Þjóðmálakönnun í Eyjafirði.
Birkir Jón Jónsson (F):
Hæstv. forseti. Vissulega er mikill vandi hjá byggðunum við utanverðan Eyjafjörð, sem mér er kunnugt um þar sem ég kem úr einni af þeim. En stjórnvöld eru að reyna að bregðast við þeim vanda sem þar er við að glíma. Við erum að fara í eina stærstu samgöngubót á svæðinu sem gerð hefur verið, jarðgöng um Héðinsfjörð, og í framhaldi af því verður mjög metnaðarfull uppbygging í ferðamannaiðnaði á svæðinu. Margir þingmenn hafa mælt fyrir því að reisa framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Verið er að fara í öfluga uppbyggingu við heilbrigðisstofnun á Siglufirði. Það er verk ríkisstjórnarinnar líka. Svo búum við við það lán að hafa öflug fyrirtæki á þessum svæðum, Þormóð ramma – Sæberg og Samherja. Því miður hafa þessi fyrirtæki oftar en ekki átt erfitt með að fá fólk til vinnu. Atvinnuleysi t.d. á Siglufirði er ekki mikið. Vandinn er annars konar. Við þurfum nýsköpun á svæðið og að því vinnum við með byggðaáætlun fyrir Eyjafjörð sem hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur lagt fram. Við þurfum nýsköpun í atvinnulífið.