Framkvæmdaáætlun um aðgengi fyrir alla.
Fyrirspyrjandi (Þuríður Backman) (Vg):
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Þau voru nokkuð skýr og þetta er mikið og víðfeðmt verk sem verið er að fara í. Það kom fram í ræðu hæstv. ráðherra að nefndin kom ekki saman fyrr en haustið 2003 þannig að hún hóf ekki strax störf eins og ég taldi að hún hefði gert. En eftir sem áður hefur hún sett sér markmið um verkþætti sem er mjög mikilvægt að unnið sé vel að og að góð samvinna sé á milli hinna opinberu aðila, bæði ríkisins og sveitarfélaganna, Öryrkjabandalagsins og allra þeirra sem eiga að koma að þessu verki því að það er mikið í húfi, t.d. að hafa byggingarreglugerðir þannig útfærðar að þær endurspegli þá hugmyndafræði sem hér er að baki. Sama máli gegnir fyrir atvinnulífið, svo sem ferðaþjónustuna, að þegar sé farið að undirbúa að gera hana eftirsóknarverða fyrir fatlaða, þar liggja miklir möguleikar fyrir þá atvinnugrein. Í raun er þetta oft ekki spurning um fjármagn heldur miklu frekar spurning um hugsun og breytta hugsun þannig að aðgengi sé fyrir alla strax í upphafi, að ekki sé verið að kosta til miklum fjármunum við að breyta hvort heldur byggingum, gangstéttum, vegakerfi eða öðru. Við erum því ekki eingöngu að tala um fatlaða, við erum að tala um alla þá sem falla ekki undir hið eðlilega norm, þ.e. börn, fullorðna, fatlaða og alla þá sem þurfa á einhverri aðstoð eða annarri þjónustu að halda.