Fjárlög 2005.
Einar Oddur Kristjánsson (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég er ekki með gögn við hliðina á mér, en ég skal leita þeirra á eftir og áður en umræðu lýkur skal ég koma og lesa úr forsendum fjárlaga og sýna hv. þm. fram á það að hann fer með rangt mál. Í forsendum fjárlaga fyrir árið 2004 var gengið út frá því að samneyslan hækkaði ekki nema um 2% að raungildi og 2,5% gagnvart tilfærslunum. Þetta stendur þar skýrt og skorinort. Hann misminnir hrapallega ef hann hefur haldið að þetta væri önnur tala. En áður en umræðum lýkur í kvöld skal ég koma með þessi gögn og lesa upp úr þeim, virðulegi forseti, þannig að ekki fari á milli mála hvað er hið rétta í málinu.