Tekjuskattur og eignarskattur.
Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):
Herra forseti. Það er auðvelt að svara þessari spurningu. Það sem hefur breyst er að barnabætur hafa að raungildi samtals lækkað um 10 milljarða frá því að flokkur hv. þingmanns settist í ríkisstjórn, raunar frá þeim tíma þegar hv. þm. sté sín fyrstu skref á þingi. Það er það sem hefur breyst.
Hv. þingmaður talaði um að hann velktist í vafa um hver væri skattstefna Samfylkingarinnar. Hún er svona: Samfylkingin leggur höfuðáherslu á að lækka matarskattinn um helming. Samfylkingin er að því leyti til sammála flestöllum þingmönnum sem sitja á þinginu nema hv. þingmönnum Framsóknarflokksins. Það er Framsóknarflokkurinn sem hefur lagt fótinn gegn því og komið í veg fyrir að hægt sé að lækka matarskattinn. Það er hins vegar skattalækkunaraðgerð sem hefur mikil jafnandi áhrif og kemur þeim til góða sem hafa svo lágar tekjur að þeir greiða ekki einu sinni tekjuskatt. Þeir eru því miður til í samfélagi okkar. Þetta er skattstefna Samfylkingarinnar í sínu allra einfaldasta formi eins og hægt er að setja hana fram á einni mínútu.