuveiðum árið 2004 eigi heima í fjáraukalögum. Það getur vel verið að rétt sé við þurfum að bæta tap á hrefnuveiðum á þessu ári með því að skoða það í fjáraukalögum, en það hefði átt að liggja fyrir miklu fyrr að tap var á hrefnuveiðum á árinu 2003 og eðlilegt að taka það upp í fjárlögum ársins 2004 en ekki hér.
Hér hefur verið minnst á að undir dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fái héraðsdómstólar auknar heimildir upp á 35 millj. kr. Ég ætla ekkert að segja annað um það en vitna í margar ræður stjórnarandstæðinga við fjárlagagerðina um fjárhagsvanda héraðsdómstólanna. Að sjálfsögðu hefðu þessar 35 millj. kr. átt heima í fjárlagafrumvarpinu en ekki í fjáraukalögum. En þarna er verið, eins og á svo mörgum öðrum stöðum, að draga stofnanir sem vitað er að þurfa á auknum fjárheimildum að halda til að geta staðið undir rekstri, á svörum alveg út í hið óendanlega, valda vandræðum í rekstri þeirra þannig að hann getur ekki orðið jafnskipulegur og hagkvæmur eins og best væri á kosið en bæta síðan á síðustu stundu inn í fjárveitingar það sem á vantaði og allir vissu í upphafi að vantaði.
Félagsmálaráðuneytið er sérstakur kafli, má segja, í þessum fjáraukalögum. Í frumvarpinu var lagt til að fjárheimildir félagsmálaráðuneytisins mundu aukast um 2.061 millj. kr. og nú er bætt við í breytingartillögum meiri hlutans tillögum upp á útgjöld sem hljóða upp á 1,5 milljarða kr. Í félagsmálaráðuneytinu er sem sagt verið að óska eftir auknum fjárheimildum upp á 3.600 millj. kr. í fjáraukalögum. Maður hlýtur að velta fyrir sér í framhaldi af því hvernig áætlunargerð hjá félagsmálaráðuneytinu er háttað þegar munurinn getur orðið svona mikill.
Auðvitað geta alltaf komið upp óvænt útgjöld og sérstaklega hjá sjóðum sem ekki er vitað nákvæmlega hverjir munu sækja í eða hver þróunin mun verða. En breytingar upp á 3.600 millj. kr. á gjaldalið í fjáraukalögum er of mikil að mínu viti og rétt að skoða aðeins hvað veldur.
Loksins lætur ríkisstjórnin undan á síðustu metrunum varðandi Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og bætir þar inn í aukalega 400 millj. kr. Í frumvarpinu höfðu verið 249 milljónir en það er hækkað nú um 400 milljónir. Þeir viðurkenna þar með, að mínu viti, fjárhagsvanda sveitarfélaganna en koma alls ekki til móts við hann í þeim mæli sem þörf er á. En þeir gera það sem þeir gera best, þ.e. henda inn peningum á síðustu stundu, helst of litlum til að takast á við vandann, rétt til að taka sárasta sviðann úr þeim viðfangsefnum sem verið er að setja fjárheimildir í.
Í breytingartillögum meiri hlutans segir að þetta sérstaka framlag upp á 400 millj. kr. í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sé til að koma til móts við sveitarfélög í sérstökum fjárhagsvanda, t.d. vegna fækkunar íbúa og erfiðra ytri aðstæðna. Maður veltir fyrir sér með hvernig þessum 400 millj. kr. verður útdeilt, hver skiptingin verður, vegna þess að við sem störfum í fjárlaganefndinni vitum og heyrðum það hjá hverri einustu sveitarstjórn sem heimsótti fjárlaganefndina að sveitarfélögin eru ekki bara í fjárhagsvanda vegna þess að íbúum sé að fækka á einhverjum stöðum eða ytri aðstæður séu eitthvað erfiðar í ákveðnum sveitarfélögum heldur er þetta vandi nánast í öllum sveitarfélögum landsins. Nánast öll sveitarfélög landsins eru þannig stödd að þau eiga við fjárhagsvanda að etja.
Í tillögum meiri hlutans segir að félagsmálaráðherra skuli ákveða úthlutun fjárins í samráði við ráðgjafarnefnd jöfnunarsjóðsins og að fengnum tillögum tekjustofnanefndar. Mér segir svo hugur að það verði mikill slagur við að ná í þessa auknu fjárheimild sem sveitarfélögin sjá fram á að kemur þarna í jöfnunarsjóð og ég tek undir með þeim sem sagt hafa að hér er reyndar allt of skammt gengið. En við hljótum að þurfa að velta því fyrir okkur hve mikið Jöfnunarsjóður sveitarfélaga á að bólgna út og hve mikið almennir tekjustofnar sveitarfélaga þurfa að breytast til að sveitarfélögin geti rekið sig.
Mikil breyting verður á Atvinnuleysistryggingasjóði. Í fjáraukalögunum var farið fram á heimild um að hækka greiðslur í Atvinnuleysistryggingasjóð um 948 millj. kr. og nú í tillögum meiri hlutans bætast við 250 milljónir. Þetta er sagt að gerist vegna þess að fyrri áætlun hafði byggt á spá um 3% atvinnuleysi á árinu en nú sé gert ráð fyrir að það verði um 3,2%. Þessi mikla hækkun á útgjöldum til Atvinnuleysistryggingasjóðs hlýtur að eiga einhverjar aðrar skýringar líka og full ástæða hlýtur að vera fyrir þá sem með félagsmálaráðuneytið fara að velta fyrir sér hvort við séum ekki að verða komnir í einhverjar ógöngur hvað þetta varðar, hvort ekki sé rétt að fara að velta fyrir sér að eyða einhverjum fjármunum til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi í stað þess sífellt að bæta í Atvinnuleysistryggingasjóð til að greiða atvinnuleysisbætur þeim sem misst hafa vinnuna. Og gleymum ekki því að við erum að fjalla um fjáraukalög þar sem er mikil þensla og mikil sveifla á efnahagslífinu. Samt sem áður er atvinnuleysi að aukast og við hljótum að þurfa að velta því fyrir okkur hvort við séum á réttri braut hvað varðar greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, hvort við þurfum ekki að reyna að leggja líka áherslu á að eyða fjármunum til þess að reyna að koma í veg fyrir atvinnuleysi í stað þess eingöngu að bæta það.
Þá er komið að Fæðingarorlofssjóðnum. Í fjáraukalögunum sem lögð voru hér fram fyrir 30 virkum dögum síðan var ekki gert ráð fyrir að bæta neinu í þann sjóð eða að engar breytingar yrðu á Fæðingarorlofssjóði. Nú örfáum vikum seinna leggur stjórnarmeirihlutinn til að leggja 880 milljónir í sjóðinn til að hann geti staðið við skuldbindingar sínar.
Talað er um að endurskoðuð áætlun hafi leitt í ljós að meðaltalsgreiðslurnar séu hærri en áætlað var og fjöldi þeirra sem fá greitt úr sjóðnum sé meiri. Þannig hækka meðalgreiðslur um 20% á milli ára og er það talið stafa að mestum hluta vegna þess að karlmönnum sem taka greiðslur úr sjóðnum hefur fjölgað mikið frá því sem áður var. Þetta staðfestir enn og aftur launamun kynjanna og gefur okkur til kynna að þar þurfi að taka til hendinni. En hvernig er hægt að áætla þetta svona svakalega vitlaust? 880 millj. kr. birtast allt í einu núna í tillögum meiri hlutans sem lagðar eru fram 30 virkum dögum eftir að fjáraukalagafrumvarpið var fyrst lagt fram á Alþingi. Þá virtist enginn vita að bæta þyrfti við eða gera nokkuð varðandi Fæðingarorlofssjóðinn. Ég held að við sjáum hér enn og aftur dæmi um áætlunargerð sem þarf að bæta og með einhverju móti að ná betur utan um en nú er gert.
Í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti er að mestu leyti um tilfærslur að ræða í sjúkra- og lífeyristryggingum. Við sjáum þó þar hefðbundna hækkun lyfja eða lyfjakostnaðar upp á 285 millj. kr., lægri upphæð en oft áður en augljóst samt að yfirvöld þurfa að vera á vaktinni og bremsunni hvað varðar útgjöld til lyfjamála. Þetta virðist vera málaflokkur sem sífellt kemur upp í fjáraukalögum og sífellt þarf að bæta í.
Annað hefðbundið dæmi í fjáraukalögum er Landspítali – háskólasjúkrahús. Þar er bætt í 675 millj. kr., eins og ég hef sagt áður, of seint, of lítið og veldur þeim vandræðum sem þurfa að stýra og þurfa með að fara. Það vekur sérstaka athygli mína, kannski vegna þess að ég er áhugamaður um Heilbrigðisstofnun Suðurnesja búandi á Suðurnesjum, að þar er gert ráð fyrir 20 millj. kr. fjárveitingu til að auka rekstur á D-álmu á annarri hæð sjúkrahússins. Mér er kunnugt um að þeir sem stýra sjúkrahúsinu telja að þarna þurfi að greiða á þessu ári 60 millj. kr. en ekki 20 og að ekki sé verið að standa við undirskrift heilbrigðisráðherra varðandi það með hvaða hætti D-álma við Sjúkrahús Suðurnesja verði tekin í notkun og ekki heldur verið að standa við undirskrift heilbrigðisráðherra varðandi byggingarframkvæmdir við þriðju hæð þessarar sömu álmu.
Frú forseti. Í raun er stórundarlegt að verða vitni að því aftur og aftur að ráðherrar fagmála telja sig geta skrifað undir falleg plögg um framtíðarstefnu, falleg plögg um uppbyggingu, falleg plögg um rekstur, en svo er ekkert að marka undirskriftina þegar kallað er eftir því að fjármunir fylgi. Það er í raun vanvirðing við þá sem taka við svona plöggum að hæstv. ráðherrar leyfi sér að ganga fram með þessum hætti.
Hér hefur að mestu leyti verið stiklað á stóru. Það vakti athygli mína við yfirferð á frumvarpinu og eins á breytingartillögunum að nú er gert ráð fyrir því að afskrifa þurfi skattkröfur upp á 5 milljarða kr. Í fjáraukalagafrumvarpinu var gert ráð fyrir að við þyrftum að afskrifa skattkröfur upp á 4 milljarða. Nú hafa bæst við 1.000 milljónir. Hér er aðallega um að ræða áætlanir skattstjóra á einstaklinga og fyrirtæki sem ekki hafa skilað skýrslum á réttum tíma hvort sem eru virðisaukaskattsskýrslur eða skattskýrslur. Hér er verið að setja inn í bókhald ríkisins áætlaðar tölur sem eru langt um fram það sem raunveruleikinn ber í sér. Það er verið að setja inn tölur með álagi. Það er verið að setja inn tölur með dráttarvöxtum. Það er verið að reikna dráttarvexti á eitthvað sem ekki er til. Þetta kemur inn í reikninga ríkisins og við erum að sjá stórar tölur á hverju einasta ári þar sem leggja verður til að áður áætlaðar tekjur verði lækkaðar vegna þess að þessar áætlanir hafa verið allt of háar um skattkröfur. Fyrst þetta gerist á hverju einasta ári og með þessum hætti og í þessum mæli þá hljóta menn að þurfa að skoða hvort skattstjórar þurfi ekki að breyta að einhverju leyti vinnubrögðum sínum þarna þannig að við séum ekki að fá væntingar um það inn í ríkisreikningana að til séu einhverjar útistandandi kröfur sem enginn fótur er fyrir. Það hlýtur að vera hægt að vanda þessa vinnu betur en þarna kemur fram.
Eitt var það sem ég gleymdi varðandi heilbrigðisráðuneytið. Það voru hjúkrunarheimilin, öldrunar- og endurhæfingarstofnanir. Í frumvarpinu var gert ráð fyrir að bæta í þetta almennt 60 millj. kr. Nú eru uppi tillögur frá meiri hluta fjárlaganefndar um að bæta 30 milljónum í. Eftir að hafa eytt heilli viku, kjördæmavikunni, í að fara á milli sveitarfélaga og ræða þar við sveitarstjórnarmenn sem oft og tíðum eru ábyrgir fyrir rekstri þessara stofnana og verða vitni að þeim mikla vanda sem er í þeirra rekstri þá lýsi ég undrun minni á að þessi fjárhæð sé ekki hærri í fjáraukalögum og tillögum meiri hlutans til breytinga því öllum er ljóst sem þetta skoða að þarna er vandinn miklu meiri en þessi og þetta er raunverulegur vandi. Þetta er ekki tilbúinn vandi. Um allt land eiga hjúkrunarheimili í miklum erfiðleikum með rekstur, hjúkrunarheimili sem fá ekki fjárveitingar í samræmi við svokallað RAI-mat þar sem sjúklingar eru flokkaðir eftir hjúkrunarþyngd. Það er búið að leggja niður með mikilli og vandaðri vinnu hvað þetta RAI-mat þýðir í peningum. En þegar kemur að því að fá greitt frá ríkinu til þess að reka þessar stofnanir þá skiptir það engu máli lengur og ríkið bara leggur kollhúfur og neitar að viðurkenna að með sjúklingum sem orðnir eru hjúkrunarsjúklingar samkvæmt þessu mati verði að greiða til hjúkrunarheimilanna eins og lög og reglur gera ráð fyrir.
Ég fagna því að undir liðnum Samgönguráðuneyti sjáum við heimild til að breyta ráðstöfun á fjármagni í vegagerð miðað við samgönguáætlun 2003–2006 á þann hátt að nýta allt að 140 millj. kr. af ónotuðum fjárveitingum við Suðurstrandarveg til framkvæmda við þjóðveg 1 um Svínahraun. Þarna er verið að færa til peninga til þess að tenging Þrengslavegar við Hellisheiði verði með mislægum gatnamótum. Ég verð að segja eins og er að það hefði verið mikið slys ef þær miklu umferðaræðar hefðu verið tengdar með venjulegum stefnugreindum gatnamótum. Það hefði verið svipað og að reisa núna einbreiða brú á þjóðvegi 1, sem engum dettur í hug. Hér eru komnar lyktir í það mikla mál og lýsi ég ánægju með það.
Eitt vakti athygli mína í tillögum meiri hlutans sem nú liggja fyrir um breytingar á fjáraukalögunum og það er undir liðnum Iðnaðarráðuneyti. Þar leggur meiri hlutinn til að Byggðastofnun fái 50 millj. kr. framlag sem ætlað er til að greiða fyrir því að kalkþörungaverksmiðja geti risið í Vesturbyggð. Ekki ætla ég að draga úr mikilvægi þess að sú umrædda verksmiðja geti risið á Bíldudal en velti fyrir mér á hvaða leið meiri hlutinn er þegar farið er að gera tillögur um tiltölulega stórar upphæðir til stofnunar eins og Byggðastofnunar og eyrnamerkja um leið í hvað hún eigi að fara, hvar sú vegferð endar ef í fjáraukalögum verður hægt að úthluta styrkjum eða fjárframlögum til einstakra verkefna með þeim hætti sem þarna er verið að gera.
Að endingu vil ég segja að fjáraukalög eru alltaf nauðsynleg til þess að mæta ófyrirséðum fjárútlátum en þau eiga eingöngu að vera til þess. Þau eiga ekki að vera tékkhefti fyrir stjórnvöld til þess að tékka út fram eftir öllu ári eitthvað sem gleymdist við fjárlagagerð, eitthvað sem allir vissu að hefði átt að vera inni í fjárlögum en vegna þrjósku og kollhúfuhegðunar stjórnvalda eru ekki þar inni. Fjáraukalög á ekki að nota þannig.
Fjárlög, eins og segir í orðanna hljóðan, eru ekkert ómerkilegri en önnur lög. Fjárlög eru lög sem allir eiga að fara eftir en þau eru brotin á hverjum degi af fjölda stofnana, þau eru brotin á hverjum degi af fjölda einstaklinga og þau eru brotin nánast af flestum sem um þau ganga. Þetta hlýtur að þurfa að breytast, fjárlög þurfa að njóta sömu virðingar og önnur lög í landinu. Að því þarf fjárlaganefnd að vinna, að því þarf minni hlutinn á Alþingi að vinna og það þarf meiri hlutinn að fara að skilja.
Ég vona að umræðan á eftir eigi eftir að geta verið fjölbreytt en í svona lítilli ræðu er aðeins hægt að stikla á mjög stóru en það gefst þó kostur á því annarri umferð ef einhver stjórnarliði tekur til máls þannig að maður á möguleika á því að koma upp aftur með fleiri spurningar ef vakna.