131. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2004.

Þjóðmálakönnun í Eyjafirði.

327. mál
[13:48]

iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (F):

Hæstv. forseti. Hv. þm. var óánægður. Ég reyndar minnist þess ekki að það hafi oft komið fyrir að hv þingmenn hafi verið ánægðir með svörin sem maður gefur hér.

Vegna þess sem ég setti inn á heimasíðu mína í síðasta pistli — það er ánægjulegt að fólk les heimasíðuna — þá talaði ég (GAK: Það fréttir af þessu.) um að sjávarútvegurinn væri okkur svo mikilvægur að við gætum ekki notað hann í föndur. (SigurjÞ: Eigum við þá ekki að skoða nýjar leiðir?) Ég sagði að af því að sjávarútvegurinn er okkur svo mikilvægur — hann er einn af undirstöðunum — þá verðum við að reka hann með markaðshugsun að leiðarljósi. Nú eru hv. þingmenn alveg gjörsamlega búnir að snúa við blaðinu. Nú er það orðið vandamálið að við höfum rekið þessa sjávarútvegsstefnu sem raun ber vitni vegna þess að einmitt fyrirtækin í þessum sjávarbyggðum hafa verið að styrkja sig. Hvernig hefði ástandið verið hjá þessum fyrirtækjum, Þormóði ramma – Sæbergi og Samherja, ef sú stefna hefði náð fram að ganga sem þeir hv. þingmenn hafa haft og þeirra flokkar sem hafa talað í þessari umræðu? Þá væri ástandið allt annað og miklu verra. (Gripið fram í.) Þetta er stóra málið. Ekki verður bæði sleppt og haldið eftir því hvað er uppi og hvaða umræða er hverju sinni. Hv. þingmenn verða að átta sig á því að þeir verða að hafa sömu stefnuna hvort heldur er í þessari umræðu um Eyjafjarðarsvæðið sem hefur verulega aukið við sig kvóta eða hvort þeir eru að tala um einhver önnur svæði þar sem hann hefur hugsanlega minnkað. (Gripið fram í.) Þetta er aðalatriðið.

Það er mjög margt á döfinni á þessu svæði og þess vegna er það ekki þannig að þó að gerð sé könnun á einhverju landsvæði þá gjörbreyti það byggðastefnu ríkisstjórnarinnar. Við erum með stefnu í gangi sem við framfylgjum (Gripið fram í.) og hver mánuður sem líður sannar það betur og betur að hún á rétt á sér og er að skila árangri. En alltaf er hægt að gera betur og ég geri mér fulla grein fyrir því að ástandið er ekki nægilega gott í ýmsum byggðarlögum á landinu og það verður unnið að því að bæta það að sjálfsögðu.