131. löggjafarþing — 36. fundur,  23. nóv. 2004.

Tekjuskattur og eignarskattur.

351. mál
[17:05]

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það liggur alveg ljóst fyrir að forgangsatriði ríkisstjórnarinnar, að því er varðar skattalækkanir, koma fram í þessu frumvarpi. Það er lækkun skatthlutfallsins, hækkun persónuafsláttar, hækkun barnabóta og niðurfelling eignarskatts. Þetta eru þau forgangsatriði sem við höfum haft í skattamálum og eru að vísu nokkuð samhljóða forgangsatriðum sem Samfylkingin hafði. Það útilokar ekki að við munum gera breytingar á virðisaukaskattskerfinu.

En þetta eru þau skref sem við teljum mögulegt að stíga núna og við munum nú fara í vinnu að því er varðar virðisaukaskattskerfið og um það eru flokkarnir algjörlega sammála.

Það er hins vegar alveg rétt að sá sem hér stendur hefur almennt talað fyrir því að skynsamlegt sé að hafa eitt hlutfall í virðisaukaskatti, enda var nú Samfylkingin sammála því. (Gripið fram í: Stundum.) Stundum, já. En það var hins vegar ákveðið að lækka þetta hlutfall úr 24,5% í 14% og Framsóknarflokkurinn hefur ekki gert neina tillögu um að breyta því og aldrei tekið það upp. Fyrst það eru komin tvö hlutföll þá skiptir í sjálfu sér engu grundvallarmáli hvort hlutfallið er 14%, 10% eða 7%. Það er engin prinsippbreyting. Í okkar huga er aðalatriðið að svigrúm verður að vera til skattalækkana í efnahagslegu tilliti og eins og þetta lítur út í dag teljum við svigrúmið til staðar. Það sést af því sem hér er spilað út (Forseti hringir.) og síðan verður að koma í ljós hvort við sjáum meira svigrúm síðar.