Fjárlög 2005.
Anna Kristín Gunnarsdóttir (Sf) (andsvar):
Frú forseti. Það er vissulega rós í hnappagat þeirra skólastofnana sem hafa staðið fyrir fjarnámi. Það er á góðri leið með að gjörbreyta aðstæðum úti á landi. Hins vegar bendi ég á að með auknu fjarnámi á háskólastigi tekur þjónustan við þá nema meiri og meiri hlut af starfsemi símenntunarmiðstöðvanna sem geta þess vegna verr sinnt þeim hópi sem hugsanlega þurfa mest á þeim að halda, þ.e. þeim íbúum landsbyggðarinnar sem hafa stysta skólagöngu.
Ég minni á að á vinnumarkaði á Íslandi hefur 40% fólks aðeins grunnskólapróf eða minna. Það er staða sem við verðum að breyta og þar eru símenntunarmiðstöðvarnar lykilatriði. Þess vegna verður að koma til móts við þær með auknum fjárframlögum.