Tekjuskattur og eignarskattur.
Hjálmar Árnason (F) (andsvar):
Herra forseti. Ég verð að viðurkenna að ég er litlu nær um hina skýru stefnu Samfylkingarinnar í skattamálum þrátt fyrir þetta mínútuandsvar til viðbótar við langa ræðu.
Tölur tala hins vegar sínu máli og þær segja okkur einfaldlega að þegar hv. þingmaður og ýmsir félagar hans sem nú eru á þingi fyrir Samfylkinguna sátu í ríkisstjórn og áttu kost á að láta þessi áhersluatriði sín koma fram hvað varðar barnabætur og Lánasjóð íslenskra námsmanna voru áherslur aðrar. Ef ég man rétt var t.d. búið að festa í lög að endurgreiðslubyrði námslána skyldi vera 7% þegar við komum hér að ríkisstjórn 1995. Það var vegna þátttöku m.a. ýmissa hv. þm. sem nú eru hér í Samfylkingunni, forverar Samfylkingarinnar stóðu að því. Það eru ákveðin áhersluatriði sem koma fram í því.
Sama er með það að minnka barnabætur á heilu kjörtímabili um einn milljarð króna. Auðvitað er það ákveðið áhersluatriði. Mér finnst hv. þingmaður tala í þessu, nú sem fyrr, dálítið óljóst þegar kemur að skattamálum.