Fjárlög 2005.
Drífa Hjartardóttir (S) (andsvar):
Hæstv. forseti. Það stendur ekki á hv. þm. Jóni Bjarnasyni að biðja um meiri peninga. Meiri, meiri, meiri peninga. (JBjarn: Í góð mál.) Meiri, meiri, meiri peninga. Hvernig færi ríkissjóður ef Jón Bjarnason væri fjármálaráðherra? Þá mættu menn fara að hugsa sig tvisvar um (Gripið fram í.) hvort þeir vildu búa hér … (Gripið fram í: Hvernig dettur þér slíkt í hug …) Ja, hann hefur viljað halda námskeið í fjármálum fyrir marga.
Ég minni hv. þingmann á að tölurnar sem hann nefndi sem voru í ferðaþjónustunni á síðasta ári var sérstakt tímabundið framlag sem var bæði í gegnum iðnaðar- og samgönguráðuneytið. Það var tímabundið og tímabundin framlög eru ekki ætluð til þess að verða áfram ár eftir ár. Ég óska ferðaþjónustunni alls hins besta en einhvers staðar verðum við að setja punktinn. Það er ekki alltaf hægt að heimta meiri og meiri peninga. Það veit hv. þingmaður sem var einu sinni skólastjóri Landbúnaðarskólans á Hólum og vissi að það þýddi ekki að fara eftir öllum óskum starfsmanna þar.