131. löggjafarþing — 39. fundur,  25. nóv. 2004.

Fjárlög 2005.

1. mál
[14:21]

Einar Oddur Kristjánsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég taldi mig hafa hlustað á ræðu hv. þm. Ég varð aldrei var við það, ég tók þá ekki eftir því ef hann hefur sagt það, að hann minntist á það að eitt aðalmarkmið ríkisstjórnarinnar með ríkisfjármálunum frá því í fyrra hafi tekist, að halda samneyslunni og rekstrartilfærslunum innan þeirra marka raungildis sem ríkisstjórnin lagði upp með. Ég heyrði hann aldrei minnast á þetta. Ef ég hef hlaupið yfir það þætti mér gaman að fá að skoða ræðu hans sem flutt var fyrr í dag, þá hef ég eitthvað lokað eyrunum óvænt því ég heyrði þetta aldrei og mér er mjög til efs að hann hafi nokkurn tímann minnst á það. Það var einmitt þess vegna sem ég hafði orð á þessu, hvernig stæði á því í þessu talnaflóði að ekkert er talað um meginmarkmiðin sem stóðust.