131. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2004.

Fjarskiptasamband við Ísafjarðardjúp.

310. mál
[12:21]

Fyrirspyrjandi (Jón Bjarnason) (Vg):

Frú forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. samgönguráðherra um fjarskiptasamband við Ísafjarðardjúp en okkur hafa borist undirskriftalistar frá íbúum við Ísafjarðardjúp um bætt fjarskiptasamband og þar kemur fram að undirritaðir íbúar og aðstandendur fyrirtækja við Ísafjarðardjúp óska eftir að Síminn svari umsóknum þeirra sem sótt hafa um ISDN-tengingu bréflega og símleiðis á undanförnum árum.

Rétt er að taka fram að þrjú ár eru liðin síðan fyrstu umsóknirnar voru sendar til fyrirtækisins og engin formleg svör hafa borist enn þá. Óþarfi er að taka fram mikilvægi á úrbótum á internettengingum á þessu svæði. Þetta ástand í símamálum stendur núverandi og áframhaldandi framþróun byggða fyrir þrifum og gerir búsetu og atvinnustarfsemi næsta ómögulega. Íbúar hafa verulegar áhyggjur af fyrirsjáanlegri byggðaröskun af þessum völdum. Undirritaðir vænta þess að Síminn sjái sér fært að verða við umræddri ósk hið fyrsta svo hægt sé að meta grundvöll áframhaldandi byggðar á svæðinu.

Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps hefur einnig ályktað um þetta mál og tekur undir áhyggjur íbúa og aðstandenda atvinnufyrirtækja við Ísafjarðardjúp og beinir því til Símans að gerð verði kostnaðaráætlun við að koma ofangreindum bæjum á Vestfjörðum í viðunandi nettengisamband og í framhaldi verði tryggt fjármagn til að ráðast í úrbætur. Í þeirri greinargerð stendur einnig að samkvæmt 19. gr. laga um fjarskipti eigi allir notendur rétt á alþjónustu sem ríkið á að tryggja, óháð staðsetningu. Sú kvöð felur m.a. í sér að allir landsmenn eigi að hafa tryggt a.m.k. 128 Kb netsamband.

Telji Síminn að alþjónusta sem honum er gert skylt að veita sé óhagkvæm eða óarðbær getur hann, vegna byggðasjónarmiða, samkvæmt 21. gr. sömu laga, sótt um að honum verði með fjárframlögum tryggt eðlilegt endurgjald fyrir þá starfsemi sem um ræðir.

Frú forseti. Ég ítreka mikilvægi þessa máls. Þetta gildir bæði um fjarskiptasamband á viðkomandi bæjum en varðar einnig GSM-þjónustu fyrir allt Ísafjarðardjúp sem er nánast engin á þjóðveginum. Hæstv. samgönguráðherra fer með málefni fjarskipta og þess vegna beini ég spurningu minni til hans. Hvernig hyggst hæstv. samgönguráðherra bregðast við þessum eindregnu og afdráttarlausu óskum íbúanna við Ísafjarðardjúp?