Þjóðmálakönnun í Eyjafirði.
Fyrirspyrjandi (Sigurjón Þórðarson) (Fl):
Herra forseti. Ég verð að byrja á að lýsa yfir mjög miklum vonbrigðum með svör hæstv. byggðamálaráðherra. Það er eins og hæstv. ráðherra geri sér ekki grein fyrri stöðu mála í eigin kjördæmi. Einnig verð ég að lýsa yfir mjög miklum vonbrigðum með innlegg hv. þm. Birkis Jóns Jónssonar. Mér finnst ömurlegt að hlýða á svona málflutning. Að segja að allt sé í lagi með atvinnuástandið á Siglufirði og að þar vanti bara fólk til starfa. (Gripið fram í.) Ég held að þingmaðurinn ætti að verja meiri tíma í kjördæminu og kynna sér atvinnuástandið á Siglufirði. Það hefur komið fram (Gripið fram í.) hjá opinberum aðilum að störfum hefur fækkað á Siglufirði á síðustu tíu árum og fólki hefur fækkað um 300. Störfum hefur fækkað um liðlega 100. Svo er sagt að það sé ekki atvinnuleysi. Það er bara flutt í burtu. Það á ekki að bjóða mönnum upp á svona málflutning eins og hv. þm. Birkir Jón Jónsson var að bjóða upp á.
Hv. þm. Drífa Hjartardóttir talar um að ekki megi nefna sjávarútvegsmál þegar verið er að ræða um byggðamál. En óvart kemur það fram á heimasíðu hæstv. byggðamálaráðherra að þar viðurkennir hún samhengið. Það má lesa út úr orðum hennar að það megi ekki föndra við þetta fína sjávarútvegskerfi vegna þess að það skili svo miklum ágóða. Þessu hafna ég. Ég minni á að síðan þetta kerfi var tekið upp er aflinn helmingi minni en fyrir daga kerfisins þannig að við höfum til mikils að vinna að fara að skoða nýjar leiðir. Það er alger fásinna að halda í kerfi sem skilar helmingi minni afla á land og það ætti hæstv. ráðherra byggðamála að fara að skoða og líta á það opnum augum og með jákvæðum hætti að skoða aðrar leiðir í staðinn fyrir að binda sig í einhverja tóma dellu.