Fjárlög 2005.
Steingrímur J. Sigfússon (Vg):
Frú forseti. Aðalerindi mitt í þennan ræðustól hér og nú er að mæla fyrir breytingartillögum sem ég er fyrsti flutningsmaður að en það eru nokkur atriði önnur sem tengjast afgreiðslu þessa frumvarps sem ég vil koma inn á.
Ég vísa að öðru leyti í framsöguræðu hv. þm. Jóns Bjarnasonar, fulltrúa okkar í fjárlaganefnd, og ítarlegt nefndarálit sem hann flytur, 2. minni hluti fjárlaganefndar, og þarf því ekki að vera að fjölyrða um þá hluti sem þar er komið inn á.
Það sem ég vil fyrst gera aðeins að umtalsefni eru almennar aðstæður í efnahagslífinu nú um stundir þegar við erum hér við 2. umr. fjárlaga undir lok nóvembermánaðar og stefnt er að því að Alþingi ljúki störfum fyrir miðjan næsta mánuð og hafi þá afgreitt bæði fjárlagafrumvarp eða fjárlög fyrir í hönd farandi ár og þær skattbreytingar sem hæstv. ríkisstjórn hefur mælt fyrir á þinginu og eru til umfjöllunar nú í þingnefnd.
Þannig háttar til að væntanleg er innan nokkurra daga, ef að líkum lætur, haustskýrsla eða skammdegisskýrsla Seðlabankans. Það hefði verið fróðlegt, herra forseti, ef þetta hefði staðið aðeins öðruvísi af sér í tíma og við hefðum haft í höndunum síðasta álit Seðlabankans á þessu ári áður en við lykjum þessari umræðu. Það munum við væntanlega hafa áður en fjárlagafrumvarpið kemur til 3. umr. og afgreiðslu. Ég verð að segja alveg eins og er að mér leikur nokkur hugur á að sjá hvað Seðlabankinn kemur til með að segja í síðasta áliti sínu á þessu herrans ári 2004, áður en það kveður, um ástandið og horfurnar í efnahagsmálunum.
Ég minnist þess að í desembermánuði sl., fyrir tæpu ári, var Seðlabankanum nokkuð órótt. Bæði kom það fram í þeim álitum sem frá honum gengu og í því að Seðlabankinn t.d. kallaði til sín viðskiptabankana, sendi þeim síðan í framhaldinu af þeim fundi harðort bréf þar sem mjög var varað við ýmsu sem í gangi væri í hagkerfinu þar sem m.a. viðskiptabankarnir, og ekki síst, væru gerendurnir. Það laut að því hversu miklu erlendu lánsfé hafði verið mokað inn í hagkerfið á skammtímakjörum af bönkunum á því ári sem þá var að líða og ýmsu fleiru. Það laut auðvitað líka að því að Seðlabankinn horfðist í augu við þær aðstæður sem drógust upp í hagkerfinu með greinilega vaxandi þenslu og verðbólguhættu. Seðlabankinn stóð þá frammi fyrir því að það var nokkuð ljóst að verðlagsþróunin væri að sigla út fyrir viðmiðunarmörk Seðlabankans, út fyrir stöðugleikaviðmiðunarmörkin sem Seðlabankinn reynir að halda verðlaginu innan.
Af hverju skyldi Seðlabankinn hafa haft sérstakar áhyggjur af þessu? Jú, það var vegna þess að við breyttum um grundvöll hagstjórnarinnar fyrir ekki löngu. Það er hljótt um þá staðreynd núna í umræðum um efnahagsmál á Íslandi. Hvernig skyldi standa á því? Eru menn búnir að gleyma því að við hurfum frá þeim markmiðum sem voru í eldri lögum um Seðlabanka Íslands, sem er auðvitað ákveðin grundvallarlöggjöf hagstjórnarinnar í landinu, um gengisstöðugleika, markmið um lága vexti og annað í þeim dúr? Nú starfar Seðlabankinn á grundvelli aðeins eins meginmarkmiðs í hagstjórn, verðlagsstöðugleika, þ.e. að halda verðlagsþróuninni innan tiltekinna viðmiðunarmarka sem eru tiltölulega þröng. Þarna var horfið að ráði sem hefur verið gert víða í kringum okkur, að einbeita stjórntækjum Seðlabanka og eftir atvikum öðrum opinberum hagstjórnartækjum að svokölluðum stöðugleikamarkmiðum.
Það skyldi þó ekki vera að menn ræði lítið um þessa staðreynd núna vegna þess að það hentar ekki? Það er alls ekkert verið að horfast í augu við og reyna að virða og halda sig innan þessara stöðugleikamarkmiða. Þjóðhagsspáin gengur út á að keyra hérna áfram þrjú ár samfellt verulega utan þessa viðmiðs sem Seðlabankinn er þó samkvæmt lögum skyldugur til að reyna að halda verðlaginu innan.
Seðlabankinn er aleinn. Hann er aleinn í viðleitni sinni til að reyna að halda aftur af þenslu, verðbólgu, viðskiptahalla og hann er líka aleinn að því er virðist um að hafa áhyggjur af sterku raungengi krónunnar.
Öðruvísi mér áður brá. Einhvern tímann hefðu nú fleiri held ég í opinberri umræðu um efnahagsmál haft áhyggjur af þessum hlutum. Ótrúlegt þagnarsamsæri er ríkjandi á Íslandi í dag um að ræða ekki þessi hættumerki. Það er vegna þess að meðan á veislunni stendur, þangað til búið er að kalla hana formlega af, meðan einhver föng eru eftir, virðast allir ætla sér bara að njóta. Neyta meðan á nefinu stendur. Flýtur meðan ekki sekkur er hugarfarið. Dapurlegast af öllu er auðvitað að hæstv. ríkisstjórn skuli vera jafngjörsamlega ábyrgðarlaus í þessum efnum og raun ber vitni. Hún er ekki, að því er séð verður, að gera nokkurn skapaðan hlut í því að takast á við þetta af einhverri alvöru. Nærtækasta dæmið um það er hinar stórfelldu skattalækkanir. og skilaboðin sem ríkisstjórnin er með því að senda út í þjóðfélagið.
Þetta eru, frú forseti, að mínu mati ákaflega varhugaverðar og viðkvæmar aðstæður sem við stöndum núna frammi fyrir.
Það sem er líka ískyggilegt er að þrátt fyrir þessa þenslu og spennu í peningakerfinu er atvinnuleysi og það er ekkert lát á því. Við erum með 5–6 þús. manns á atvinnuleysisskrá. Það er mikið misgengi og jafnvægisleysi að þessu leyti í efnahagslífinu og atvinnulífinu. Það helgast m.a. af því að þær breytur eða þeir hlutir sem knýja áfram hagkerfið og þá „hagvöxtinn“ um þessar mundir skila sér ekki í aukinni eftirspurn eftir störfum á vinnumarkaði. Það er fyrst og fremst vegna þess að annars vegar eru það stóriðjufjárfestingarnar þar sem atvinnuumsvifin eru að uppistöðu til mönnuð útlendingum og fjármunirnir sem streyma inn í hagkerfið vegna þeirra framkvæmda gera mjög stuttan stans á Íslandi.
Vinnulaun um þúsund starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun og tengdar framkvæmdir eru greidd út erlendis. Það er mannskapur sem er á launum hjá erlendum verktökum, að stórum hluta ráðinn af starfsmannaleigum og fær launin sín greidd inn á bankareikninga í Portúgal. Það skapar ekki atvinnu og ætti þar af leiðandi líka að hafa heldur þensluletjandi áhrif en hitt en væntingarnar skila sér þó greinilega inn í þá hliðina.
Hins vegar er einkaneysla, aukinn innflutningur og viðskiptahalli greinilega þannig að hann skilar ekki miklu hér í almennum atvinnuumsvifum. Það eru sáralitlar nýfjárfestingar í hinu almenna atvinnulífi. Er sjávarútvegurinn að gera mikið? Nei, hann er að rembast við að halda sjó. Er hinn almenni iðnaður og samkeppnisiðnaður að fjárfesta mikið innan lands í dag? Nei, ekki neitt. Hann fjárfestir erlendis það litla sem það er. Það er furðuleg staða uppi að fjárfestingarhlutfallinu sem er kannski á þokkalegu róli, kringum 20 af hundraði eða eitthvað því um líkt, er haldið uppi af erlendum stórfjárfestum en hinir innlendu aðilar eru í miklu ríkari mæli að flytja féð úr landi. Bankarnir koma svo þarna á móti með því að dæla erlendu lánsfé inn í hagkerfið, út í atvinnulífið, sérstaklega á síðasta ári, 300 milljörðum kr. í nýju erlendu lánsfé, og á þessu ári hafa þeir snúið sér að því að auka mjög útán til svokallaðra húsnæðislána.
Á móti þessu öllu saman kemur svo hæstv. ríkisstjórn með þessa furðulegu áherslu sína í að boða núna við þessar aðstæður, jafngæfulegt og það er, stórfelldar skattalækkanir og boða þær langt fram í tímann. Það er auðvitað, frú forseti, ekkert annað en hreint glapræði.
Útfærsluna á þessum skattatillögum ríkisstjórnarinnar höfum við út af fyrir sig rætt og þarf ekki að endurtaka það hér. Við ræddum hana í fyrradag ef ég man rétt en það var þó dálítið athyglisvert og kannski sláandi að einmitt í dag birtir Fréttablaðið athyglisverða úttekt á því hvernig dregið hefur í sundur í launum og lífskjörum á Íslandi einmitt undanfarin ár. Á forsíðu þessa ágæta dagblaðs stendur „Bilið aldrei verið breiðara“ og í greininni segir að 11 þús. tekjuhæstu Íslendingarnir hafi að meðaltali 22 sinnum hærri laun en 11 þús. tekjulægstu einstaklingarnir.
Mér fannst líka dálítið athyglisvert við skoðun á umfjöllun blaðsins inni í opnunni um þessi mál, þar sem þessi 22 manna maki er sýndur sem stór legókarl eða hvað það nú er í samanburði við hina, að á hinni síðunni er auðvitað auglýsing frá verðbréfafyrirtæki. Það var mjög vel til fundið í tengslum við umfjöllunina um hvernig vaxandi launa- og aðstöðumunur er að læðast aftan að okkur í þessu samfélagi þar sem höfum þó lengi talið okkur það til tekna að við værum tiltölulega einsleitt, óstéttskipt samfélag og að hér væri aðstöðu-, launa- og lífskjaramunur ekki óhóflegur miðað við það sem annars staðar gerist.
Það hefur hann vissulega ekki verið. Við höfum sem betur fer getað talið okkur, a.m.k. með nokkrum rétti, til Norðurlandanna í þeim efnum að hér væri meiri jöfnuður ríkjandi, þökk sé þá öflugu velferðarkerfi og tekjujafnandi aðgerðum innan skattkerfis og velferðarkerfis, sem jöfnuðu nokkuð þann mun sem úti á vinnumarkaðnum sjálfum er vegna launamunar og annars slíks.
Greinilegt er að við og við þarf enga sérstaka spámenn eða spekinga til að horfast í augu við hvað er að gerast í þessum efnum á Íslandi. Það er að draga alveg gríðarlega hratt í sundur. Við erum að vísu enn þá langt frá því að vera komin í bandarískt ástand þar sem forstjórar stórfyrirtækja hafa að meðaltali 420-föld laun almennra starfsmanna sinna en þó er þetta farið að mælast í fleiri tugum. Forstjórarnir íslensku og topparnir, ekki síst í fjármálaheiminum, eru gjarnan með laun sem nema nokkurra tuga starfsmanna sinna, svo maður tali ekki um almenn laun í þjóðfélaginu. Við þær aðstæður grípur hæstv. ríkisstjórn til skattalegra ráðstafana sem eru af sama toga og markað hafa stefnu núverandi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eða ríkisstjórn undir forustu Sjálfstæðisflokksins þangað til núna nýverið, síðastliðinn bráðum einn og hálfan áratug, að þær hafa verið úr smiðju frjálshyggjunnar og hægri hyggjunnar þar sem launajöfnun og samfélagsleg markmið af því tagi eru látin lönd og leið. (Gripið fram í: Það er ekki rétt.) Það er víst rétt, hv. þingmaður.
Herra forseti. Í fyrsta lagi ætla ég að mæla fyrir breytingartillögu sem ég flyt ásamt öðrum þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á þskj. 443. Hún lýtur að tekjuöflun sem við leggjum til á tekjuhlið fjárlagafrumvarpsins. Við höfum haft þá reglu undanfarin ár og alla tíð að reyna að setja áherslur okkar við fjárlagaumræðu þannig fram að þær væru í góðu jafnvægi, við legðum til tekjur á móti þeim gjöldum sem við legðum til þó það sé í sjálfu sér ekkert heilagt og alls ekki endilega þannig að stjórnarandstaðan þurfi að skrifa upp á þann meinta afgang sem meiri hluti á hverjum tíma setur fjárlagafrumvarp sitt fram með. Þó er auðvitað rétt og skylt ef menn vilja nálgast þessa hluti af ábyrgð að þeir sýni með hvaða hætti þeir telja að mögulegt væri að afla tekna á móti þeim útgjöldum sem þeir vilja auka á fjárlögum hins opinbera.
Við erum andvíg því að afnema það álag á hæstu laun eða hærri laun í landinu sem verið hefur við lýði í skattkerfinu og við höfum kallað hátekjuskatt, en heitir reyndar á lagamáli sérstakur tekjuskattur manna eða hvað það er. Ríkisstjórnin hefur tekið sér það alveg sérstaklega fyrir hendur, það hefur verið eitt af gæluverkum Sjálfstæðisflokksins að fara út með þennan skatt. Þeir hælast mjög um af því hvað þetta sé göfugt og mikið réttlætismál og markmið að létta sérstaklega sköttum af þeim einstaklingum sem hafa tekjur yfir 350 þús. kr. á mánuði og hjónum með tvöfaldar þær viðmiðunartekjur.
Nú virkar þetta þannig að ekki er verið að auka skattbyrði þessa hóps á tekjunum upp að þessum mörkum heldur einungis taka álagið af tekjunum ofan við viðmiðunarmörkin. Það er ástæða til að fara yfir þetta vegna þess að ég hef Sjálfstæðisflokkinn oft grunaðan um að tala viljandi svo óskýrt um þessa hluti að ætlunin sé að menn misskilji þetta og haldi að hátekjufólkið borgi 4%–6% meira eða hvað það nú er af öllum tekjum sínum ofan skattleysismarka, en svo er ekki. Að sjálfsögðu ekki. Þetta er þannig útfært (Gripið fram í.) að hátekjumaðurinn, ef við köllum hann svo, með t.d. 700 þús. kr. í tekjur á mánuði eða 1 millj. kr. borgar álagið sem á að verða 4% af launum fyrir ofan 340 þús. kr. Ef menn hafa fengið í fyrsta lagi skattfrjálsar fyrstu 72 þús. kr. eins og aðrir, borga síðan sömu prósentu og allir aðrir af laununum upp að 340 þús. kr., er þá ósanngjarnt að menn borgi síðan af því sem þá kemur til viðbótar, hvort sem það er upp í 1 millj., 2 millj. eða 10 millj. kr. eins og þekkist á mánuði hverjum, örlítið álag? Nei, það er ekki ósanngjarnt. Það er þvert á móti þannig, ef Sjálfstæðisflokkurinn hefur sitt fram sem allt bendir auðvitað til, að íslenski tekjuskatturinn verður einhver sá flatasti sem þekkist á byggðu bóli. Þá hefur frjálshyggjuöflunum á Íslandi tekist að fletja út skattkerfið meira en nokkurs staðar annars staðar og við verðum með langlægstu prósentuna á hæstu laun sem fyrirfinnst á Norðurlöndum og sennilega innan OECD með kannski einni eða tveimur undantekningum, ég efast þó um það.
Ég sé að hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson hristir ákaft höfuðið. Ég tek það til samþykkis kenningum mínum um að íslenski tekjuskatturinn verði einhver sá flatasti sem þekkist á byggðu bóli. Af þessu eru sjálfstæðismenn ákaflega stoltir. Þeir vilja auðvitað ekki að menn borgi eitthvað í samræmi við getu. (Gripið fram í: Jú.) Nei, það er auðvitað draumur þeirra að leggja aðeins einn skatt á landið og miðin. Það er alveg greinilegt að þeir mundu vilja skafa upp úr vösum láglaunafólksins helst sömu krónur og hátekjumanna. Alla vega (Gripið fram í.) er bara ósköp einfaldlega verið að gera það, hv. þingmaður, það er ósköp einfaldlega það sem verið er að gera. (Gripið fram í: Nei, nei.) Er ekki verið að gera það með þeim breytingum í skattkerfinu sem eru á ferðinni? Jú, ætli það ekki. Hægt er að fara rækilega yfir það og sýna hvernig þetta er að gerast.
Eins er það með fjármagnstekjuskattinn. Hann er hér einhver sá lægsti sem fyrirfinnst og raunar held ég sannanlega sá lægsti. Það sem meira er, hér er allt sett í einn pott, vaxtatekjur, arður og annað því um líkt, söluhagnaður hlutabréfa og allur slíkur fjármagns- og eignahagnaður. Þetta er skattlagt flatt með 10% skatti. Þetta eru sérstök vildarkjör sem fjármagnseigendum bjóðast nánast hvergi annars staðar. Þarna var um mikla skattalækkun að ræða á sínum tíma þegar fjármagnsskatturinn var tekinn upp, eins og kunnugt er. Það var mikil skattalækkun á söluhagnaði hlutabréfa og arði sem áður hafði verið skattlagður eins og aðrar tekjur.
Fjármagnstekjur höfðu að vísu ekki verið skattlagðar, það er rétt. Vextir höfðu ekki verið skattlagðir og það má segja að þar hafi komið til sögunnar seint og um síðir sambærileg skattlagning hér og var orðin regla í öðrum löndum, en miklu lægri. Nánast alls staðar í löndunum í kringum okkur sem við berum okkur saman við, í Bretlandi, Írlandi, annars staðar á Norðurlöndunum, í Kanada og meira að segja í Bandaríkjunum borga menn fjármagnstekjuskatt sem endar í mun hærri prósentum en hér. Sums staðar eru fjármagnstekjur yfir vissum mörkum skattlagðar eins og launatekjur. Annars staðar er þetta kannski skattprósenta sem er á bilinu 20% og upp í 40%. Gjarnan er það þannig að einhver þrepaskiptur skattur fer hækkandi í prósentum eftir því sem tekjurnar aukast en hér er þvílíkur lúxus viðhafður gagnvart þeim einstaklingum sem hafa miklar fjármagnstekjur að þeir hafa þær alveg utan endis nánast skattfrjálst í sinn vasa, 10%, þó menn hafi hundruð milljóna eða kannski sem styttist örugglega í að einhverjir fari að hafa, milljarða í fjármagnstekjur. (Gripið fram í: Hundruð milljóna.) Hundruð milljóna, ekki hundruð milljarða, nei, ég hef ekki trú á því í bili. Við eigum að vísu orðið auðmenn sem eru að komast á listann yfir 500 ríkustu menn í heimi. (Gripið fram í: Er það ekki gott?) Það er gott, jú, vissulega. En væri ekki enn þá betri ef auðnum væri jafnar skipt og við sætum ekki uppi með það á sama tíma að þúsundir í landinu búa við sára fátækt? Við skulum aðeins muna eftir þeim hópnum líka (Gripið fram í: Þeir kjósa ekki Sjálfstæðisflokkinn.) áður en við missum okkur í gleði yfir því að Ísland sé í fyrsta skipti að eignast virkilega auðmenn sem eru komnir á blað yfir ríkustu menn í heimi. Hvernig skyldi hluti af þessum auði vera tilkominn? Ætli hann sé ekki að einhverju leyti sprottinn upp úr aðstæðum sem stjórnvöld á Íslandi hafa skapað þessum mönnum til að græða? Er ekki búið að afhenda þeim ríkisbanka og fleiri tæki í leiðangri sínum til að láta hendur sópa í íslensku viðskiptalífi? Ætli það ekki? Ætli olnbogarýmið sem einmitt stjórnvöld hafa búið til hafi ekki nýst þeim ágætlega og þá er auðvitað teppalagt undir gróðann með því að hafa hann svo til alveg skattfrjálsan.
Við leggjum til að fjármagnstekjuskatturinn verði hækkaður í 18% og um leið komi frítekjumark eða skattleysismörk gagnvart fjármagnstekjum þannig að menn greiði ekki skatta af fyrstu 120 þús. kr. sem þeir hafa í tekjur. Það er réttlát og sanngjörn útfærsla og ég skora á menn að hugleiða að fara í kerfisbreytingu af þessu tagi gagnvart fjármagnstekjuskattinum. Við vinnum margt í senn með því. Við færum skattlagninguna nær öðrum tekjum. Við færum þær upp að því sem gildir um hreinan hagnað fyrirtækja og öflum tekna í ríkissjóð í leiðinni og hlífum sparnaðinum, hinum almenna litla sparnaði þess sem stundum hefur verið kallaður litli maðurinn og á sér fáa málsvara nú um stundir. Það er a.m.k. enginn lengur í Sjálfstæðisflokknum sem hefur fengið þá nafnbót að vera talsmaður og vinur litla mannsins, það er liðin tíð (Gripið fram í: Ekki síðan Albert fór.) Það er liðin tíð af eðlilegum ástæðum. Þetta finnst okkur vera sanngjarnt. Með þessu mundum við afla ríkissjóði tæplega 4 milljarða kr. tekna til að mæta þeim útgjöldum sem við leggjum til.
Við leggjum til, og þykir kannski einhverjum skrýtið, að arðgreiðslur frá opinberum stofnunum til ríkisins lækki um 1.000 millj. kr. og þar erum við að tala um Landssímann. Við höfum flutt og flytjum þingmál um að Landssímanum, sem er í opinberri eigu að 99%, verði beitt til að gera brýnar úrbætur í fjarskipta- og gagnaflutningamálum þjóðarinnar, sérstaklega að bæta háhraðatengingar og koma landsmönnum öllum í betra samband í þeim efnum og þétta farsímakerfið. Gagnvart þeim hluta slíkra fjárfestinga sem sannanlega teljast minnst arðbærar yrði þá létt á móti arðgreiðslum af Símanum sem samkvæmt nánari reglum mætti setja þar um. Þetta er einföld framkvæmd, skilvirk og hægt að byrja strax á morgun í staðinn fyrir að láta það vefjast fyrir sér og þvæla um það fram og aftur hvernig hugsanlega sé hægt að selja Símann fyrst en taka svo einhvern hluta af söluhagnaðinum og reyna að nota í slíka fjárfestingu. Það er fjallabaksleið, ógreiðfær og óskilvirk. Hitt er miklu skynsamlegra og skilvirkara á allan hátt og það held ég að menn hljóti að horfast í augu við.
Þá vil ég í þriðja lagi mæla fyrir breytingartillögu á þskj. 444. Það er mikill skaði að Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, sé ekki viðstaddur því ég ætlaði að heiðra hann alveg sérstaklega í sambandi við málflutning minn í tengslum við tillöguna. Hún gerir ráð fyrir því að inn á liðinn 02-989 Ýmis íþróttamál komi nýr undirliður 1.92 Jöfnun ferðakostnaðar íþróttafélaga innan lands, upp á 150 millj. kr. Það er nefnilega þannig að einn af þeim þáttum sem stendur mönnum tilfinnanlega fyrir þrifum að stunda íþróttir, keppnisíþróttir og senda lið í mót og halda þeim úti í mótum er ferðakostnaður. Það er ósköp einfaldlega þannig að félagslið á landsbyggðinni eru nánast að dæmast úr leik til þátttöku í mótum, Íslandsmótum og öðrum opinberum keppnismótum vegna ferðakostnaðar. Þetta er svo tilfinnanlegt að félög eru að draga lið sín út úr mótum.
Þetta bitnar sérstaklega á yngri flokkum og þetta bitnar sérstaklega á kvennaíþróttum og þarf reyndar ekki til. Meistaraflokkslið í 1. deildum íþrótta utan af landi, þeim fáu sem eftir eru því miður, eru sum hver algerlega að gefast upp og þátttakan í mótum þeirra er að setja viðkomandi félög á hausinn, er að lama alla starfsemi þeirra. Ekki bara þátttökuna í viðkomandi keppnisgreinum í meistaraflokkum heldur kemur þetta niður á allri starfsemi viðkomandi félaga. Við þurfum ekki annað en skoða stöðu félaganna á Akureyri, meistaraflokksliðanna í úrvalsdeild í knattspyrnu og handbolta, og við vitum hvernig þetta stendur. Það hefur því verið baráttumál manna að fá fjármuni til að jafna ferðakostnaðinn. Það væri gríðarlega góð aðgerð gagnvart jafnrétti og jafnri stöðu manna til að taka þátt í starfseminni og það þarf að sjálfsögðu að hugsa til fleiri aðila en bara keppnisliða í meistaraflokkum.
Hv. þm. Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, fyrrv. formaður — reyndar segja sumir að hann sé enn þá formaður Alþýðubandalagsfélagsins í Sandgerði — hefur flutt þingsályktunartillögu á a.m.k. tveimur þingum. Hún liggur víst ekki fyrir þessu þingi en var flutt í fyrra á 130. löggjafarþingi og var svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að veita árlega af fjárlögum fé í ferðasjóð íþróttafélaga til að standa straum af kostnaði við keppnisferðir þeirra á viðurkennd mót. Úthlutun fari eftir reglum sem menntamálaráðherra setur.“
Hv. þingmaður hefur fengið rós í hnappagatið fyrir að flytja þessa tillögu og allt gott um það. En það vantar sem við á að éta og það vantar ár eftir ár. Hv. þm. Hjálmar Árnason tilheyrir meiri hlutanum. Flokksbróðir hans, hv. þm. Magnús Stefánsson, er formaður fjárlaganefndar en það gerist ekkert. Það kemur ekki ein einasta króna í fjárlagafrumvarpið ár eftir ár til að fylgja þessu máli eftir. Við erum að afgreiða í þriðja sinn fjárlagafrumvarp frá því að hv. þingmaður kom með þessa tillögu.
Það vottar ekki fyrir því að það standi til að gera eitthvað í málinu. Nei, heldur er flutt svona sýndarmennskuþingsályktunartillaga ár eftir ár og þegar svo er þá hættir maður að taka viljann fyrir verkið. Ég vildi a.m.k. fá hv. þm. Hjálmar Árnason í ræðustól til að útskýra hvers vegna engir peningar koma í það verkefni sem hann er svona áhugasamur um og þeir stjórnarliðar aðrir sem hafa flutt málið með honum. (EOK: Hefur tillagan verið samþykkt?) Hér er einn af flutningsmönnunum, hv. þm. Magnús Stefánsson, formaður fjárlaganefndar. (EOK: Hefur hún verið samþykkt?) Hv. þm. Birkir Jón Jónsson, er hann ekki líka í fjárlaganefnd fyrir Framsóknarflokkinn? Ekki vantar þá aflið. Þeir hefðu átt að geta komið þessu fram sem breytingartillögu í fjárlaganefnd. Strandar þetta þá á Sjálfstæðisflokknum? Við skulum fá málið á hreint.
Ég held að það sé efni til að láta stjórnarþingmenn ekki leika svona leiki. Það er óskaplega lítil reisn yfir því að ætla að slá keilur meðal félagasamtaka og iðkenda íþrótta í landinu með því að flytja svona sýndarmennskutillögur ef þeim er ekkert fylgt eftir. En það er veruleikinn sem birtist hér frammi fyrir okkur.
Virðulegi forseti. Ég hef flutt breytingartillögu um það sem ég vona sannarlega að hv. þingmenn Framsóknarflokksins, Magnús Stefánsson, Hjálmar Árnason, Birkir Jón Jónsson og allir þeir kappar styðji, að það verði settar í þetta 150 millj. kr. Eigi að gera eitthvað sem munar um í þessum efnum þá er það lágmark. Þessi ferðakostnaður hleypur á fleiri hundruðum milljóna. Keppnislið KA í úrvalsdeild í handknattleik keyrir á milli í alla leiki til Reykjavíkur. Af hverju gerir það það? Vegna þess að það er svo dýrt að fljúga. (GunnB: HK keyrir líka norður.) Já, eina ferð á ári eða tvær. Það er alveg að drepa Reykjavíkurliðin að fara eina ferð á ári norður. Þau fara að gráta, liðin hérna á suðvesturhorninu, ef fleiri en eitt lið utan af landi lendir í úrvalsdeild. Svona er þetta. En hvað mega hin liðin segja sem þurfa 10–18 ferðir á ári með tilheyrandi kostnaði á Suðvesturhornið til að keppa? Af sparnaðarástæðum þurfa menn að taka sér hálfan dag í frí úr vinnu til viðbótar öllum öðrum frátöfum til að sitja í rútu fram og til baka. Halda menn að að það sé ekki erfitt fyrir menn sem jafnframt stunda vinnu, því hér er ekki um atvinnumennsku að ræða, að taka þetta á sig? Svona er þetta. Þá er spurningin: Vilja menn eitthvað gera í því eða vilja þeir láta nægja að flytja tillögur sem gufa upp og ekki er fylgt eftir?
Ég ætla síðan að nefna, virðulegur forseti, tillögu okkar formanna stjórnarandstöðuflokkanna sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson hefur einnig gert grein fyrir og hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson. Við sameinumst um flutning á breytingartillögu sem tekur á þremur liðum sem við sammæltumst um að gera sérstaklega að viðfangsefni okkar. Það má segja að þar séu þau mál sem við sameiginlega í stjórnarandstöðunni viljum leggja þyngsta áherslu á í þessari fjárlagaumræðu. Það snýr í fyrsta lagi að því að við samninginn við Öryrkjabandalagið, um sérstaka hækkun örorkulífeyris yngstu öryrkjanna, verði staðið.
Það verð ég að segja, herra forseti, að óskaplega finnst mér það ömurlegt fyrir hæstv. heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnina, ekki síst þó fyrir hæstv. forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson, að standa frammi fyrir svikum af því tagi sem menn eru þarna berir að. Það þýðir ekki fyrir menn, þegar þeir lesa t.d. beinar tilvitnanir, sem enginn hefur vefengt að séu réttar, í fjölmiðlaviðtöl og þess vegna í ræður á Alþingi, að ætla að reyna að snúa við blaðinu hér. Ömurleg fannst mér framganga hæstv. heilbrigðisráðherra í þeim efnum í umræðunum fyrr í dag.
Það er ömurlegt að geta ekki viðurkennt að menn hafa ekki tommað með málið og hæstv. heilbrigðisráðherra hafi ekki afl eða stuðning í ríkisstjórninni og innan meiri hlutans til að efna samninginn eins og til var ætlast og hann var hugsaður. Það blasir við, það er hægt að taka hverja beinu tilvitnunina á fætur annarri í heilbrigðisráðherra sem sannar það, að hann sjálfur var þeirrar skoðunar að ekki væri verið að efna samninginn nema að tveimur þriðju. Samningurinn var um kerfisbreytingu. Samkomulagið er um kerfisbreytingu en ekki um upphæð. Allir sem að því komu eru sammála um hvernig sú kerfisbreyting var hugsuð.
Síðan snúa menn dæminu við og gera lauslegt minnisblað um líklegan kostnað að kerfisbreytingunni, gera það að grundvelli samkomulagsins. Þetta er óskaplega lágkúruleg framganga og ég held að hæstv. forsætisráðherra eigi verstan hlut í þessu. Hæstv. forsætisráðherra hefur að vísu reynt að gera lítið úr því, sem heilbrigðisráðherra lagði þó lykkju á leið sína til að koma inn í umræðuna í aðdraganda kosninganna 2003, hvað þáverandi utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins ætti mikinn og góðan hlut að þessu samkomulagi. Þannig sagði t.d. heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra í Morgunblaðinu 27. mars 2003, með leyfi forseta:
„Samkomulagið sem gert var við Öryrkjabandalagið náðist eftir fjölmarga formlega, en ekki síður óformlega samráðsfundi, sem undirritaður og embættismenn heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins hafa átt með forystumönnum bandalagsins að ógleymdum Halldóri Ásgrímssyni, svo öllu sé nú til skila haldið.“
Það voru teknar sérstakar lykkjur á leiðina til að koma því að að menn ættu líka Halldóri Ásgrímssyni mikið að þakka í sambandi við samkomulagið, hæstv. núverandi forsætisráðherra. Minnumst þess að þetta var í aðdraganda kosninganna 2003 og minnumst þess að þetta var í lokin á kjörtímabili þar sem ríkisstjórnin hafði staðið í blóðugum illdeilum við öryrkja og samtök þeirra og tapað hverju málinu fætur öðru fyrir dómstólum, verið dæmd fyrir brot á stjórnarskránni og brot á mannréttindum öryrkja, ekki bara einu sinni heldur tvisvar í sama málinu.
Þetta var friðargerningur, friðþægingargerningur af hálfu ríkisstjórnarinnar, gerður undir lok kjörtímabilsins og rétt fyrir kosningar til að reyna að koma þeim hlutum í skárra horf og komast í skjól í málinu. En vegna þess að málið var gott og vegna þess að þetta var mikil kjarabót fyrir öryrkja þá slógu menn striki yfir þær deilur. Þær voru lagðar til hliðar í kosningabaráttunni af okkur í stjórnarandstöðunni vegna þess að við vildum leyfa málinu að njóta sín. Það var fagnaðarefni, og er það út af fyrir sig svo langt sem það nær gagnvart yngstu öryrkjunum, þeim sem annaðhvort frá upphafi eða snemma á ævinni missa starfsorkuna. Þeirra staða var auðvitað og hefur verið erfiðust. Er þá ekki nöturlegt að menn skuli, fyrir ekki hærri fjármuni en þetta, gera sig að ómerkingum orða sinna? Ódýrir eru menn. Ódýr eru orðin, ódýr er æran þegar menn fara svona að ráði sínu.
Það mundi líklega kosta um 560 millj. kr. að efna þennan samning þannig að allir væru sammála um það og sáttir að hann væri fullnustaður. Nei, það er ekki hægt. Þetta er sennilega orðið að einhverju sálrænu þráhyggjumáli hjá Sjálfstæðisflokknum, að láta Framsókn beygja sig í duftið að þessu leyti. Það er væntanlega engin önnur skýring til á því. En það er heldur ekki geðslegt ef menn eru svo kaldrifjaðir í þanka og framgöngu að þeir vinni þannig vegna þess að það bitnar á saklausum þriðja aðila. Svo eru menn að tala illa um kennara, um að verkföll og að löglegar kjaraaðgerðir þeirra bitni á börnunum. Ég held að menn ættu ekki segja mikið. Ef löngun þeirra til að niðurlægja Framsóknarflokkinn er svo mikil að þeir gera þá ekki bara að ómerkingum orða sinna … (HBl: Er það rangt að verkfall í skólum bitni á börnunum?) Verkföll bitna alltaf á einhverjum, það eru alltaf þolendur verkfalla. (HBl: Það á ekki að gera lítið úr því að það er auðvitað ...) Það er ekki verið að gera lítið úr því, hv. þm. Halldór Blöndal. En þar eru lögmætar aðgerðir samkvæmt þeim lögum og leikreglum sem við höfum samið um í samfélaginu, að menn megi beita samtakamætti sínum til að knýja á um betri kjör. (HBl: Það er alveg rétt. En það á ekki að gera lítið úr þeim vandræðum barnanna.) Ég var ekki að gera lítið úr því. Ég var að vitna til ýmissa ummæla þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem hafa verið á þá leið að kennarar hafi með sérstaklega ómaklegum hætti beitt aðgerðum sem hafi bitnað á börnum.
Ég ætla rétt í lokin að nefna, virðulegi forseti, eitt lítið mál sem þó er stórt. Það lýtur að öðru kannski sambærilegu máli sem þó er í fjárhæðum miklu minna. Það er Mannréttindaskrifstofa Íslands og sú meðhöndlum sem hún fær hjá ríkisstjórninni. Mannréttindaskrifstofan hefur haft 8 millj kr. í föstum fjárveitingum í gegnum tvö ráðuneyti undanfarin ár á grundvelli samnings sem gerður var um það. Af hverju er mönnum mikið í mun að Mannréttindaskrifstofan hafi skýra merkta fjárveitingu sem hún gangi að og sé afgreidd á Alþingi hverju sinni? Það er m.a. til þess að Mannréttindaskrifstofa Íslands, sem er það tæki sem stendur á vaktinni og er í alþjóðlegum samskiptum fyrir Íslands hönd að því leyti og nýtur viðurkenningar Sameinuðu þjóðanna og norrænna og evrópskra systursamtaka, sé örugglega sjálfstæð og óháð og með fjármál sín og sinn stuðning á hreinu. En hvað gerir ríkisstjórnin? Hvað gerir hæstv. dómsmálaráðherra Björn Bjarnason? Hann knýr það fram, og aftur beygir Framsókn sig í duftið, leggst á kviðinn, að Mannréttindaskrifstofan skuli fara út úr fjárlögunum og eiga það undir náð og miskunn m.a. dómsmálaráðherra hvort hún fái peninga frá stjórnvöldum. Þetta er svo svívirðilegt og ömurlegt að það er leitun að öðru eins. Er geð manna virkilega með þessum hætti, að heil ríkisstjórn, heill meiri hluti, skuli láta hæstv. dómsmálaráðherra komast upp með að þjóna lund sinni með þessum hætti?
Hér er hins vegar breytingartillaga frá meiri hlutanum um að sérmerkta fjárveitingin sem þar var þó hverfi líka. Ég vísa í breytingartillögu sem hv. þm. Kolbrún Halldórsdóttir flytur um þessu verði snarlega snúið við og Mannréttindaskrifstofan fái sjálfstæða og sérmerkta fjárveitingu, Alþingi gangi frá því að hún fái fjárveitingu og eigi hana vísa og þurfi ekki að sækja hana undir stjórnvöld. Annað væri grundvallarbrot á starfsskilyrðum stofnana eða félaga af þessu tagi. Það er í evrópskum og alþjóðlegum leikreglum að svona aðilar skuli vera sjálfstæðir og óháðir. Amnesty International hefur það t.d. í sínum samningum beinlínis að það þiggi ekki fé frá stjórnvöldum. Þar er gengið enn lengra til að tryggja að slíkir aðilar geti verið óháðir og staðið vaktina. Er það vegna þess að Mannréttindaskrifstofan leyfði sér að gagnrýna Falun Gong atburðina? Hvað er verið að refsa henni fyrir? Það er von að spurt sé. Þetta er auðvitað yfirgengilegt.
Ég vísa svo í breytingartillögu um fjárveitingar til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Í umræðunum höfum við reynt að koma að bágum fjárhag sveitarfélaganna og vekja athygli á honum. Það er með miklum endemum að ríkisstjórnin skuli ætla að fara í gegnum fjárlagaafgreiðsluna á lokafjárlögum fyrir næsta ár án þess að koma á nokkurn hátt til móts við stöðu sveitarfélaganna. Það gengur hvorki né rekur í viðræðum ríkisvaldsins við þau. Ég veit ekki til að ríkið hafi spilað neinu út á fundinum í gær, eða hvort það var fyrri partinn í dag. Ég hef ekki haft af því fréttir. Ég spurði hæstv. fjármálaráðherra að því í fyrirspurnatíma á dögunum. Hann svaraði auðvitað bara þoku, engu.
Svo virðist sem Sjálfstæðisflokkurinn sé þar enn á ferðinni, kannski vegna þess að félagsmálaráðherrann kemur úr Framsóknarflokknum, og þar eigi ekkert að gera. Það á að halda sveitarfélögunum í þeirri spennitreyju sem þau eru í. Þar virðist ekkert lát vera á og það er auðvitað niðurstaðan af umræðunni í mjög veigamiklum atriðum. Það er skaði að hafa ekki framsóknarmenn hér, a.m.k. eitt vitni, að Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur auðvitað ráðið ferðinni, lagt upp prógrammið, lagt til hugmyndafræðina, frjálshyggjuna og hægri stefnuna, hefur tvíeflst í að niðurlægja Framsóknarflokkinn eftir að Halldór Ásgrímsson tók við forsætisráðherrastólnum. Dýr var stóllinn á meðgöngutímanum en nú kastar fyrst tólfunum. Nú er allt flatt hjá gömlu Framsókn og hún niðurlægð í hverju málinu á fætur öðru svo hrottalega að engu tali tekur.
Hæstv. heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og hæstv. forsætisráðherra eru gerðir ærulausir menn í samskiptum við öryrkja og þeir glotta hérna undir umræðum um það, sjálfstæðismennirnir. (Gripið fram í: Það er annað en ræðumaðurinn sjálfur.) Hæstv. fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi forsætisráðherra er látinn éta þetta ofan í sig með Mannréttindaskrifstofu Íslands. Er það ekki hrottalegt út af 4 millj. kr. sem áttu að fara í gegnum ráðuneyti hans? Nei, það er of mikið. Sjálfstæðisflokkurinn snýr upp á hann þannig að aumingja hæstv. forsætisráðherrann er alveg kominn í þveng í miðjunni. Það er búið að snúa svoleiðis upp á hann.
Og hvernig er farið með félagsmálaráðherrann? Hann fær ekki eina einustu krónu út úr fjármálaráðherra, hvorki inn í fjárlögin, þaðan af síður tilboð um eitthvað í viðræðum um tekjuleg samskipti ríkis og sveitarfélaga. (Gripið fram í: En fjárlögin?) Þetta er hrikaleg meðferð. (EOK: 400 millj. í fjárlögum.) Af 700 sem sveitarfélögin sögðu að væri svartasta lágmark (Gripið fram í.) til að koma til móts við allra verst stöddu sveitarfélögin. Já, það er rétt haldið lífi í sjúklingnum, hann er kvalinn áfram en það er passað að hafa næringuna svo litla að hann rétt tóri. Það er aðferðafræðin. Þetta er auðvitað rosalegt, herra forseti, svakalegt.
Það hefur kannski ekki mikið upp á sig að messa meira yfir þeim framsóknarmönnum, sérstaklega ekki að þeim fjarstöddum. Það er óskaplega dapurlegt, virðulegur forseti. Ég vek athygli forseta á því af því að fleiri eru hér í salnum sem bera þann virðulega titil. (Gripið fram í: Það er mannval í deildinni.) Það er mannval í salnum, gott, en það er dapurlegt að hér skulu standa umræður um fjárlög ríkisins heilan dag og ekki einn einasti ráðherra sést, nema heilbrigðisráðherra má þó eiga það og er nokkur sómi að því fyrir hann að hann mætti hér og tók við ákúrum og reyndi, þótt bágt væri, að standa fyrir máli sínu.
Fjármálaráðherra hefur ekki sést hér í dag og enginn af ráðherrum Sjálfstæðisflokksins hefur í raun og veru heiðrað okkur svo að heitið geti með viðveru í þessari umræðu. Ég hef ekki séð fjármálaráðherra klukkutímum saman. Það er nokkuð merkilegt að umræðan skuli halda áfram. Ég vek athygli virðulegs forseta á því, mig grunar að það hafi stundum verið rætt í forsætisnefnd að það ætti að undirbúa sérstaklega að fjárlagaumræða gæti farið fram hnökralaust í þeim skilningi að ráðherrar væru tilbúnir til að mæta hvenær sem eftir því væri óskað og standa fyrir máli sínu, þ.e. fagráðherrar. Sú hefur alltaf verið hefðin að fagráðherrar séu til staðar eða geti komið og það sé hægt að leggja spurningar fyrir þá um málaflokka þeirra, ekki síður en hæstv. fjármálaráðherra. Þegar hann sést ekki einu sinni er langt gengið, herra forseti.
Ég ætla ekki — ég nenni satt best að segja ekki að fara að krefja þessa hæstv. ráðherra um viðveru. Ef ég væri í þannig skapi mundi ég kannski gera það og ekki fara héðan úr stólnum fyrr en bólaði eitthvað á þeim en ég ætla ekki að gera það. Ég vek bara athygli virðulegs forseta á fjarverunni. Það er ljótur svipur á þessu og ég held að við ættum öll að taka það til íhugunar.